Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 64
Þorgrímur Jónsson Kvintett
Þar ber til tíðinda að kontra-
bassaleikarinn Þorgrímur Jóns-
son gefur út sinn fyrsta disk sem
sumir segja einkar tímabært því
hann hefur verið starfandi tón-
listarmaður allt frá tíunda áratug
síðustu aldar. Útgáfutónleikarnir
verða sunnudaginn 14. ágúst í
Silfurbergi og hefjast kl. 21.
Tónlistin er öll skrifuð og útsett
af Þorgrími og í fyrirrúmi eru
lagrænar og vel ígrundaðar
tónsmíðar. Kvintett Þorgríms
skipa öndvegisspilararnir Ari
Bragi Kárason (trompet), Ólafur
Jónsson (tenórsaxófónn), Kjartan
Valdemarsson (píanó og rhodes)
og Þorvaldur Þór Þorvaldsson
(trommur).
„Ég var búinn að sanka að mér
lögum sem höfðu ekki fengið
rúm annars staðar. Ég spilaði
þetta efni á tónleikum á Múl-
anum síðastliðið haust með
einvalaliði. Þetta heppnaðist vel
og ég ákvað að gefa efnið út,“
segir Þorgrímur. Tíu lög eru á
disknum og það elsta um tíu ára
gamalt og það nýjasta frá því í
mars á þessu ári.
„Ég hef spilað mikið með Sunnu
Gunnlaugsdóttur píanóleikara og
balkanbandi sem heitir Skugga-
myndir frá Býsans. Áhrifin
koma alls staðar frá og heyrast
á plötunni, allt frá poppi og út
í skrítinn jazz, eins og tengda-
mamma myndi segja.“
Nýtt efni á fjórum útgáfutónleikum
Á Jazzhátíð Reykjavíkur 2016 verða haldnir fjórir útgáfutónleikar sem sýna hina
skemmtilegu breidd í íslenskum jazzi.
Agnar Már Magnússon Trio
Agnar Már Magnússon og tríó
hans verður með útgáfutónleika í
Norðurljósasal Hörpu 11. ágúst.
Um er að ræða frumsamið efni
fyrir píanótríó og er þetta fyrsti
diskur Agnars Más í sjö ár. Tón-
listin er nútímalegur píanótríó
jazz með áhrifum frá bandarísk-
um og evrópskum jazzi. Með
Agnari leika Scott McLemore á
trommur og Valdimar Sigurjóns-
son á kontrabassa. Agnar Már er
einn þekktasti jazzpíanóleikari
þjóðarinnar. Hann hefur sent
frá sér sex geisladiska og að auki
hljóðritað fjölda verka í sam-
starfi við aðra. Agnar Már hefur
samið á annað hundrað jazzverka,
bæði fyrir minni hljómsveitir og
stórsveitarverk.
Andrés Þór Kvartett
Gítarleikarinn Andrés Þór
Gunnlaugsson fagnar útgáfu nýs
disks sem ber titilinn Ypsilon í
Silfurbergi 11. ágúst kl 19. Tón-
listin er ný af nálinni úr smiðju
Andrésar og lýsir sér best sem
nýmóðins jazztónlist innblásin af
ýmsum upplifunum. Á disknum
leika með Andrési þeir Agnar
Már Magnússon á píanó, Richard
Andersson á kontrabassa og Ari
Hoenig á trommur. Á tónleik-
unum leikur Scott McLemore á
trommur í fjarveru Ara Hoenig.
Sveiflugaldur
Secret Swing Society
Secret Swing Society er hljóm-
sveit sem nokkrir félagar stofn-
uðu fyrir sex árum þegar þeir
voru við tónlistarnám í Hollandi.
Hljómsveitina skipa Andri
Ólafsson, kontrabassi og söngur,
Grímur Helgason , klarinett og
söngur, Guillaume Heurtebize
gítar, banjó og söngur, Dom-
inykas Vysniauskas , trompet
og söngur og Kristján Tryggvi
Martinsson píanó, harmónikka
og söngur. Sérstakur gestasöngv-
ari á tónleikunum verður Kristj-
ana Stefánsdóttir.
Eins og nafnið gefur til kynna er
sveiflan ríkjandi á efnisskránni.
Hljómsveitin hefur komið víða
fram í Evrópu og á austurströnd
Bandaríkjanna og gefur nú út
sinn fyrsta disk. Tónlistin er
jafnt frumsamin og komin frá
höfundum og flytjendum á borð
við Duke Ellington, Gershwin
bræður, Louis Armstrong, Mills
bræður, Louis Prima, Django
Reinhardt og Fats Waller.
„Þetta byrjaði sem stúdía í að
spila tónlist manna eins og
Django Reinhardt og Fats
Waller en þróaðist svo út í það
að við fórum að syngja meira
og að semja líka sjálfir. Þetta
er gleðimúsík og það er mikil
stemning fyrir tónlist af þessu
tagi. Við höfum spilað mikið úti
á götum og torgum og höfum
fengið skemmtilegar undirtekt-
ir. Galdurinn er gamla, góða
„svíngið“ og við náum líklega
til breiðari hóps með söngnum.
Þetta er popptónlist síns tíma og
fólk tengir við þessa tónlist enn í
dag,“ segir Andri.
Útgáfutónleikar plötunnar Keep-
ing the Secret með Secret Swing
Society verða í Norðurljósasal
Hörpu sunnudaginn 14. ágúst og
hefjast kl. 15.
Hægt er að kaupa staka miða á
tónleika Secret Swing Society.
miðvikudagur 10. ágúst fimmtudagur 11. ágúst föstudagur 12. ágúst sunnudagur 14. ágústlaugardagur 13. ágúst
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
19:00 Tómas R. Einarsson Ný sungin
Latintónlist Norðurljós
20:00 Snarky Puppy Eldborg
22:00 Jam Session í boði Sendiráðs
Þýskalands Budvarsvið
17:00 Jazzganga að Hörpu Lucky
Records
17:30 Setningarathöfn í Hörpu
Budvarsvið
11:00 Fyrirlestur: Gilad Hekselman
Kaldalón
12:00 Fyrirlestur: John Hollenbeck
Kaldalón
15:00 Fjölskyldutónleikar með
Grétu Salóme Budvarsvið
16:00 Happy Hour með Carioca
Budvarsvið
15:00-17:00 Family Flosason Jam
Jómfrúin, Lækjargötu
15:00 Secret Swing Society &
Kristjana Stefánsdóttir Norðurljós
17:00 Þakkargjörð: Carl Möller
Kirkja Óháða Safnaðarins
19:00 Sigurður Flosason & Stefan
Bauer Kvartett Silfurberg
20:00 Bobo Stenson Trio Norðurljós
21:20 Annes Silfurberg
22:20 Anna Gréta & Håkon Broström
Norðurljós
23:05 Jam Session Budvarsvið
17:00 Happy Hour Budvarsvið
Anna Sóley og hljómsveit
Atriði á Budvarsviði og í Kaldalóni eru ókeypis og opin öllum. 20% ungmennaafsláttur er á pössum hátíðarinnar (25 og yngri)
Hátíðarpassar – 16.200 kr • Hátíðarpassi með miða á Snarky Puppy – 19.900 kr • Dagpassar – 5.900 kr
Stakir miðar á valda tónleika: Snarky Puppy – 5.900-9.900 kr; Tómas R. Einarsson – 3.900 kr; Secret Swing Society – 3.200 kr.
Sjá nánar á www.reykjavikjazz.is og miðasala á tix.is.
17:00 Happy Hour Budvarsvið
Sara Blandon og hljómsveit
19:00 Andrés Þór Kvartett Silfurberg
20:00 Pascal Schumacher Norðurljós
21:20 Einar Scheving Kvartett
Silfurberg
22:20 Jam Session Budvarsvið
19:00 Sunna Gunnlaugs & Julia
Hülsmann Silfurberg
20:00 Gilad Hekselman Trio Norðurljós
21:20 Stórsveit Reykjavíkur & John
Hollenbeck Silfurberg
22:20 Sigurður Rögnvalds Myrkvi
Skógur Norðurljós
23:05 Jam Session Budvarsvið
19:00 Ingi Bjarni Kvartett Silfurberg
20:00 Agnar Már Magnússon Trio
Norðurljós
21:00 Þorgrímur Jónsson Kvintett
Silfurberg
ATHUGIÐ að Jazzhátíð Reykjavíkur áskilur sér rétt til að breyta dagskrá.
Passinn tryggir ekki forgang að viðburðum. Mætið tímanlega.
Secret Swing Society leikur á sunnudeginum 14. ágúst.
Andrés Þór leikur 11. ágúst. Agnar Már leikur 14. ágúst.
Þorgrímur Jónsson leikur á sunnudeginum 14. ágúst.