Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 20.08.2016, Side 6

Fréttatíminn - 20.08.2016, Side 6
6 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 20. ágúst 2016 Benedikt Einarsson fjárfestir er einn af hluthöfum orkufyrirtæk- isins Arctic Hydro sem vill reisa virkjun nyrst í Fnjóskadal á Norð- urlandi. Hann er auk þess stjórn- arformaður í fyrirtækinu. Bene- dikt er sonur Einars Sveinssonar, föðurbróður Bjarna Benedikts- sonar fjármálaráðherra, og er Frændi fjármálaráðherra vill reisa virkjun í Fnjóskadal Viðskipti Fyrirtækið Arctic Hydro hyggst reisa Hólsvirkjun á Norðurlandi og er nú þegar búið að gera samning um sölu á orkunni. Hluthafar fyrirtækisins áttu einnig virkjunar- kostinn í Svartá í Bárðardal en seldu hann til Þorsteins Más Baldvinssonar í Samherja, Heiðars Guðjónssonar og fleiri fjárfesta. Framkvæmdastjóri Arctic Hydro segir eigendurna ekki ætla að selja virkjunarkostinn Hólsvirkjun. Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is hann orðinn mjög umsvifamikill í íslensku viðskiptalífi ásamt föð- ur sínum. Til marks um þetta situr Benedikt meðal annars í stjórnum 27 fyrirtækja. Feðgarnir eiga meðal annars hlut í kísilmálmverksmiðju Thorsil, greiðslumiðlunarfyrirtæk- inu Miðlun, rútufyrirtækinu Kynn- isferðum, bleikjueldisfyrirtækinu Matorku og bifreiðaskoðunarfyr- irtækinu Tékklandi, svo fátt eitt sé nefnt. Aðkoma Einars Sveinssonar og fjárfestingafélags hans að kaup- unum á hlutabréfunum í Borgun hefur verið tortryggð í opinberri umræðu þar sem söluaðilinn var Landsbankinn, ríkisbanki sem heyrir undir Bankasýslu ríkisins og fjármálaráðuneyti Bjarna Bene- diktssonar. Bjarni hefur borið þær ávirðingar af sér og meint aðkoma hans að Borgunarmálinu hefur ekki verið sönnuð. Þá hafa skattaí- vilnannir frá ríkinu til Thorsils og Matorku einnig verið gagnrýndar talsvert á opinberum vettvangi og ýjað að því að óeðlilegt sé að fyrir- tæki í eigu skyldmenna ráðamanna njóti fyrirgreiðslu frá ríkinu. Nú er skyldmenni Bjarna einnig komið út í virkjanabransann, geira þar sem umtalsverð viðskipti þurfa að eiga sér stað við opinbera aðila og sveitarfélög. Í síðasta mánuði veitti sveit- arstjórnin í Þingeyjarsveit Arct- ic Hydro heimild til að vinna deiliskipulag fyrir svæðið á eigin kostnað. Í mánuðinum þar á und- an var kynningarfundur í sveitinni með íbúum þar sem virkjunin var kynnt. Um er að ræða 5.2 MW vatnsaflsvirkjun í Hólsá og Göngu- skarðsá. Eignarhald á virkjun- um, litlum eða stórum, getur eðli málsins samkvæmt verið mjög hag- kvæmt og eru víða á landinu minni virkjanir sem framleiða rafmagn sem svo selt er inn á rafmagnskerf- ið í landinu. Eigandi virkjunar get- ur því hagnast vel á því og auðvitað þeim mun meira eftir því sem hún er stærri. Skírnir Sigurbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Arctic Hydro, segir að hann bindi vonir við að hægt verði að hefja framkvæmdir við virkjunina næsta sumar. „Það er ekkert sem bendir til þess að við fáum ekki leyfi til framkvæmdanna og við erum búnir að gera samning um sölu á orkunni.“ Skírnir og faðir hans, Sigurbjörn Skírnisson, stækk- uðu Skarðsvirkjun í Dalsmynni upp í 85kw og má rekja upphaf Arctic Hydro til þeirra framkvæmda. Þeir hafa því reynslu af virkjunarfram- kvæmdum. Skírnir segir að Benedikt Einars- son hafi komið inn í virkjunarverk- efnið sem fjárfestir vegna hás þró- unarkostnaður. „Hann á í Arctic Hydro. Þetta eru milljarðaverkefni, menn þurfa mikið eigið fé, þannig að hann er með okkur í þessu.“ Eigendur Arctic Hydro áttu líka fyrirtækið SBS Orku sem fyrirhugað er að reisi Svartárvirkjun í Bárðar- dal í Þingeyjarsýslu en talsverðar deilur hafa verið um þá virkjun vegna umhverfisverndarsjónar- miða. Eigendur þess fyrirtækis í dag eru fjárfestingafélagið Traðar- steinn ehf., sem er í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar og fyrrverandi eiginkonu hans, Helgu Guðmunds- dóttur, fjárfestirinn Heiðar Guð- jónssonar og félag í eigu fjárfest- anna Péturs Bjarnasonar og Auðuns Svafars Guðmundssonar. Skírnir segir að ástæðan fyrir því af hverju eigendur Arctic Hydro seldu virkjunarkostinn í Svartá til annarra fjárfesta sé að kostnað- urinn við rannsóknirnar á kostin- um hafi verið það miklar. „Það er endalaus óvissa með svona ver- kefni. Þetta var í rauninni spurn- ing um það hvort við myndum taka þennan kostnað á okkur sjálfir eða ekki. Við vorum bara á kafi í rann- sóknarvinnu fyrir virkjunina þegar við seldum þetta. Það var bara kom- inn kostnaður. Óvissan er mikil þar til tekjur byrja að koma inn. Vegna stöðu á fjármálamörkuðum þá urðu menn að fara þessa leið. Eftir á að hyggja hefði verið betra fyrir okk- ur að byrja bara með einn virkjun- arkost.“ Aðspurður um hvort Arctic Hydro ætli sér líka að selja virkj- unarkostinn Hólsvirkjun, eins og Svartárvirkjun, segir hann að svo sé ekki. „Alls ekki. Þetta fyrirtæki ætl- ar sér að verða öflugt félag í endur- nýjanlegri orkuvinnslu á Íslandi og Hólsvirkjun er einn liður í því.“ Fyr- irtækið hefur sömuleiðis verið að skoða virkjunarkosti annars staðar á landinu en Skírnir segir að nú ein- beiti það sér að Hólsvirkjun. Eigendur Arctic Hydro seldu annan virkjunarkost í Þingeyjarsýslu, Svart- árvirkjun, til Þor- steins Más Baldvins- sonar og fleiri fjárfesta árið 2014. Framkvæmdastjórinn segir að Hólsvirkjun verði ekki seld. Benedikt Einarsson er einn af hluthöfum Arctic Hydro sem áformar að reisa virkjun í Fnjóskadal. Þannig eru fjárfestarnir í Engeyjarættinni, skyldmenni Bjarni Benediktssonar fjármálaráðherra, líka komnir út í virkjanabransann á Íslandi. - hvar sem þú ert og hvert sem þú stefnir Viltu efla þig í eigin atvinnurekstri? Háskólinn á Bifröst hefur í tvo áratugi boðið upp á rekstrarnámið Máttur kvenna fyrir konur sem vilja öðlast þekkingu og færni í rekstri fyrirtækja. Kennsla fer fram í fjarnámi þar sem þátttakendur geta sjálfir stjórnað því hvenær horft er á fyrirlestra og verkefni unnin, allt eftir hentugsemi hvers fyrir sig. Á tímabilinu verður boðið upp á tvær vinnuhelgar á Bifröst með kennara og samnemendum þar sem lögð er áhersla á hagnýtingu náms og hópavinnu nemenda. • Upplýsingatækni • Fjármál og bókhald • Stofunun fyrirtækja og rekstrarform • Markaðs- og sölumál Á vinnuhelgum verður ennfremur lögð áhersla á • Námstækni • Nýsköpun og frumkvöðla • Skapandi stjórnun • Framsækni og tjáningu Máttur kvenna er 13 vikna nám sem hefst með vinnuhelgi 3. september og lýkur með útskrift á Bifröst þann 29. nóvember 2016. Verð fyrir námið er 149.000 kr. og innifalið er kennsla í fjarnámi og tvær vinnuhelgar með gistingu og mat. Vinnuhelgar verða 3.-4. september og 1.-2. október 2016. Nánari upplýsingar á bifrost.is Námið byggir á fjórum kjarnanámskeiðum

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.