Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 60
alla föstudaga
og laugardaga
„Það var eins og gleðibylgja væri í loftinu“
Lesbíurnar Anna Sigríður Sigurjónsdóttir og Sólveig M. Jónsdóttir
í viðtali við amk... á morgun.
Nakinn Orlando Bloom setti netið á hliðina
Leikarinn er í sumarfríi með kærustunni Katy Perry á Sardiníu.
Sturla Atlas hitar
upp fyrir Bieber
Sturla Atlas mun hita upp
fyrir sjálfan Justin Bieber á
stórtónleikum hans í Kórnum í
Kópavogi í næsta mánuði.
Samkvæmt upplýsingum frá
tónleikahaldaranum Senu mun
erlendur tónlistarmaður einnig
hita upp á tónleikunum og verður
tilkynnt hver það er á næstunni.
Þetta verður að teljast mikill
heiður fyrir strákana í Sturlu Atlas
en þeir hafa verið á miklu flugi
síðustu mánuði og í raun alveg frá
því að platan Love Hurts kom út
vorið 2015. „Ég er mjög spenntur
fyrir tónleikunum. Justin Bieber
er í fyrsta lagi einn af mínum
uppáhalds tónlistarmönnum og
svo er ákveðið „milestone“ í
ferlinum að hita upp fyrir stærstu
poppstjörnu heims,“ segir
Sigurbjörn Sturla Atlason í Sturla
Atlas af þessu tilefni.
Sveikst um
að mæta í ræktina
Samfélags-
miðladrottn-
ingin Manúela
Ósk Harðar-
dóttir er
alltaf jafn
dugleg að
tala við
fylgjendur sína á
Snapchat og deila
því sem hún tekur sér fyrir
hendur. Í síðustu viku fór hún í
fyrsta tímann sinn í einkaþjálfun
hjá Gurrý og ætlaði aldeilis að
fara að taka sig á. Hún stefndi á
vera dugleg að fara í rækina fram
að næsta tíma, en um miðja
vikuna viðurkenndi hún að þetta
plan hefði farið úr skorðum. Hún
hefði ekki mætt einu sinni í
ræktina á heilli viku. Þá sveikst
hún líka um að gera magaæfingar
fyrir svefninn, líkt og hún hafði
lofað sjálfri sér. Hún er samt
harðákveðin í að mæta í fitness-
box á næstu dögum, svo það er
aldrei að vita nema átakið haldi
áfram, þrátt fyrir smá svindl.
Breski leikarinn Orlando Bloom
setti allt á annan enda í netheim-
um í gær eftir að myndir af hon-
um nöktum í sumarfríi komust í
umferð.
Bloom er í sumarfrí á Sardiníu
með kærustu sinni, hinni vinsælu
söngkonu Katy Perry, og einhver
papparassinn náði myndum af
kappanum kviknöktum að róa á
brimbretti. Myndirnar fóru fljótt
í umferð á netinu, einkum og sér
í lagi eftir að Daily Star birti eina
slíka á forsíðunni.
Breska blaðið huldi fjölskyldu-
djásn Blooms með Emoji-kalli. Á
Twitter voru hins vegar margir
að velta fyrir sér skuggamyndinni
sem sjá mátti á læri Orlandos og
virtist benda til þess að hann
þyrfti ekkert að skammast sín fyr-
ir djásnin.
Vinsæll Or-
lando Bloom er
umtalaður eftir
að myndir af
honum nöktum
í sumarfríi fóru
í umferð. Mynd
| NordicPhotos/
Getty
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK