Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 37

Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 37
 „Það eru fáir fastir punktar í mínu sjónvarpsglápi. Við höfum fylgst með hallærislegu þáttunum um glæpasagnahöfundinn Castle frá byrjun með unglingnum á heimilinu en í seinni tíð hefur hann fljótlega gefist upp þegar poppið er búið. Það er einhver sjarmi yfir þáttunum sem eru oftast fullir af klisjum og misfyndnum „one-linerum“. Að öðru leyti er það nokkuð tilviljunarkennt hvað ég dett inn í. Við kaupum engar áskriftir að sjónvarpsstöðv- um eða streymisþjónustum þó það hafi komið til tals að kaupa áskrift að enska boltanum. Yfirleitt sperri ég eyrun þegar „hér á RÚV“ konan segir að í vænd- um sé þáttur þar sem einhver „glímir við snúin sakamál“. Þó að dagskrárkynningarnar séu ekki alltaf mjög frumlegar eru RÚV-liðar naskir á gott glæpó. Ég hef líklega horft á vel flestar danskar, sænskar og breskar seríur sem sýndar hafa verið undanfarin ár Þeir félagar (þó þeir þekkist ekki neitt) Wallander og Barnaby hafa oft orðið tilefni til þess að við poppum. Það er reyndar undir hæl- inn lagt hvort við náum að halda okkur vakandi þar til morðinginn er gómaður. Hins vegar heldur Vera mér alltaf vakandi því klókari og frumlegri leynilöggu er vart hægt að finna eftir að Inspector Morse kvaddi skjáinn.“ Sófakartaflan Líf Magneudóttir, borgarfulltúri RÚV-liðar naskir á gott glæpó Hrifin af góðu glæpó Líf Magneudóttir hrífst af Veru, Wallander og Barnaby. Mynd | Hari Þær tvær Stöð 2 Þær tvær, sunnudag klukkan 20. Önnur þáttaröð þessara bráð- fyndnu sketsaþátta með leikkon- unum Völu Kristínu Eiríksdóttur og Júlíönu Söru Gunnarsdóttur en þær skrifa og leika öll hlut- verkin sjálfar. Leikkonunar bregða sér í hin ýmsu gervi og úr verða skrautlegar persónur sem takast á við fjölbreytileika tilverunnar. Spennutryllir með Sally Field í aðalhlut- verki Netflix Eye for an Eye. Dóttur Karenar McCann er nauðg- að og hún myrt á hrottalegan hátt. Þegar lögreglan sleppir hin- um grunaða, Robert Doob, gegn tryggingu í stað þess að loka hann inni ákveður Karen að taka lögin í sínar hendur og ætlar sér að ná fram hefndum. Eiginmaður Karenar kemst á snoðir um fyrir- ætlanir hennar og stöðvar hana – en þá lætur Robert Doob til sín taka á nýjan leik. Brúðgumi með bakþanka Netflix Forces of Nature. Ben Holmes er á leiðinni til Savannah með flugi en þar hyggst hann hitta brúði sína og ganga í hjónaband. Smávægilegt óhapp verður til þess að ekkert verður af flugtaki en Ben þarf að kom- ast leiðar sinnar hið snarasta og bregður á það ráð að leigja bílaleigubíl, ásamt hinni dular- fullu Sarah sem var farþegi í sömu flugvél. Ben og Sarah lenda í ýmsu á leiðinni sem verður til þess að Ben þarf að hugsa sig tvisvar um – er hann í raun að fara að giftast réttri konu? Spennandi gam- anmynd með Tom Hanks Sjónvarp Símans The Ladykillers, laugardagur klukkan 20.15. Hér er um að ræða endurgerð á vinsælli gamanmynd frá árinu 1955. Kennari úr suðurríkjum Bandaríkjanna safnar saman hópi af misgáfulegum mönnum til þess að ræna spilavíti. Á meðan þeir skipuleggja ódæðið leigja þeir herbergi hjá gamalli konu sem er klókari en þá grunar. Sú gamla kemst á snoðir um fyrirætlanir þeirra og nú verða þeir að ryðja henni úr vegi – sem á eftir að reynast erfiðara en þá grunar. Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Menningarnótt í Gallerí Fold Sýningaropnun kl. 15-16 Ratleikur fyrir börn og fullorðna kl. 11–19 Leikurinn felst í að finna listaverk sem sýnd eru í galleríinu. Við hvert þeirra er lítil frásögn og í henni bókstafur sem er hluti af orði sem gestir eiga að finna út. Skapað af list Listamenn vinna að verkum sínum og spjalla við gesti Opið til kl. 19 á Menningarnótt · lokað sunnudag Ljósmyndasamkeppni kl. 11–19 Taktu mynd í eða við Gallerí Fold þar sem uppáhaldsverkið þitt kemur við sögu. Sendu myndina á Instagram og merktu hana með #gallerifold. Veitt verða verðlaun fyrir listrænustu myndina, fyndnustu myndina og bestu myndina. Geirix Túlkun Listamannaspjall kL.16 Haraldur Bilson kl. 11-13 Þorgrímur Andri Einarsson kl. 13-15 Magnús Jónsson kl. 15-17 Soffía Sæmundsdóttir kl. 17-19 Mýrmann Odee Street Drop Listilegur ratleikur kl. 11-15 Listaverkum eftir Odee er komið fyrir í miðborginni og þeir sem finna þau mega eiga þau. Þeir sem koma með verkin í Gallerí Fold fyrir kl. 15 geta fengið þau árituð af listamanninum. Vísbendingar verða gefnar á Facebook síðu gallerísins. Gallerí Fold býður upp á ókeypis barnamyndatöku í samstarfi við Photographer.is. Innrammarinn sér um að prenta myndirnar á staðnum. Skráning á staðnum er nauðsynleg og takmörkuð pláss eru í boði. Ókeypis barnamyndataka 100. listmunauppboð Gallerís Foldar Kynning kl. 11-19 Framundan er 100. listmunauppboð Gallerís Foldar sem verður með hátíðarbrag. Við leitum að úrvalsverkum á þetta tveggja daga uppboð og kynnum þau verk sem boðin verða upp. Sýningaropnun · uppboð kl. 14-15 Listamannaspjall kl. 15 SILOHUETTOES …sjónvarp13 | amk… LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2016

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.