Fréttatíminn - 20.08.2016, Blaðsíða 28
gengi fólks að heilbrigðisþjónustu á
ekki að vera háð fjárhag.“
Eitthvað fór að bresta
Þessir atburðir tóku mikið á Semu
og hún ákvað að leita sér sálfræði
aðstoðar sem gerði henni gott. En
allt þetta varð til þess að hún og
maðurinn fóru að búa saman – sem
hún hafði ekki ætlað sér. „Þetta var
ekki ákvörðun sem var tekin á eðli
legum nótum. En eftir mitt tal við
sálfræðinga þá setti ég mjög skýrar
reglur. Á meðan allir væru að sinna
sér og sínu þá var ég tilbúin að sjá
hvert þetta leiddi,“ segir Sema og á
þar meðal annars við að eftirmeð
ferðinni væri sinnt og áfengi væri
ekki haft um hönd.
„Það gekk ágætlega í ákveðinn
tíma en svo fór eitthvað að bresta.
Hann fékk heldur ekki alla þá aðstoð
sem hann þurfti. Það er áhyggjuefni
að fólk sem reynir að sækja sér að
stoð, fer niður á geðdeild, komi að
lokuðum dyrum eða sé sent heim.
Biðin eftir læknum og sálfræðing
um er líka mjög löng. Fólk er bara
að bíða eftir því að vera næst í röð
inni, sem er hræðilegt, í ljósi þess að
heilbrigðiskerfið heldur bókstaflega
í fólki lífi.
Endurreisn heilbirgðiskerfisins
verður að vera forgangsmál hvaða
stjórnvalda sem er. Það er grund
vallaratriði að útrýma gríðarlega
háum kostnaði sjúklinga, löngum
biðlistum og það þarf að bæta húsa
kynni sem eru að niðurrifi komin og
fjölga úrræðunum.“
Mætti strax heim til hennar
Sambúðin varð alltaf erfiðari og erf
iðari og þegar maðurinn var farinn
að brjóta þær skýru reglur sem Sema
hafði sett fannst henni nóg komið.
„Hann var farinn að blanda áfengi
ofan í lyf og meðferðir, sem var brot
á reglu númer eitt, tvö og þrjú. Þá
sagði ég hingað og ekki lengra. Ég
varð líka að hugsa um sjálfa mig í
þessu öllu saman. Hann flutti því út.
Það var eiginlega ákvörðun sem við
tókum sameiginlega. Okkur fannst
að hann þyrfti að einbeita sér meira
að sjálfum sér og ég að mér. Að leið
ir þyrftu að skilja á þessum tíma
punkti.“
Þrátt fyrir að ákvörðunin hefði
verið sameiginleg varð strax ljóst
að hann var ekki sáttur við sitt hlut
skipti og fékk Sema að finna fyrir
því. Strax sama kvöld og hann flutti
út var hann mættur heim til henn
ar og sagðist hvergi eiga heima því
hún hefði hent honum út. „Í með
virkniskasti opnaði ég dyrnar og
hleypti honum inn. Klukkan var
líka margt og ég vildi ekki valda ná
grönnunum ónæði. Svo kom hann
aftur kvöldið eftir en þegar hann
kom þriðja kvöldið þá hringdi ég á
lögregluna. Hann bankaði og var
með læti þannig það var ekki annað
í stöðunni.“
Inn um glugga á annarri hæð
Lögreglan kom og fjarlægði mann
inn af staðnum, en í kjölfarið hófst
atburðarás sem Semu óraði ekki
fyrir að gæti gerst í raunveruleik
anum. Og hún er ýmsu vön. „Hann
hélt áfram að koma. Hann reyndi að
brjóta sér leið inn í húsið á ýmsan
hátt og einu sinni komst hann inn.
Ég bý á annarri hæð en í eitt skipti
hafði hann náð sér í stiga, var kom
inn í eldhúsgluggann og ætlaði inn
um miðja nótt. Ég vaknaði og sá and
lit í eldhúsglugganum. Ég sá hann
reglulega fyrir utan húsið, hann
keyrði fram og til baka, stoppaði
á bílaplaninu og hinum megin við
götuna. Einnig var hann á öðrum
stöðum sem ég var vön að vera á.
Þetta var orðið þannig að nágrannar
mínir voru farnir að tilkynna hann.
Einu sinni hringdi ég í Neyðarlínuna
og þá var ég spurð hvort þetta væri
Sema. Þau voru farin að þekkja mig.
Ég var orðin mjög vör um mig hvert
sem ég fór og lokaði mig að ákveðnu
leyti af. Á tímabili bjó mamma hérna
hjá mér því ég gat ekki verið ein.
Þetta var því farið að hafa áhrif á alla
fjölskylduna. Maður veit nefnilega
ekki hverju fólk tekur upp á í svona
ástandi,“ segir Sema.
Hún þorði varla að skilja húsið eft
ir mannlaust eða hundana sína eftir
eina heima. Þegar hún sá svo frétt í
netmiðlum um að kviknaði hefði í
húsi í Kópavogi, tók hjarta hennar
tók kipp. Það reyndist sem betur fer
ekki hennar hús, en hún bjóst alveg
eins við því. Þannig var hún farin að
hugsa. „Það var í fyrsta skipti sem
ég fann fyrir alvöru ótta. Maðurinn
sem ég þekkti var nefnilega rosalega
meinlaus.“ segir Sema sem fór á end
anum í skýrslutöku til lögreglunnar
vegna málsins.
400 sms á skömmum tíma
Það voru hinsvegar engin úrræði í
boði og lögreglan gat því lítið gert.
Kennitalan hennar hvarf einfaldlega
í hafsjó annarra kennitala í kerfinu.
Sema veit ekki hve oft lögreglan
var kölluð að heimili hennar, en
stundum kom hún tvisvar á dag.
Á nokkurra vikna tímabili hringdi
maðurinn oftar en 100 sinnum í
hana og sendi fleiri en 400 sms skila
boð. En það var ekki fyrr en hann
var staðinn að verki við skemmdar
verk að málið fékk forgang hjá lög
reglunni. Hann var í kjölfarið sótt
ur í skýrslutöku. „Þar gekkst hann
við öllu, nema skemmdarverkinu.
En ekkert af þessu var nóg til að fá á
hann nálgunarbann.“
Eftir að maðurinn hafði gefið skýr
slu hjá lögreglu gerðust þau undur
og stórmerki að áreitið hætti. Að
tveimur vikum liðnum bankaði svo
prestur upp á hjá Semu. Hún vissi
strax hvað hafði gerst. Maðurinn var
látinn. Hann hafði svipt sig lífi.
Upplifði reiði í fyrstu
Sema upplifði mjög blendnar til
finningar eftir að hún fékk fréttirn
ar. „Ég var mjög reið fyrst þegar ég
hugsaði að hann myndi aldrei þurfa
að svara fyrir hvað hann var búinn
að gera mér og fjölskyldu minni. En
eftir korter hugsaði ég að þetta væri
einfaldlega harmsaga.“
Hún bendir á að reglulega heyrist
sögur af fólki sem lendi í eltihrellum
og sé jafnvel áreitt árum saman. Það
sé hins vegar ólíðandi. „Maður skilur
ekki að það séu ekki einhver úrræði í
kerfinu til að takast á við svona hluti.
Af augljósum ástæðum lauk áreitinu
í mínu tilfelli, en enginn gat séð það
fyrir. Ástæðan fyrir því að ég vil tala
um þessa hluti er til að vekja athygli
á úrræðaleysinu í kerfinu og benda á
að þetta getur komið fyrir hvern sem
er. Það er enginn fyrirboði. Það er
hræðilegt að búa við svona ástand.
Þetta getur alveg farið með fólk og
það er mikilvægt að koma því vel
til skila að skömmin er aldrei fórn
arlamba heimilisofbeldis eða annars
ofbeldis. Ég dáist af öllum þeim sem
tala opinskátt um sína reynslu og ég
vona að mín saga hjálpi einhverjum
sem er mögulega í sömu sporum.“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Að netníðingar sendi mér skilaboð eða hringi á kvöldin er ekki neitt miðað við þetta. Það var bókstaf lega
setið um mig og mér fannst ein
hver annar en ég stjórna lífi mínu,“
segir Sema Erla Serdar, formað
ur Samfylkingarinnar í Kópavogi
og fyrrverandi formaður fram
kvæmdastjórnar Samfylkingarinn
ar, sem hefur verið áberandi bar
áttunni gegn fordómum og rasisma
hér á landi. Hún er ötull talsmaður
fjölmenningarsamfélags og vill að
við tökum flóttafólki opnum örm
um. Fyrir vikið hefur hún mátt þola
margvíslegt áreiti, níðskrif og hót
anir frá fólki sem er henni ósam
mála. En það er meira sem hún hef
ur mátt þola.
Vill hafa áhrif á þingi
Sema segir nú í fyrsta skipti átakan
lega sögu sína af því þegar eltihrell
ir gerði henni lífið leitt mánuðum
saman. Um var að ræða fyrrverandi
kærasta og sambýlismann, sem átti
við geðrænan vanda að stríða. Í skýr
slum lögreglu er málið skilgreint
sem heimilisofbeldi, en áreitinu lauk
ekki fyrr en maðurinn svipti sig lífi.
„Það er oft ekki fyrr en maður
upplifir eitthvað sjálfur að maður
sér hvað má betur fara. Hverju þarf
að breyta. Maður vill þá láta til sín
taka og hafa áhrif, nýta sína reynslu
til einhvers,“ segir Sema þegar við
höfum fengið okkur sæti í eldhús
inu heima hjá henni í Kópavoginum.
„Þess vegna vil ég nú fara á þing og
stefni á forystusæti í Suðvesturkjör
dæmi í prófkjöri Samfylkingarinnar
fyrir komandi alþingiskosningar,“
bætir hún við.
Með því að segja sögu sína vill hún
vekja athygli á því sem er brýnt er að
bæta, meðal annars innan heilbrigð
iskerfisins og lögreglunnar.
Reyndi að svipta sig lífi
„Ég fór að hitta mann fyrir tæpum
tveimur árum. Það var bara á léttu
nótunum, ekkert alvarlegt. Þetta var
á svipuðum tíma og ég varð formað
ur Samfylkingarinnar í Kópavogi
og formaður framkvæmdastjórnar
Samfylkingarinnar, þannig það var
nóg að gera,“ segir Sema.
En þegar samband þeirra hafði
varað í nokkurn tíma fór ýmislegt að
breytast, bæði í fari hans og þeirra
samskiptum. Hún fór að hugsa hvort
þetta væri eitthvað sem hún vildi
halda áfram.
„Svo gerðist það að hann reyndi
að taka sitt eigið líf. Við vorum á
leiðinni saman upp í sumarbústað
eftir vinnu þennan dag, þannig það
var ekkert sem benti til þess að þetta
væri að fara að gerast.“ Atburðarásin
kom algjörlega aftan að Semu. „Það
tókst að bjarga honum, en þetta var
mínútuspursmál. Eftir það hófst svo
endurhæfingarferli hjá honum sem
ég ákvað að styðja hann í. Hann lá
lengi inni á spítala og ég svaf þar hjá
honum á nóttunni.“
Svo tók við eftirmeðferð með
sálfræðingum og geðlæknum og í
þessu ferli öllu kynntist Sema heil
brigðiskerfinu, þá sérstaklega geð
heilbrigðiskerfinu betur en hana
hefði nokkurn tímann grunað að
hún myndi gera. „Í fyrsta lagi sá ég
hvað það er frábært að fólk að vinna
þarna en svo sá ég líka gallana, til
dæmis plássleysið. Það er ekki pláss
fyrir neinn, fólk er sent heim eða
kemur að lokuðum dyrum. Svo er
það kostnaðurinn. Það hefur verið
mikið í umræðunni að undanförnu
hversu gríðarlega mikinn kostnað
sjúklingar bera og mér finnst ótrú
legt að áhrifamenn skuli gantast
með svona mál í stað þess að leita
leiða til þess að leysa úr slíku en að
Ofsótt af fyrrverandi sambýlismanni
Sema Erla mátti þola áreiti, sem lögreglan skilgreindi sem heimilisofbeldi, mánuðum saman. Fyrrverandi sambýlismaður
sat um hana, braust inn til hennar, hringdi og sendi hundruð sms skilaboða á skömmum tíma. Áreitinu lauk ekki fyrr en
maðurinn svipti sig lífi.
Vill nýta sína reynslu Sema fékk að kynnast geðheilbrigðiskerfinu betur en hana grunaði
að hún ætti eftir að gera þegar þáverandi kærasti reyndi að svipta sig lífi.
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir,
solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2016
Það er oft ekki fyrr en mað-
ur upplifir eitthvað sjálfur
að maður sér hvað má betur fara.
Hverju þarf að breyta. Maður vill þá
láta til sín taka og hafa áhrif, nýta
sína reynslu til einhvers.