Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 20. ágúst 2016
Eins og lóan er vorboði, er það boðberi kosninga að ráðamenn viðri áhyggjur sínar af því að innan veggja
fjölmiðla þrífist óværa, sem stund-
um er kölluð skoðun.
Formaður Sjálfstæðisf lokks-
ins reið á vaðið og ritaði reiðilega
ádrepu á vegginn sinn um að inn-
an fjölmiðlanna þrifist ekki bara
skoðun heldur skoðanir. Allt samfé-
lagið logar nú í deilum um skoðan-
ir fjölmiðla og fátt annað kemst að.
Á meðan laumar félagsmálaráð-
herra sér úr röðum ríkisstjórnar-
innar þegar kemur að atkvæða-
greiðslu um „skínandi bjarta,“ fimm
ára áætlun Bjarna Benediktssonar,
af því ráðherrann er svo illa haldinn
af annarri skoðun en þar kemur
fram. Það er ekkert hægt að segja
um það. Líklega springur stjórnin
eða hangir á horriminni fram á kjör-
dag. Það er ekki gott að í ríkisstjórn-
um sé hver með sitt gjallarhorn að
básúna skoðanir, svo vitnað sé í orð
formannsins, en hann átti reyndar
við fjölmiðla.
Skoðanir eru smitsjúkdómur sem
herjar á lýðræðissamfélög.
Fjölmiðlar eru eitt af þeim tækj-
um sem við höfum til að mynda
okkur skoðanir og átta okkur í þjóð-
félagsumræðunni. Það er mikilvægt
að þar séu uppi margar skoðanir og
margar raddir, að þar fari fram virk
umræða og greining á samfélaginu.
Til þess þarf að verja peningum
í fréttir og fréttaskýringar en ekki
bara dægurmálaþætti sem laða að
kostun og auglýsingar.
Fréttir eiga að vera hlutlægar og
halda sig við staðreyndir og þær
ályktanir sem draga má af þeim.
Þær eiga hinsvegar ekki að vera
hlutlausar og leyfa allskyns bulli að
vaða uppi þótt staðreyndirnar liggi
fyrir. Slíkt hlutleysi hefur kallað
yfir samfélagið endalausa málfundi
stjórnmálamanna þar sem sannleik-
urinn er víðsfjarri.
„Hún gerist æ sterkari tilfinningin
að vegna manneklu og fjárskorts
séu viðkomandi miðlar orðnir lítið
annað en skel, umgjörð um starf-
semi þar sem hver fer fram á eigin
forsendum,“ segir Bjarni Benedikts-
son í ádrepu sinni.
Vegna þessara orða Bjarna, sem
því miður stappa nærri sannleikan-
um, allavega hvað varðar manneklu
og fjárskort, hefur fjölmiðlafólk
réttilega bent á þá staðreynd að
fjölmiðlar hér búa við allt annað
rekstrarumhverfi en annars stað-
ar á Norðurlöndum þar sem litið er
á öfluga fjölmiðla sem hornsteina
lýðræðis.
Hér njóta einkareknir fjölmiðl-
ar ekki ríkisstyrkja, Ríkisútvarpið
veður uppi á auglýsingamarkaði og
drepur af sér samkeppni og virð-
isaukaskattur á dagblöð var hækk-
aður úr 7 prósent í 11 prósent. Jafn
sjálfsagt og það þykir að ívilna öðr-
um atvinnugreinum hefur það hing-
að til verið eitur í beinum margra
stjórnmálamanna, að það þurfi að
bæta rekstrarumhverfi fjölmiðla og
það kosti jafnvel peninga.
Fimm ára áætlun Bjarna Bene-
diktssonar og ríkisstjórnarinnar er
orðin tóm. Hún er kveðjubréf flokka
sem eru að fara úr stjórnarráðinu
og verða líklega ekki kosnir aftur
til að stjórna, allavega ekki saman.
Enda hafa stjórnarliðar meira og
minna verið fjarverandi meðan hún
var til umræðu og tveir þeirra gátu
ekki hugsað sér að ýta á takkann
þegar hún var borin undir atkvæði.
Kannski ættu menn að nota þenn-
an tímabundna áhuga á fjölmiðlum
til að koma sér saman um fimm ára
áætlun um rekstrarumhverfi fjöl-
miðla og gera þeim kleift að rétta
úr kútnum. Það er þó ólíklegt að
það verði.
Stjórnmálamenn úr öllum flokk-
um eiga það sameiginlegt að kunna
afar illa við skoðanir fjölmiðla en
bara ef þær fara ekki saman við
þeirra eigin skoðanir. Kannski
er ekki verið að kalla eftir mörg-
um ólíkum röddum og hlutlægum
vinnubrögðum? Kannski var Bjarni
Ben bara að kalla eftir þessari „einu
réttu ópólitísku skoðun“ sem leggur
þögula blessun sína yfir Sjálfstæðis-
flokkinn og opinberan vilja hans.
Í núverandi umhverfi fjölmiðla
hafa uppeldisskilyrði hennar oft og
tíðum verið góð, þar sem stjórnmál
og fjármagn haldast oftar en ekki í
hendur.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
UPPELDIS-
SKILYRÐI
FJÖLMIÐLA
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Á leikskólanum
Stjórnarbóli
koma upp
leiðindi, nánast
á hverjum degi…