Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 26
Á leið til Banda ríkjanna
að hitta útgefendur
Eftirsótt
Plötufyrirtæki
í Bandaríkj-
unum hafa
sýnt tónlist
Glowie og
StopWaitGo
mikinn áhuga.
Það er alltaf stress í mér áður en ég fer á svið en það þýðir bara að mig langar að gera vel,“ segir söngkonan Sara
Pétursdóttir, betur þekkt sem
Glowie. Þegar blaðamaður náði
tali af henni var hún í óða önn að
undirbúa sig fyrir Tónaflóð Rásar
2 sem hefst klukkan 20 í kvöld á
Arnarhóli, en hún mun stíga fyrst
á svið.
„Ég verð um 25 mínútur á
sviðinu og er búin að leggja smá
vinnu í þetta. Ég verð með dansara
og band með mér. Ég held að
þetta verði því bara nokkuð flott.“
Glowie segir að það fari oft mikill
tími í að undirbúa hverja tónleika,
meiri tími en fólk heldur. „Þetta er
mikil vinna þó það líti ekki alltaf
út fyrir það. Ég vil líka gera allt
rosalega vel og vanda mig hvernig
ég geri hlutina.“
Glowie sigraði í Söngvakeppni
framhaldsskólanna árið 2014 og
vakti strax athygli strákanna í
StopWaitGo sem fengu hana til að
syngja fyrir sig lag sem þeir voru
að semja. Í kjölfarið tók tónlistin
eiginlega alveg yfir líf hennar. Og
nú eru spennandi tímar framund-
an. „Ég er að búa til nýja tónlist
með strákunum og við erum að
undirbúa ferð til Bandaríkjanna.
Plötufyrirtæki í Bandaríkjunum
hafa sýnt okkur mikinn áhuga, og
reyndar í Bretlandi líka. Þau vilja
fá okkur út, þar sem við munum
hitta útgefendur. Svo verður bara
að koma í ljós hvað kemur út úr
því. Það er mjög spennandi.“
Þegar Glowie sigraða í Söngva-
keppni framhaldsskólanna var
hún að læra hárgreiðslu í Tækni-
skólanum en hún ákvað að hætta
þegar tónlistin tók yfir. „Það var
orðið svo mikið að gera hjá mér.
Ég sá að það væri ekki alveg að
fara að ganga að væri bæði í skól-
anum og sinna tónlistinni. Ef ég er
í skóla þá vil ég sinna því hundrað
prósent, nenni ekki að vera að fara
í viðtöl og eitthvað slíkt.“ En hún
er mjög sátt við þessa þróun enda
er draumur hennar að rætast, að
starfa við tónlist er það sem hana
langar að gera. „Þetta er alveg
geggjað.“
Sara Pétursdóttir, eða Glowie, stígur fyrst listamanna á svið á
Tónaflóði Rásar 2 í kvöld. Hún lofar flottu atriði.
Stúlkan með mjóbakshúðflúrið
Neitar að sjá eftir „trampstampinu“.
Leikkonan, handritahöfundurinn
og uppistandarinn Amy Schumer
gerist einlæg í nýrri bók, The girl
with the lower back tattoo, eða
Stúlkan með mjóbakshúðflúrið.
Í bókinni deilir Amy með lesend-
um mistökum sínum, sársauka og
gleði. Hún vill alls ekki meina að
um sjálfsævisögu sé að ræða. „Ég
er bara nýorðin 35 ára svo ég á
langt í að vera sjálfsævisöguhæf,“
segir leikkonan.
Og titillinn; Schumer fékk sér
húðf lúr þegar hún var tvítug,
ekki svo lítið „tribal-trampsta-
mp“ á mjóbakið sem hún neitar
að skammast sín fyrir eða sjá eftir.
„Í hvert einasta skipti sem ég af-
klæði mig fyrir framan karlmann
og hann sér það þá veit hann líka
í hjarta sínu að ég er rusl og ég tek
mjög slæmar ákvarðanir. En ég lofa
ykkur frá innstu hjartarótum að
mér er nákvæmlega sama. Ég ber
mistök mín eins og heiðursorðu
og ég hampa þeim. Þau gera mig
mennska.“ Schumer segir þennan
boðskap raunar vera tilgang bók-
arinnar, að fólk taki sig í sátt fyrir
það sem það er og hætti að eyða
tíma í að skammast sín fyrir mistök
sín. Bókin hefur vakið mikla lukku,
ekki síst kaflinn þar sem hún birt-
ir kafla úr gömlum dagbókum frá
unglingsárum. Bókin er fáanleg á
Amazon.
Sér ekki eftir neinu Amy
Schumer neitar að skamm-
ast sín fyrir ákvarðanir
sem hún tók í góðri trú á
yngri árum.
Hárkollur eru himnasending
Það er ekki tekið út með sældinni að vera kvik-
myndastjarna, það hefur Keira Knightley fengið að finna
á eigin skinni. Eða hári, öllu heldur. Eftir að hafa leikið í
yfir 20 ár hin fjölbreyttustu hlutverk hefur hárið á henni
heldur betur fengið að kenna á því. Liturinn og efnin sem
hefur þurft að nota til þess að skapa hinar ýmsu persónur
hafa farið svo illa með lokkana að hárið byrjaði bókstaflega að
hrynja af henni. Keira tók því til þess bragðs að byrja að nota hárkollur í stað
þess að láta meðhöndla hárið með kemískum efnum. Og árangurinn lét ekki
á sér standa, hárið hefur sprottið á ógnarhraða síðustu 5 árin og hárlosið
heyrir sögunni til.
Lifir hefðbundu kynlífi
Kynbomban Amber Rose segist lifa mjög hefðbundu kynlífi
þrátt fyrir að fólk haldi gjarnan að hún hafi reynt ýmislegt
í þeim efnum. Hún svaraði 29 spurningum fyrir slúðursíð-
una fishwrapper.com þar sem þetta kom meðal annars
fram. Hún telur sig til dæmis vera of eigingjarna í kynlífi til
að geta farið í „trekant“, sem hún hefur þar af leiðandi ekki
prófað. Þá er hún ekki hrifin af einnar nætur gamni og hefur
ekki prófað endaþarmsmök.
Amber segist þó ekki útiloka að eitthvað af þessu muni gerast á lífsleiðinni,
en þetta hefur allavega ekki átt sér stað á hennar 32 ára löngu ævi.
Gaf alla peningana
Johnny Depp þurfti að borga Amber Heard 7 milljónir
dollara í sáttafé í illvígri deilu fyrrverandi hjónanna. Amber
ætlar að gefa alla peningana til tveggja góðgerðarmála;
ACLU sem eru samtök sem berjast gegn ofbeldi gegn kon-
um og Children’s Hospital í Los Angeles þar sem hún hefur
unnið sem sjálfboðaliði í 10 ár. Hún lýsti því yfir að peningar
hafi aldrei verið markmið hennar með skilnaðinum, heldur
réttlæti. Hún vonar að aurarnir komi að góðum notum og
muni ýta undir jákvæða breytingar í lífi þeirra sem mest
þurfa á því að halda. Forsvarsmenn ACLU og spítalans eru
að vonum himinlifandi með þennan góða styrk og voru afar snortin yfir
þessum óvænta styrk.
„Þetta var ekki alvöru lengur“
Kristen Stewart sagði frá því nýlega að samband hennar
og Robert Pattinson hefði verið meira eins og „vara“ en
nokkurt annað. Kristen segir frá því að hún sé í dag í ástar-
sambandi við konu og það sé mikill munur á því sambandi
og sambandinu sem hún átti með Robert. „Fólk þráði það
svo heitt að við Rob værum saman að samband okkar var
bara gert að „vöru“. Þetta var ekki alvöru lengur og mér
fannst það ógeðslegt. Mig langar ekki að fela mig eða það sem
ég geri. Ég vil bara ekki vera sögupersóna í skemmtanabransanum,“ sagði
Kristen. Kristen segist vilja passa vel upp á einkalíf sitt en hún hafi viljað
koma þessu frá sér.
…fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2016
Þetta er mikil
vinna þó það
líti ekki alltaf út fyrir
það. Ég vil líka gera
allt rosalega vel og
vanda mig hvernig
ég geri hlutina.