Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 26

Fréttatíminn - 05.08.2016, Blaðsíða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 5. ágúst 2016 Mímir Kristjánsson ritstjorn@frettatiminn.is Því miður virðist nákvæmlega það vera í uppsiglingu. 25 árum eftir að Alþingi innleiddi að hægt væri að versla með fiskveiðikvóta á Íslandi, er sama ferli hafið meðfram norsku strandlengjunni. Noregur stend- ur frammi fyrir auknu frjálsræði á kvótamarkaðnum. Afleiðingin er að norskar fiskiauðlindir gætu endað á höndum erlendra aðila og að fjöldi lítilla sjávarþorpa gæti lognast út af vegna brottflutnings. Lengi vel var ólöglegt að kaupa og selja kvóta í Noregi. Kvótinn var tengdur veiðiskipum en tilheyrði þjóðinni. Eins og stendur í norsk- um auðlindalögum: „Sjávarauðlind- ir Noregs tilheyra samfélaginu.“ En í raun hefur kvótinn í Noregi lengi gengið kaupum og sölum í gegnum hinar ýmsu smugur. Skip að andvirði fimm milljóna króna var selt fyrir 65 milljónir, berstrípað kvóta og selt upprunalega eigandanum aftur á fimm milljónir, degi síðar. Fiskveiði- stjórn landsins leyfði að þetta gerð- ist. Yfirvöld hirtu ekki um lögin og horfðu í gegnum fingur sér varðandi hin augljósu lögbrot. Síðar urðu þessi lögbrot lögleg, án þess að samfélagið eða Stór- þingið væri spurð álits. Vorið 2005 keyrði Hægriflokkurinn, systur- flokkur Sjálfstæðisflokksins, í gegn breytingar á norskum fiskveiðilögum á ógnarhraða. Opnað var fyrir svo- kallaðan „strúktúrkvóta“ sem heim- ilaði bröskurum að kaupa upp fiski- báta og sameina kvóta þeirra í einn stærri kvóta. Þessir nýju „strúkt- úrkvótar“ áttu að verða eign brask- aranna að eilífu. En hvað er eilífð- in? Það er heimspekilegt vandamál sem mannveran hefur brotið heil- ann um í þúsundir ára. Eilífðin er af ólýsanlegri stærðargráðu og varla til þess fallin að drita inn í frumvörp og reglugerðir. Ekkert varir að eilífu, er sagt. Nema fiskveiðikvótinn. Strúktúrvæðingin losaði heldur betur um reglurnar á kvótamark- aðnum, sem varð svo til þess að stór hluti norsku sjávarauðlindarinnar var gefinn til velstæðra braskara. Nýju strúktúrkvótarnir námu um 30% af norska þorskinum. Heildar- kvóti norska þorsksins var 414.920 tonn árið 2015. Miðað við 250 króna kílóverð nemur þriðjungurinn, sem endaði í höndum braskaranna, um það bil 40 milljörðum íslenskra Örlög sjávarþorpa í Noregi gætu orðið þau sömu og Flateyrar eða Hafna á Íslandi. Byggða án kvóta, þar sem sjó- menn fá ekki lengur að veiða, þó hafið í kring iði af fiski. KVÓTAKERFIÐ SEM BREYTTI Bara ef fiskar gætu sungið Norðmenn geta lært margt af Íslendingum. Norska tungumálið, til dæmis. Hvernig maður spilar fótbolta. Eða kúnstina að kveða. En ef það er eitthvað sem Norðmenn ættu ekki að læra af Íslendingum, þá er það hvernig maður úthlutar fiskveiðikvóta. króna á ári. Margfaldaðu það svo með eilífðinni og útkoman verður væn summa. Ólíkt kvótanum entist ríkisstjórn- in ekki að eilífu. Í september 2005 voru kosningar í Noregi. Vinstri- flokkarnir fóru með sigur af hólmi, ásamt Miðflokknum, systurflokki Framsóknar- f lokksins. Þeir breyttu reglun- um á ný. Eilífðin var stytt í 15 ár. Fiskveiðibrask- ararnir fóru í mál við ríkið. Eft- ir löng og ströng réttarhöld komst hæstiréttur í Nor- egi að því að 25 ár væri ágætis mála- miðlun milli 15 ára og eilífðar. En þó komið væri í veg fyrir ei- lífðarkvóta var enn heimilt að sam- eina kvóta. Afleiðingin hefur verið sú að smábátaeigendur selja kvóta sína til stærri veiðiskipa, sem hefur leitt til þess að færri starfa við sjáv- arútveg og mörg af þeim þúsund ára gömlu sjávarþorpum í Norður-Nor- egi eru við það að þurrkast út vegna brottflutnings. Strúktúrkvótarnir hafa fært hinum ríku kvótabröskur- um tugi milljarða íslenskra króna í hagnað. Sá umsvifamesti, Kjell Inge Røkke, seldi nýlega smábáta sína og hagnaðist um 22,5 milljarða ís- lenskra króna. Þegar heildarsölu- verð bátanna er skoðað, kemur ber- sýnilega í ljós að viðskiptin snerust ekki um smábáta heldur kvótann. Í raun er þetta ólöglegt. En í fyrirtæk- ið sem „keypti“ kvótann hreykir sig af því að hafa „tryggt sér aðgang að 100 þúsund tonnum af hvítum fiski.“ Færum okkur aftur inn í nútím- ann, 2016. Ný hægristjórn er kom- in til valda. Sjávarútvegsráðherra, Per Sandberg, frá hægripopúlista- flokknum Fremskrittspartiet, hefur haldið áfram þar sem fyrri hægri- stjórn skildi við. Í vor samþykkti hann, án þess að bera málið undir Stórþingið, nýjar breytingar á kvóta- reglunum. Áður var ólöglegt að færa kvóta milli fylkja í Noregi. Hugsunin á bak við það var að tryggja að kvót- inn skapaði atvinnu fyrir sjómenn í þeim fylkjum þar sem fiskurinn var veiddur. Nú er þessu breytt með því að tvískipta landinu í Norður- og Suður-Noreg. Innan þessara svæða ríkir algjört frelsi t il að strúkt- úrera kvóta eftir hentisemi, með þeim afleiðing- um að minnstu fylkin, eins og norður Finn- mörk, á eftir að missa sína byggðakvóta til stærstu fiskveiðifylkjanna. Enn alvarlegra er að ríkisstjórnin áformar nú að breyta því sem kall- ast þátttökulög í lögum um fiskveiði. Þátttökulögin segja, með örfáum undantekningum, að sá sem á kvóta eigi að vera þátttakandi í veiðinni. Ef maður vill fá kvóta, þarf maður að vera í útgerð. Banki getur til dæm- is ekki fengið kvóta og það kemur í veg fyrir að kvótinn verði spákaup- mennsku að bráð, eins gerst hefur með hörmulegum afleiðingum á Ís- landi. Þessi lög vill nefnd á vegum rík- isstjórnarinnar nú fella úr gildi. Ef þátttökulögin verða lögð niður þýð- ir það endalok þess kvótakerfis sem átti að tryggja að almenningur ætti fiskinn. Auðlind þjóðarinnar, sem hefur synt hefur í sjónum alla tíð, Sjávarútvegsráðherra Noregs, Per Sandberg úr Miðflokknum, samþykkti í vor nýjar breytingar á kvóta- kerfinu, án þess að bera málið undir Stórþingið. Áður var óheimilt að flytja kvóta milli fylkja í Noregi en nú hefur landinu verið skipt í tvennt og algjört frjálsræði ríkir um sameiningu kvóta innan landshlutanna tveggja. fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr, snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin Ögurhvarfi 2 | 203 Kópavogur | sími 577 6000 | garmin.is toppaðu gærdaginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.