Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 12
ÚTSAL A ÚTSAL A Ú ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A Ú A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSA LA ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A TSALA ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A A ÚTSAL A ÚTSAL A ÚTSAL A Fatnaður 20 til 70% afsl. Skór 20 til 70% afsl. Svefnpokar 30% afsl. Bakpokar 30% afsl. Ekki missa af þessu Takmarkað magn! Faxafeni 8 • 108 Reykjavík • sími 534 2727 • e-mail: alparnir@alparnir.is • www.alparnir.is Tjöld 30% afsl. Hitabrúsar 20 til 50% afsl. Buxnaslá tilboð 3995 og margt eira ... TSALA 20- lÍs en ku ALP RNIR s LAUGAVEGI 176 | GLERÁRTORGI | KRINGLAN | LINDESIGN.IS SKÓLADAGAR MEÐ HVERRI SELDRI DÚNÚLPU FYLGIR 3 . 000 KR . ÁVÍSUN Á BARNAFÖT 100% Dúnúlpa 15.980 kr 1 - 10 ára ÍSLENSK HÖNNUN 12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 20. ágúst 2016 Hamingja er félagsauður „Í kerfinu sem við höfum hannað er gefin umbun fyrir allt annað en samfélagsþátttöku og samkennd, en það er akkúrat það sem hefur hvað beinast áhrif á hamingjuna.“ Ebbu er heitt í hamsi enda hefur hún velt þessum málum fyrir sér í áratugi. Hún hefur fengið tækifæri til að vinna með stjórnmálafólki en hef- ur samt aldrei dottið í hug að fara sjálf út í pólitík. „Ég er allt of viðkvæm til þess. Ef ég er undir miklu álagi og finn fyrir neikvæðum straumum þá bara græt ég og græt og græt endalaust. Svo ef ég væri pólitík- us þá myndi ég ef- laust standa mig vel á daginn en ég væri grátandi öll kvöld. En svo er ég líka bara komin með nóg af því að rífa kjaft við kerfið. Nú er ég orðin sextug og þegar maður er kominn á þennan aldur þá hættir maður að gera það sem aðrir ætlast til af manni og ger- ir bara það sem manni finnst skipta máli og gefur skít í þann sem fílar það ekki. Maður er ekki lengur hræddur. Ég á mitt líf, ég á húsið mitt, á samleið með kallinum mínum og börnin eru komin úr hreiðrinu.“ „Að skapa hamingju er eins og að búa til brauð, það er ekki nóg að hafa bara hveiti. Umhverfið er hráefnið fyrir hamingju. Félagsauður er eitt af því sem skiptir máli þegar kemur að hamingju. Það er til dæmis mikilvægt að þekkja nágranna sína og tilheyra hóp. Þess vegna er vaxandi tölvu- notkun barna á kostnað tengsla mik- ið áhyggjuefni. Fararmáti skiptir líka máli, ef þú hjólar t.d eða gengur, eða tekur strætó er líklegra að þú stoppir til að tala við fólk. Að eiga gæludýr hefur líka mikið að segja. Það er líka mikilvægt að ná áföngum, klára verk- efni eða ljúka prófi eða ná fjallstoppi.“ Hamingja er fullnæging „Ég hef oft líkt hamingjunni við full- nægingu,“ segir Ebba aðspurð um það hver hennar hamingjan sé. „Þetta er stutt tilfinning sem kemur í bylgjum og sum- ir örvast auðveldar en aðrir. Svang- ur maður get- ur orðið ham- ingjusamur Þú og hamingjan Samfélagið Svið stjórnmálanna Aðgengi að menntun Aðgengi að matvælum Jöfnuður og jafnrétti Samgöngu- og skipulagsmál Húsnæði, vatn og hreinlæti Atvinnumál Vinátta og félagstengsl Myndaðu tengsl við fjölskyldu, vini, samstarfsfólk og nágranna. Hreyfðu þig og vertu úti. Veldu hreyfingu sem hentar þér. Taktu eftir og njóttu augnabliksins. Gefðu af þér og sýndu þakklæti. Brostu! Haltu áfram að læra og prófaðu eitthvað nýtt. Sjálfstraustið eflist. Lífshættir einstaklingsins fái hann mat en það gefur þeim sem er saddur ekkert að fá mat. Fái flótta- maður hæli finnur hann til gleði og samkenndar en sú tilfinning getur fljótlega snúist upp í andhverfu sína fái hann hvorki vinnu né húsnæði. Hamingja getur aldrei verið stöðugt ástand.“ „Sjálf fór ég aldrei í hamingjuleit, hún bara kom á leiðinni,“ segir Ebba og brosir. „Ef það er eitthvað sem ég hef lært þá er það að þeir sem leita að hamingjunni, finna hana aldrei. Því hún er hér,“ segir Ebba og bendir á hjartað. „Svörin eru öll innra með okkur en ef manneskjan hefur ekki sjálfstraust eða er hrædd þá nær hún ekki að finna lyklana að hamingj- unni. Stundum þurfum við aðstoð til að finna þessa lykla og það er allt í lagi. Tíminn kemur svo sterkt inn. Í þjóðfélagi þar sem enginn hefur tíma til að sinna hvort öðru er meiri hætta á að við tínum hamingj- unni.“ Hamingj an „Nú eru að koma kosningar og ef ég mætti gefa framtíðarstjórnmálamanni ráð þá ætti hann að hugsa hvernig sé best að efla sjálfstraust sinna samfélagsþegna, í stað þess að ala á ótta.“ „Ef ég væri pólitíkus þá myndi ég eflaust standa mig vel á daginn en ég væri grátandi öll kvöld.“

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.