Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 40
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein- blöðungum, bæklingum, vegg- spjöldum, skýrslum, eða nafn- spjöldum? Þá gæti stafræna leiðin hentað þér. Sendu okkur línu og fáðu verðtilboð. STAFRÆNT alla föstudaga og laugardaga Dansar á Kúbu Madonna hélt upp á 58 ára afmælið sitt á dögunum. Það gerði hún á Kúbu, dansandi á borðum, hrókur alls fagnaðar. Unnið í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar Menningarfélag Akur-eyrar hefur sett saman metnaðarfulla dagskrá fyrir veturinn sem hefst 2. september næstkomandi með frumsýningu á Helga magra í Samkomuhúsinu. Þetta er ný kómísk og kærleiksrík spunasýn- ing sem hefur sögulega tengingu við Matthías Jochumsson og Eyjafjörð. Engin sýning er eins, allar eru einstakar. Þessi fyrsta frumsýning af mörgum þennan veturinn slær tóninn í dagskrá Menningarfé- lagsins í ár sem einkennist af fjölbreytni. Á dagskránni verður allt frá frumsköpuðum verkefn- um, þar sem ungt sviðslistafólk af svæðinu fær tækifæri til að blómstra, yfir í samstarfsverkefni við Borgarleikhúsið, Hörpu og St. Petersburg Festival Ballet. Auk Helga magra verða tvær leiksýningar frumsýndar fyr- ir áramótin. Fyrst er að nefna Hannes og Smára sem verður í nóvember og unnin er í sam- starfi við Borgarleikhúsið. Þetta er hárbeitt spaug með brellum og tónlist sem mun fylla Samkomu- húsið hlátri ef ekki Akureyri alla. Þegar líður að jólum verður boð- ið upp á bráðhressandi og ekki síst hjartastyrkjandi jólasýningu Stúfs í Samkomuhúsinu, en hann hefur verið að kynna sér leikhús- ið og verið duglegur að æfa sig til að ná frægð og frama í mann- heimum. Hin forvitnilega sýning Borg- arasviðið – leiðsögn fyrir inn- fædda, samanstendur af fjör- ugum og einlægum frásögnum akureyrskra kvenna um það hvernig er að nálgast nýtt sam- félag verður tekin aftur til sýn- ingar í byrjun september. Auk þess eru fjórar forvitnilegar gestasýningar fram að áramót- um í Samkomuhúsinu; Elska, sem er nýtt skemmtilegt norðlenskt heimildarverk sem vermir fólki um hjartarætur, Engi, töfrandi brúðuleikhús fyrir börn, Enginn hittir einhvern, kraftmikið og ástríðufullt leikrit um sambönd fólk og Listin að lifa, spennu- þrungin ástarsaga með söngvum. Það er leikhópurinn Næsta leik- rit, sem skipaður er ungu fólki, sem á veg og vanda að þeirri sýningu en hópurinn er einn af græðlingunum sem fá tækifæri til að öðlast styrk og blómstra hjá Menningarfélaginu í vetur. Ekki tekur svo síðra við eftir áramót því í febrúar verður nýtt íslenskt verk fyrir börn og ung- linga frumsýnt. Það kallast Núnó og Júnía og er úr smiðju sömu höfunda og gerðu leikgerð Pílu Pínu sem sló rækilega í gegn á síðasta leikári. Í október mun Sinfóníuhljóm- sveit Norðurlands ásamt Stór- sveit Reykjavíkur bjóða upp á Rhapsody in Blue og glænýjan konsert fyrir stórsveit og sin- fóníuhljómsveit ásamt ljúfum og kröftugum Frank Sinatra lögum. Jólatónleikar Sinfóníuhljóm- sveitarinnar í ár eru hvorki meira né minna en einn vinsælasti ball- ett allra tíma, Hnotubrjóturinn í viðhafnarbúningi St. Peters- burg Festival Ballet við tónlist Tchaikovskys. Þetta er frum- sýning á Íslandi en verkefnið er unnið í gegnum menningarbrú Hofs við Hörpu. Það er mikill hvalreki á fjörur menningarunn- enda að fá Hnotubrjótinn norð- ur yfir heiðar og sýnir metnað Menningarfélags Akureyrar í hnotskurn. Þá er ótalinn fjöldi viðburða, stórir sem smáir sem eru í Hofi. Í haust verða tónleikar í tilefni af sjötugsafmæli Freddie Mercury, jólatónleikar á vegum RIGG-við- burða, Forty Licks þar sem öll bestu lög The Rolling Stones verða flutt, uppistand frá Mið-Ís- landi, ráðstefnur, fundir og margt fleira. Húsið verður því stútfullt af lífi frá morgni til kvölds. Segja má að Menningarfélag- ið sé nokkurs konar gróðurhús sem fóstrar og nærir listræna hæfileika og metnað og er þannig uppspretta nýrra og krefjandi verkefna eins og dagskrá ársins sýnir vel. Tilraunaverkefnið sem sam- eining Leikfélags Akureyrar, Menningarfélagsins Hofs og Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands er undir merkum MAk er enn að slípast saman en þykir lofa mjög góðu. Samlegðaráhrifin eru augljós, ekki síst hvað varð- ar hæfileika og kraft starfsfólks sem og nýtingu á húsnæðinu, þ.e. Menningarhúsinu Hofi og Samkomuhúsinu. Það er alveg ljóst að til er orðinn vettvangur sem hefur alla burði til að efla og styrkja menningarlíf á Norður- landi öllu enn frekar. Þessi metnaðarfulla dag- skrá MAk verður kynnt á Ak- ureyrarvöku og um leið hefst forsala á áskriftarkortum. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.mak.is. Helgi magri Frá æfingu á Helga magra sem frumsýnt verður í Samkomuhúsinu í byrjun næsta mánaðar. Þetta er ný kómísk og kærleiksrík spunasýning sem hefur sögulega tengingu við Matthías Jochumsson og Eyjafjörð. Fjölbreytt og metnaðarfull menningardagskrá Viðburðaríkur vetur framundan hjá Menningarfélagi Akureyrar. Veisla um jólin Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar í ár er hvorki meira né minna en einn vinsælasti ballett allra tíma, Hnotubrjóturinn í viðhafnarbúningi St. Petersburg Festival Ballet, við tónlist Tchaikovskys. Segja má að Menningarfélag- ið sé nokkurs konar gróður- hús sem fóstrar og nærir listræna hæfileika og metnað og er þannig uppspretta nýrra og krefjandi verk- efna eins og dagskrá ársins sýnir vel. Steinar Bragi undir- býr bók í Indónesíu Einn þeirra höfunda sem boðað hafa bók í komandi jólavertíð er Steinar Bragi sem sló eftirminnilega í gegn með Konum árið 2007. Steinar hefur undanfarið haldið sig í Indónesíu og ferðaðist þar vítt og breytt um eyjarnar milli þess sem hann vann hörðum höndum að handritinu sem nú styttist í að líti dagsins ljós. Það eru orðin 2 ár síðan Kata kom út, sem vakti mikla athygli, en margir orðuðu þó Steinar við bók skrifaða undir dulnefninu Eva Magnúsdóttir sem kom út í fyrra og hlaut fádæma góðar viðtökur. Suede til Íslands? Mikið líf er í tónleikahaldi hér á landi. Framundan eru stærstu tónleikar Íslandssögunnar í næsta mánuði þegar hátt í fjörutíu þúsund manns munu sjá Justin Bieber í Kórnum í Kópavogi. Þar fyrir utan er reglulega tilkynnt um væntanlegar komur erlendra tónlistarmanna og tónleikahaldar- ar eru greinilega með margt á prjónunum. Þannig er Þorsteinn Stephensen, einn upphafsmanna Iceland Airwaves og núverandi bókari hjá Secret Solstice, að velta því fyrir sér að flytja bresku sveitina Suede til landsins. Þetta mátti lesa á Facebook-síðu hans í vikunni þegar hann spurði vini sína hvort áhugi væri fyrir að sjá Suede. Ekki mátti ráða af viðbrögðunum hvort mikill áhugi væri á og því óljóst hvort af komu sveitarinnar verður. Suede hefur einu sinni troðið upp á Íslandi. Það var á Iceland Airwaves árið 2000.

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.