Fréttatíminn - 20.08.2016, Side 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 20. ágúst 2016
GOTT
UM
HELGINA
Karnival á Klapparstíg
Dj Margeir og OFUR í samstarfið við Nova kynna Karnival á Klapparstíg
á Menningarnótt. Meðal þeirra sem koma fram eru sjálfur Dj Margeir,
Högni, SíSí Ey og fleiri. Það verður poppveisla á Klapparstíg í dag.
Hvar? Klapparstíg
Hvenær? Í dag kl. 16.30
Ljóðið við slippinn
Kaffislippur og Bókmenntaborgin
Reykjavík taka höndum saman
á Menningarnótt og bjóða upp á
fjöruga orðlistaveislu við gömlu
höfnina með sjö ungum skáldum.
Alls kyns Hispursmeyjar flytja
og slamma ljóð en í forsvari fyrir
hópinn er ljóðskáldið og rappar-
inn Vigdís Ósk Howser Harðar-
dóttir. Auk hennar koma fram þau
Ágústa Björnsdóttir, María Thelma
Smáradóttir, Kristófer Páll Við-
arsson, Ólöf Rún Benediktsdóttir,
Solveig Pálsdóttir, Sólveig John-
sen, Stefanía Pálsdóttir og Tinna
Sverrisdóttir. Skáldin munu rappa,
slamma og lesa ljóð en öll leggja
þau áherslu á lifandi flutning.
Hvar? Kaffislippur
Hvenær? Í dag kl. 15
Myndskreyttir
melónuhausar
Reiðhjólaverslunin Berl-
in opnar myndlistasýningu
á reiðhjólahjálmum á Menn-
ingarnótt 2016. Sýningin
Myndskreyttir melónuhausar
er samstarfsverkefni fjögurra
teiknara, reiðhjólaverslunarinnar,
þýska reiðhjólahjálmafyrirtæk-
isins Melon Helmets og Slippfé-
lagsins Málningarverksmiðju.
Teiknararnir Erla María Árnadótt-
ir, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir,
Linda Ólafsdóttir og Lóa Hjálmtýs-
dóttir hafa handmyndskreytt 12
reiðhjólahjálma sem boðnir verða
upp á opnuninni.
Hvar? Reiðhjólaverslunin Berlin
Hvenær? Í dag kl. 15
Frá Reykjavík til Varsjár
New Neighborhoods Festival er
ný hátíð sem er haldin í Reykjavík
í fyrsta skipti á Menningarnótt á
Kex hostel. Hátíðin er hugsuð til
að styrkja sambönd milli Póllands
og Íslands í tónlist og vídeólist. Há-
tíðin mun svo færa sig yfir til Var-
sjár í Póllandi 10. september. Dag-
skráin er ekki af verri endanum en
listamenn á borði við: Úlfur Úlfur
(IS), Beatmakin Troopa (IS), Tonik
Ensemble (IS), The Stubs (PL), Ba-
asch (PL) og Hatti Vatti (PL) munu
troða upp.
Hvar? Kex Hostel
Hvenær? Í dag kl. 14
Improv með spunamaraþon
Improv Ísland sýnir spunasýningar sem búnar eru til á staðnum. Ekkert er ákveðið fyrirfram, allt getur gerst
og er hver sýning æfingaferli, frumsýning og lokasýning. Improv Ísland sýndi fyrir fullum kjallara síðasta leik-
ár og var tilnefnt til Grímunnar í vor sem sproti ársins.
Hvar? Þjóðleikhúskjallarinn
Hvenær? Í dag kl. 12—22
MINDFUCKNESS
MINDFUCKNESS leikhúsjóga í Sól-
um í dag á Menningarnótt. Hrefna
Lind Lárusdóttir, sviðslistakona
og jógakennari, leiðir tímann og
tónlistarmaðurinn Futuregrap-
her spilar undir. MINDFUCKNESS
leikhúsjóga skoðar ferðalag núvit-
undar frá Indlandi til Vesturlanda.
Úr hringiðu Menningarnætur
hverfa gestir inn í heim núvit-
undar. Tíminn er 60 mínútur, fer
fram á ensku og er í senn jógatími,
skoðunarferð um jógalífsstílinn og
sviðsflutningur.
Hvenær? Í dag kl. 13
Hvar? Sólum, Fiskislóð
Hvernig? Skráning á www.solir.is
Menning hefur engin mörk
Menning er án landamæra en hún er oft sögð sundra fólki. Að opna sig
fyrir menningu fólks er besta leiðin til að kynnast og skilja annað fólk.
Flóttamenn eru með margvíslegan bakgrunn og þurfa oft að þola ein-
angrun þrátt fyrir að hafa mikinn áhuga á að kynnast heimamönnnum.
Hljómsveitin Innblástur! Arkestra kemur í heimsókn og spilar fyrir gesti.
Viðburðurinn er frábært tækifæri til að hitta fólk með ólíkan bakgrunni.
Matur og drykkur í boði.
Hvenær? Í dag kl. 14
Hvar? Hverfisgötu 104 A
Þar munum við fjalla um margt það nýjasta í heilsurækt
og sjálfstyrkingu. Þar verða m.a. kynnt ýmis námskeið
sem hefjast á haustmánuðum, gefin góð ráð til lesenda
varðandi mataræði, hugarfar og hreyfingu og margt
fleira. Sérblöð Fréttatímans eru kraftmikill vettvangur
fyrir auglýsendur til að koma vöru sinni og þjónustu á
framfæri til lesenda okkar.
Heilsublað Fréttatímans
kemur út 26. ágúst
Hafðu samband við auglýsingadeildina
og fáðu tilboð í birtingar.
Við erum í síma 531-3307 og á
tölvupósti kristijo@frettatiminn.is