Fréttatíminn - 20.08.2016, Page 32
Unnið í samstarfi við Nettó
Við erum í góðum fíling að skræla,“ segir Tobba Marinósdóttir, rithöf-undur og matarbloggari,
sem stendur í ströngu í dag
ásamt Said Lakhlifi matreiðslu-
manni en þau eru að undirbúa
súpupartí sem fer fram í Hljóm-
skálagarðinum á Menningarnótt
á frá klukkan 17-19.
„Ætlunin er að vekja athygli
á matarsóun og sporna gegn
henni,“ segir Tobba, en versl-
unarkeðjan Nettó stendur fyrir
súpupartíinu undir formerkjunum
Minni sóun. Nettó hefur undan-
farið ár unnið markvisst
með ýmsum hætti að því
að sporna gegn mat-
arsóun, meðal annars
með stigvaxandi
afslætti af vörum
sem nálgast síðasta
söludag. Vöruverð
lækkar því eftir því
sem líftími vöru stytt-
ust og stuðlar þetta
að minni sóun matvöru.
Allt er þetta undir slagorðinu
Keyptu í dag – notaðu í dag! Eins
hefur flokkun úrgangs og lokaðir
frystar stuðlað að orkusparnaði í
verslunum Nettó um land allt.
„Súpan er því elduð úr hráefni
sem er að renna út eða er útlits-
gallað en er í raun enn í fullu fjöri
og bragðast vel. Boðið verð-
ur upp á svokallaða Diskósúpu
en þetta heiti tíðkast erlendis
yfir súpur þar sem hráefni, sem
annars færi til spillis, er nýtt.
Said kokkur er með
magnaða uppskrift
að súpu með mara-
kóskum blæ sem
í má nota nánast
hvaða grænmeti
sem er,“ segir
Tobba hress og
Said tekur undir
og lofar bragðmik-
illi og góðri súpu.
„Þú getur því mætt
með fjölskyldu og vini,
kætt kviðinn og bjargað hráefni
frá því að enda sem sorp sem
mengar. Með markvissri vinnu
hefur Nettó náð að minnka sorp
sem annars hefði verið urðað eða
brennt um 50 tonn og stefnan er
sett á að minnka þetta um 100
tonn árlega. Nettó hefur einnig
gefið viðskiptavinum sínum 75
milljónir í afslátt það sem af er
ári af vörum sem annars hefðu
hugsanlega lent í ruslinu,“ segir
Tobba en hún er sjálf mikil bar-
áttukona gegn matarsóun.
„Sjálf þurfti ég að læra að
versla upp á nýtt og hætta að
kaupa sem lengstan fyrningar-
dag ef ég ætlaði að nota vöruna
samdægurs. Við þurfum að taka
ábyrgð á umhverfi okkar. Eftir
að ég tók eftir afsláttarkerfinu
hjá Nettó fór ég að hugsa betur
út í hvenær ég ætla að nota til-
tekna vöru. Mér finnst frábært
að Nettó taki þátt í þessu og sýni
samfélagslega ábyrgð og gott
fordæmi. Ég vona að þetta veki
fólk til umhugsunar og það komi
og smakki súpuna okkar og hugsi
um leið að ljóta grænmetið, eða
það sem er orðið lúið, er langt frá
því að vera vont eða ónýtt. Ljótar
gulrætur virka nefnilega líka,“
segir Tobba Marinós og skefur
gulrót númer 42 í dag.
Ætlunin er að vekja athygli á
matarsóun og sporna gegn henni
Nettó hefur undanfarið ár unnið markvisst að því með ýmsum hætti að
sporna gegn matarsóun og býður nú í súpupartí á Menningarnótt.
Myndbandi við
heila plötu varpað
á vegg
Tónleikagjörning-ur verður framinn í miðborginni á Menn-ingarnótt þar sem tón-listarmynd-
bandi við heila plötu
Kontinuum verður varp-
að upp á vegg meðan
hljómsveitin spilar undir.
„Við setjum risaskjá
utan á Kvosin hótel og
skjávarpa hinumegin við
götuna og vörpum vídeó-
inu þar á,“ segir Gaui H.
ljósmyndari sem fram-
leiddi myndbandið sem
er rúmar 40 mínútur að lengd,
sama lengd og platan í heild. „Við
setjum upp stórt svið beint fyrir
framan hótelið og Kontinuum spil-
ar live undir alla plötuna Kyrr,“
segir Gaui. Rokkhljómsveitin
Kontinuum var stofnuð árið 2010
og sama ár kom þeirra fyrsta plata
út. Kyrr er önnur breiðskífa sveit-
arinnar og kom hún út í fyrra.
„Þetta samstarfsverkefni milli
okkar byrjaði eftir að ég gaf út
vídeó sem heitir Requiem þar sem
ég fékk ég lánað lag hjá hljóm-
sveitinni. Eftir það kviknaði þessi
brjálaða hugmynd að gera vídeó
yfir alla plötuna og frum-
sýna á Menningarnótt,“ seg-
ir Gaui. Myndbandið segir
sögu frá upphafi til enda
gegnum alla plötuna. „Þetta
er saga um baráttu innri
djöfla.“
Traffic dekur og hár sáu
um hárgreiðslu og Diljá
Líf hafði yfirumsjón með
förðun. „Það er þeim að
þakka, ásamt leikaraliðinu
og kærustunni minni, að þetta
tókst á eins stuttum tíma og raun
ber vitni,“ segir Gaui. Tökustaðir
voru aðallega á Reykjanesinu og
suðurströnd landsins.
Gjörningurinn hefst klukkan 22
við Kirkjutorg 4.
Kontinuum Hljómsveitin spilar plötuna Kyrr í heild sinni. Mynd | Gaui
Gaui H Framkvæmdi
brjálaða hugmynd á
mettíma. Mynd | Gaui
Barátta við innri djöfla.
Ísfirðingar
heiðraðir
á mölinni
Glæsilegir stórtónleikar í miðborginni.
Vestfirsk innrás
Halldór Gunnar og
félagar að vestan
hertaka sviðið á stór-
tónleikum við Arnarhól
á Menningarnótt.
Mynd | Rut
Stórtónleikarnir Tónaflóð verða
á sínum stað á Menningarnótt en
þar troða upp Glowie, Úlfur Úlf-
ur og Emmsjé Gauti auk Bubba.
Smiðshöggið rekur svo fríður
hópur tónlistarfólks að vestan en
Tónaflóð er tileinkað Ísafjarðarbæ
sem fagnar 150 ára afmæli í ár.
Flateyringurinn, tónlistarmað-
urinn og foringi Fjallabræðra,
Halldór Gunnar Pálsson, mun
stýra lokaatriði Tónaflóðs sem ber
yfirskriftina Ljósvíkingar að vest-
an. Þar koma meðal annars fram
systurrnar Lára Rúnars og Mar-
grét Rúnars ásamt pabba gamla,
Rúnari Þórissyni, Sólstafir, Mugis-
on, Rúna Esradóttir, Helgi Björns
og Reynir Guðmundsson.
Tónleikarnir hefjast stund-
víslega klukkan 20 og standa til
klukkan 23, eða fram að flugelda-
sýningu Menningarnætur. Ljósvík-
ingarnir stíga á stokk klukkan 22.
…menningarnótt 8 | amk… LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2016
Sjálf
þurfti ég að
læra að versla
upp
á nýtt og hætt
a að
kaupa sem len
gstan
fyrningardag
ef ég
ætlaði að nota
vöruna
samdægurs.