Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 20.08.2016, Qupperneq 4

Fréttatíminn - 20.08.2016, Qupperneq 4
Stjórnmál „Það er sorglegt að sjá að konur sem eru að berjast fyrir sínum hugsjón- um, séu kallaðar frekjur og öðrum ljótum nöfnum,“ segir Eygló Harðardóttir fé- lagsmálaráðherra og aftekur með öllu að hún sé á leið úr ríkisstjórninni en margir sjálfstæðismenn hafa kallað eftir því í kjölfar þess að hún sat hjá þegar fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórn- arinnar var afgreidd. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir tka@frettatiminn.is „Í mínu ungdæmi var þetta kall- að að vera stíflaður af frekju,“ seg- ir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á bloggi sínu um hjásetu Eyglóar Harðardóttur þegar fjármálaáætlun ríkisstjórn- arinnar var afgreidd. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir á Facebook að þetta hljóti að þýða úrsögn hennar úr ríkisstjórn, í sama streng tekur Óli Björn Kárason, varaþingmaður flokksins. Þá hafa Bjarni Benedikts- son fjármálaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjár- laganefndar, gagnrýnt ráðherrann harðlega. Eygló segir að það sé leitt að menn telji sig þurfa að grípa til slíkra orða og gagnrýna á þennan hátt. Ég er einfaldlega að standa við hugsjónir okkar framsóknar- manna og ég held að flokksmenn séu ánægðir með það. Hún neitar því ekki að hún og Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra hafi mjög ólíka sýn á hlutina. „Hann er að skila sinni sýn í þessari fjármálaáætlun. Aðgerðir ríkis- stjórnarinnar hafa leitt til þess að það hefur skapast ákveðið svig- rúm en það er ekki nóg ef menn vilja ekki nýta það í þágu barnanna okkar. Ég vil nýta það í þágu heim- ilanna, unga fólksins og eldri borg- ara. Ég er að tala fyrir fjöldann allan af konum sem eru með lágar lífeyr- istekjur og búa við fátækt á efri árum vegna þess að þær voru inni á heimilunum að sinna fjölskyldum sínum hluta úr starfsævinni, þá er ég að tala fyrir barnafjölskyldur en það hefur verið gengið hart að þeim frá því í efnahagshruninu.“ Hún segir einkennilegt að það sé kallað eftir afsögn hennar vegna málsins. „Þessi afstaða mín hefur legið fyrir í ríkisstjórninni og ég hef gert grein fyrir henni í þingflokki framsóknarmanna. Ég á bara von á því að ríkisstjórnin starfi fram að kosningum á grundvelli ríkjandi stjórnarsáttmála, eins og hún hefur gert fram að þessu. Ég er ekki á leið úr ríkisstjórninni. Það er kjósenda að ákveða framhaldið.“ En kosningar eru í nánd og ráð- herrann er greinilega að marka sér sérstöðu. Það eru breytingar yfir- vofandi í Framsóknarflokknum og miðstjórnarfundur tekur ákvörðun þann tíunda september um hvort boða eigi til flokksþings fyrir kosn- ingar og kjósa nýja forystu. En gengur hún með formann í magan- um? „Ég hef enga ákvörðun tekið um að bjóða mig fram til formanns Framsóknarflokksins,“ segir Eygló. 4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 20. ágúst 2016 Borgartúni 23. Sími 5611300 www.reykjavikurblom.is Opið Mánudaga-föstudaga Kl.10-18 Laugardaga 11-18 Sunnudaga 12-16 Þú færð fullt af fallegum blómum og flottri gjafavöru hjá okkur Mér finnst sorglegt að vera kölluð frekja Eygló Harðardóttir segir að þau Bjarni Benediktsson hafi ólíka sýn. Flóttamenn „Við eigum enga möguleika í Gana,“ segir Fad- ila Zakaria, flóttamaður frá Gana, en hún og fjölskylda hennar bíða á milli vonar og ótta um lokasvar frá Útlendingastofnun. Valur Grettisson valur@frettatiminn.is Fadila og maður hennar, Saad Abdel Wahap frá Tógó, komu til Íslands með þriggja mánaða millibili árið 2014. Fadila eignaðist skömmu síð- ar drenginn Hanif hér á landi. Þá eignuðust þau dótturina Jónínu fyr- ir fimm mánuðum, en stúlkan er nefnd í höfuðið á ljósmóðurinni sem tók á móti stúlkunni. „Ljósmóðirin reyndist okkur mjög vel,“ útskýrir Saad, spurður út í nafngiftina. Útlendingastofnun hefur þegar hafnað því að veita fjölskyldunni hæli hér á landi, þannig verður Saad sendur til Ítalíu á forsendum Dyflinnarreglugerðarinnar, verði úrskurðinum ekki snúið við næsta þriðjudag. Líklegt er að Fadila og börnin, sem bæði hafa búið hér á landi alla sína ævi, verði send til Þýskalands, og þaðan til Gana. Í greinargerð Fadilu kemur fram að hún beri öll merki um að hafa lent í mansali. Hún þvertekur þó fyrir það sjálf, sem eru ekki óalgeng viðbrögð einstaklinga sem lenda í slíku ofbeldi. Engu að síður segir í greinargerðinni að hún hafi borið áverka líkt og hún hefði verið lamin með svipu. Reynslan liggur þungt á henni og tekst hún á við andlega erfiðleika; nokkuð sem hún hefur fengið litla sem enga aðstoð við að vinna úr hér á landi. Í greinargerðinni er bent á að mansal er algengt í Gana, sérstak- lega hvað varðar konur og börn. Yf- irvöld í Gana eru ekki talin uppfylla lágmarkskröfur til þess að verjast mansali og úrræðin nánast engin fyrir fórnarlömb mansals þar í landi. Lokaákvörðun Útlendingastofnun- ar verður birt fjölskyldunni næsta þriðjudag. | vg Saad, Hanif, Jónína og Fadila. Þau búa nú í Njarðvík. Óttast að fjölskyldunni verði stíað í sundur – bæði börnin fædd á Íslandi Aðalsteinn hættir og RME undirbýr nýja heimasíðu Fjölmiðlar „Mér var bara boðin vinna og ákvað að breyta til,“ segir Aðalsteinn Kjartansson, en hann lætur af störfum sem blaðamaður hjá Reykjavík Media um mánaðamótin og tekur við sem einn af þremur um- sjónarmönnum Morgunút- varpsins á Rás 2. Aðalsteinn, ásamt Jóhannesi Kr. Kristjánssyni, vann úr og birti Panamaskjölin sem leiddu meðal annars til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þurfti að segja af sér embætti forsætisráðherra Íslands. Aðalsteinn segir að hann hafi unnið sem fréttamaður í sex ár og honum hafi fundist tímabært að breyta til. Jóhannes Kr. Kristjánsson, rit- stjóri Reykjavík Media, segir að brotthvarf Aðalsteins ekki til merk- is um breytingar á vef Reykjavík media, rme.is. „Við erum á fullu í undirbún- ingi, bæði á einhverjum fréttum úr Panamaskjölunum, og svo margt annað líka,“ segir Jóhannes. Hann segir einnig verið að undirbúa nýja heimasíðu, „hún er í þróun og ætti vonandi að vera tilbúin í haust.“ Jóhannes áréttar að Aðalsteinn hafi ákveðið að fylgja sínu hjarta og sjálfur styðji hann Aðalstein til allra góðra verka. |vg Aðalsteinn Kjart- ansson hefur störf á RÚV í lok mánað- arins. Héraðs- dómur Reykjaness framlengdi gæsluvarð- haldsúr- skurð yfir 19 ára pilti sem grunaður er um að hafa nauðgað tveimur fimmtán ára stúlkum, í Grafar- vogi og Njarðvík, á innan við viku í júlí. Stúlkurnar voru beittar grófu ofbeldi en hann er meðal annars sagður hafa reynt að kyrkja þær báðar. Hann mun sæta fjögurra vikna gæsluvarðhaldi, til 16. sept- ember á grundvelli almannahags- muna en hann er talinn hættuleg- ur. | þká Sakamál Talinn hættulegur Óli Kristján Ár- mannsson, einn reyndasti blaða- maður Frétta- blaðsins og fyrrum viðskiptaritstjóri blaðsins, hefur ráðið sig til starfa hjá KOM almanna- tengslum. Hann hætti störfum á blaðinu um miðja vikuna. Óli hefur starfað hjá 365 í tólf ár en neitar því að þetta tengist þeirri ólgu sem er sögð vera innan fyr- irtækisins en ákvörðun um nýja vinnu hafi verið tekin í júní. Það sé alltaf spennandi að takast á við ný verkefni. Fjölmiðlar Óli Kristján hættir á Fréttablaðinu Bandarískum hjónum um þrítugt og tveggja ára gömlu barni þeirra var bjargað úr sjónum innst í Vattar- firði, vestarlega í Reykhólahreppi, á fimmtudag. Ekki er vitað hvað olli því að fólksbíllinn sem fólkið ók lenti úti í sjó en hjón af Suðurnesjum áttu leið fram hjá og björguðu fólkinu á þurrt. Það var flutt með sjúkrabíl í Búðardal. Bjarni Blomsterberg, læknir þar, segir að meiðsl þeirra séu óveruleg og mikil mildi sé að ekki fór verr. Lögreglan á Patreks- firði vann að því að ná bifreiðinni á þurrt í gær. Allur farangur fólksins og skilríki voru í bílnum. Slys Bandarísk fjölskylda lenti í sjónum Alþjóðadeild rík- islögreglustjóra hefur verið falið að flytja fleiri einstaklinga úr landi það sem af er þessu ári, en allt árið í fyrra. Langstærsti hluti brottfluttra einstaklinga eru hælisleitendur en refsifangar, sem lokið hafa af- plánun, hafa einnig verið fluttir úr landi. Af þeim 131 einstaklingum sem fluttir hafa verið úr landi á þessu ári, voru 113 hælisleitendur en 18 brotamenn. Í fyrra var 128 einstaklingum vísað úr landi. 103 hælisleitendum og 25 brotamönnum. | þt Innflytjendur Fleirum vísað burt

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.