Fréttatíminn

Issue

Fréttatíminn - 20.08.2016, Page 31

Fréttatíminn - 20.08.2016, Page 31
Unnið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Í Opna háskólanum í HR er í boði gagnleg sí- og endurmenntun fyrir sérfræðinga og stjórnend-ur í íslensku atvinnulífi. Kynn- ingarfundur fyrir lengri námskeið í Opna háskólanum verður miðviku- daginn 24. ágúst. Námskeið Opna háskólans í HR eru einkum ætluð sérfræðing- um og stjórnendum í íslensku atvinnulífi og er ætlað að veita þátttakendum viðurkenningu í sínu fagi eða auka þekkingu þeirra og færni innan ákveðinna fagsviða. Hjá Opna háskólanum í HR er mikill metnaður lagður í að vera í takt við þarfir atvinnu- lífsins. Lögð er áhersla á fjöl- breytta kennsluhætti og hagnýt verkefni, hópavinnu og umræð- ur. Í mörgum námskeiðum eru nemendur að vinna að verkefnum sem tengjast starfssviðum þeirra og nýtast því beint inn á fagsvið þátttakenda. „Námskeiðsframboð okkar byggir á traustum fræðilegum grunni og hagnýtri þekkingu úr atvinnulífinu. Leiðbeinendur við Opna háskólann í HR eru ýmist sérfræðingar Háskólans í Reykja- vík, aðrir fulltrúar atvinnulífs eða erlendir gestafyrirlesarar. Nám- skeið Opna háskólans spanna allt frá þremur klukkustundum upp í tvær annir og allt þar á milli,“ segir Guðmunda Smáradóttir, for- stöðumaður Opna háskólans í HR. Af lengri námslínum í Opna háskólanum í HR má til dæmis nefna starfatengdar línur sem byggja á samstarfi við samtök atvinnulífsins. Sem dæmi höfum við um nokkurra ára bil boðið upp á námslínur fyrir stjórnend- ur í ferðaþjónustu, stjórnendur í sjávarútvegi, stjórnendur í bíl- greinum og í haust mun nám fyrir stjórnendur í verslun og þjónustu hefja göngu sína,“ segir Guð- munda en nánar er fjallað um það nám hér til hliðar. „Markmiðið með starfatengdu línunum er að þjónusta meginstoðir íslensks at- vinnulífs með sem bestum hætti og sérsníða námslínur að þörfum viðkomandi greina.“ Síðastliðið haust ýtti Opni há- skólinn í HR úr vör nýrri námslínu í hótelstjórnun og veitingahúsa- rekstri í samstarfi við einn af virtustu skólum heims í hótel- og veitingahúsarekstri, César Ritz Colleges í Sviss. Námið er á háskólastigi og miðar að því að undirbúa nemendur fyrir alþjóð- legar stjórnunarstöður innan hót- el- og veitingahúsageirans. Nem- endum gefst kostur á að ljúka fyrsta árinu af þremur hér á landi og útskrifast með alþjóðlegt skír- teini (e. joint diploma) í hótel- stjórnun og veitingahúsarekstri. Í framhaldi eiga nemendur þess svo kost að ljúka námi sínu í sam- starfsskólanum í Sviss. Í haust mun nám í mannauðs- stjórnun og leiðtogafærni hefja göngu sína í Opna háskólanum í HR. Þar verður lögð áhersla á þau kjarnafög sem stjórnendur mannauðs þurfa að tileinka sér, s.s. stefnumiðaða mannauðs- stjórnun, ráðningarferlið frá a til ö, komið verður inn á markþjálf- un, vinnurétt, jákvæða stjórnun og svo mætti lengi telja. Að sögn Guðmundu eru ákveðin kjarnanámskeið sem Opni háskólinn í HR býður upp á ár eftir ár og aldrei virðast „detta úr tísku“. „Má þar til dæmis nefna hið sívinsæla Rekstrar- og fjár- málanám HR, framsögn og ræðu- mennsku með hinni einstöku Maríu Ellingsen, samningatækni, breytingastjórnun og svo mætti lengi telja.“ Kynningarfundir lengri nám- skeiða Opna háskólans í HR verða haldnir miðvikudaginn 24. ágúst frá kl. 9-12 í Opna háskól- anum í HR. Verkefnastjórar fara stuttlega yfir námsskipulag og kennarar eða nemendur miðla af reynslu sinni. Boðið verður upp á léttar veitingar. Markþjálfun – tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína Nám í markþjálfun veitir nemendum tækifæri til að þróa leiðtogahæfni sína, laða fram það besta í starfsfólki og bæta árangur í lífi og starfi. Markþjálfun í Opna háskólanum í HR er hagnýtt nám á háskólastigi þar sem grunnurinn er lagður að alþjóðlegri ACC vottun nemenda (e. Associate Certified Coach). Í náminu öðlast nemendur traustan grunn til að starfa sjálf- stætt sem markþjálfar og geta í kjölfarið hafið ACC vott- unarferli á vegum Alþjóðlegu markþjálfasamtakanna. Námið byggir á fjölbreyttum kennsluaðferðum, hagnýt- um verkefnum og þjálfun í notkun mismunandi aðferða. Námið nýtist einstaklega vel í mínu starfi „Ég er búin að læra víða, bæði í innlendum og erlendum háskólum, og ég verð að segja að markþjálfunarnámið við Opna háskólann í HR er á heimsmælikvarða,“ segir Þórdís Jóna Sigurðardóttir, stjórnarformaður Hjallastefnunnar, ráðgjafi og stjórnendamarkþjálfi. „Það er bæði mjög skemmtilegt og lærdómsríkt. Á stuttum tíma var ég komin með fulla verkfæratösku til að vinna með sem stjórnendamarkþjálfi. Námið nýtist einstaklega vel í mínu starfi sem stjórnendaþjálfi, stjórnarformaður og ráðgjafi í stefnumótun. Í náminu lærði ég heilmikið um sjálfa mig og hvernig ég vil taka næstu skref í eigin þroska og styðja aðra við að ná markmiðum sínum. Ég mæli heilshugar með náminu.“ Þórdís Jóna Sigurðardóttir. Guðmunda Smáradóttir. Fjölbreytt samstarfsverkefni með atvinnulífinu Opni háskólinn í HR hefur sett á fót fjölda námskeiðslína í samstarfi við starfsgreinar og fagsamtök sem miða að því að bæta árangur og færni starfsmanna á ákveðnum sviðum. Það nýjasta er nám fyrir stjórnendur í verslun og þjónustu. „Þetta nám er unnið í samstarfi við Samtök verslunar og þjónustu. Við erum nú þegar í samstarfi við Samtök fyrir- tækja í sjávarútvegi og Samtök ferðaþjónustunnar og höf- um um nokkurra ára skeið þróað námskeið í samstarfi við þessa aðila,“ segir Guðmunda Smáradóttir, forstöðumaður Opna háskólans. „Við fundum fyrir þörf á markaðnum fyrir nám sem þetta. Verslun og þjónusta hefur verið mjög vaxandi grein, samhliða ferðaþjónustunni. Við höfðum samband við fyrir- tæki úr atvinnulífinu og stofnuðum fagráð til að undirbúa námið. Þá heyrðum við í mögulegum þátttakendum og bárum undir þau ýmis námskeið sem við töldum henta. Við fengum mjög góðar ábendingar og eins staðfestingu á því að þetta myndi falla vel í kramið. Það hefur líka verið nóg um bókanir.“ Guðmunda lætur vel af slíkum samstarfsverkefnum með atvinnulífinu. „Það hefur gefist vel að fá fólk úr þessum geirum til að taka þátt í þróun námsins og koma sínum skoðunum að. Við erum enda háskóli atvinnulífsins svo það er okkar skylda að vera í nánu sambandi við fyrirtækinu í landinu.“ Opni háskólinn í HR – sí- og endurmenntun fyrir fólk í íslensku atvinnulífi Fjölbreytt og hagnýtt nám Hjá Opna háskólanum í HR er mikill metnaður lagður í að vera í takt við þarfir at- vinnulífsins. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti og hagnýt verkefni, hópa- vinnu og umræður. …nám7 | amk… LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.