Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 20.08.2016, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 20.08.2016, Qupperneq 34
Unnið í samstarfi við Artasan Sore No More er náttúrulegt hita- og kæligel sem er verkjastillandi og öflug meðferð við tímabundnum vöðvaeymslum, bólgum, harðsperrum og þreytu eftir hlaup og stífar æfingar. Sore No More er einstök blanda af virkum plöntukjörnum í gelformi, án alkóhóls og kemískra íblöndunar- og geymsluefna. Gott fyrir hlaupara og í íþróttatöskuna í vetur Nú er Reykjavíkurmaraþonið í dag og stór hluti Íslendinga á öllum aldri ætlar að hlaupa hinar ýmsu vegalengdir, bæði sér til skemmtunar og einnig til styrktar góðu málefni. Einnig eru margir búnir að setja sér háleit markmið varðandi heilsuræktina í haust og vetur og þá skiptir miklu máli að heilsan sé í lagi og líkaminn klár í slaginn. Láttu Sore No More hjálpa þér Harðsperrur, bólgur og aumir og stífir vöðvar eru vel þekkt vandamál þegar við byrjum upp á nýtt í ræktinni eða reynum meira á okkur en venjulega. Þegar það gerist þá getur hita- og kæligelið frá Sore No More hjálpað mikið til. Hitagelið er gríðarlega vinsælt og það er fátt betra fyrir æfingar, hlaup eða aðra hreyfingu að bera það á auma vöðva og fá blóðrásina af stað. Sore No More kæligelið er svo alveg upplagt að nota eftir átökin til að minnka harðsperrur og stífleika og eymsli í vöðvum. Einnig er það verkjastillandi og dregur úr bólgum. Sore No More á í raun heima í öllum íþróttatöskum því það virkar strax og getur komið í veg fyrir óþarfa óþægindi eða meiðsl. Virkar á alla Matthildur Rósenkranz Guðmundsdóttir, eða Lóló, hefur starfað sem íþróttakennari og einkaþjálfari í World Class í hátt í 20 ár. Hún hefur notað Sore No More, bæði hita- og kæligelið, síðan það kom á markað og hefur þetta að segja: „Fólk kemur til mín í alls konar ástandi og með mismunandi markmið en stór hluti finnur fyrir vöðvabólgu, eymslum hér og þar, er með gigt eða einhvers konar krankleika. Ég mæli alltaf með Sore No More því það virkar strax og það er borið á og maður finnur gríðarlegan mun. Svo er frábært að nota það á gagnaugun við höfuðverk, á efri vörina við kvefi og á bringuna við hósta. Ég er rosalega hrifin af þessari vöru enda er hún náttúruleg og án allra kemískra aukaefna og hentar því öllum aldri. Ég á tvo stráka sem æfðu mikið fótbolta og ég notaði Sore No More mikið á þá sem ég hefði auðvitað ekki gert nema ég hefði 100% trú á vörunni.“ Náttúrulegt og án kemískra efna SORE NO MORE er náttúrulegt gel sem gott er að nota á tímabundna verki og ónot. Í þúsundir ára hafa frumbyggjar í Mexíkó notað jurtakjarna til að lina verki og þjáningar. Með þekkingu og nútímatækni tókst framleiðendum SORE NO MORE að þróa einstaka blöndu af virkum plöntukjörnum í gelformi án alkóhóls og kemískra íblöndunar- og geymsluefna. Láttu Sore No More hjálpa þér fyrir og eftir hlaupið! Ánægð Lóló hefur notað Sore No More síð- an það kom á markað. „Ég mæli alltaf með Sore No More því það virkar strax og það er borið á og maður finnur gríðarlegan mun.“ Kælimeðferð • Hjálpar til við að lina bráða verki vegna byltu eða höggs • Frábært á vöðvabólgu og sem kæling eftir meðferð hjá kírópraktor • Góð og öflug kælivirkni án þess að valda óþægindum og ofkæl- ingu á húð • Kælir rólega og djúpt inn í vöðvann. • Upplagt eftir íþróttaæfingar til þess að minnka harðsperrur og vöðvaverki • Náttúrulegur sítrónuilmur • Án alkóhóls, dýraafurða og fest- ist ekki í fötum eða skilur eftir bletti Áríðandi er að bera Sore No More ekki á opin sár eða í augu. Hitameðferð • Virkar best á þráláta verki, t.d. liðagigt, sinabólgur, tennisoln- boga, frosna öxl og vefjagigt • Hjálpar að auka hreyfigetu sem eykur blóðrás og náttúrlegan lækningamátt • Hitar upp! Mjög hentugt til að mýkja upp stífa vöðva fyrir æf- ingar • Náttúrulegur appelsínuilmur • Án alkóhóls, dýraafurða og fest- ist ekki í fötum eða skilur eftir bletti Sölustaðir: flest apótek, heilsu- búðir og heilsuhillur verslana. „Sore No More er verkjastilla ndi og öflug meðf erð við vöðvaeym slum, bólgum, harðsperrum.“ Ungversk upplifun í Hörpu Ungverskar vinnustofur fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Föndursmiðj- ur með ull, leður, efni, pappír ofl. Allt efni og aðstoð er í boði á staðnum. Hvar: Harpa Hvenær: 13.30-16.30. Origamifiðrildi Félagar úr Origami Ísland heim- sækja Hannesarholt og einbeitir sér að fiðrildum þetta árið. Gest- um býðst að læra af meisturun- um, taka þátt og búa til sína eigin origami hluti. Hvar: Grundarstíg 10 Hvenær: 13.00 – 15.00. Búningar og myndatökur Á Ljósmyndasafni Reykjavíkur býðst gestum að klæða sig upp í skemmtilega búninga úr geymsl- um Borgarleikhússins og stilla sér upp á mynd. Hvar: Tryggvagötu 15 Hvenær: 13.00 – 18.00. MINDFUCKNESS leikhúsjóga MINDFUCKNESS leikhúsjóga skoð- ar ferðalag núvitundar frá Ind- landi til Vesturlanda. Úr hringiðu Menningarnætur hverfa gestir inn í heim Indlands og núvitundar. Hrefna Lind Lárusdóttir, sviðslista- kona og jógakennari, leiðir tímann og tónlistarmaðurinn Futuregrap- her spilar undir. Skráning á www. solir.is Hvar: Sólum jóga- og heilsusetri, að Fiskislóð 53-55, Hvenær: Kl. 13.00 og 15.30. Omnom súkkulaðiskóli Omnom býður súkkulaðiunnend- um ókeypis í súkkulaðiskólann. Takmarkað upplag er af miðum svo koma þarf sem fyrst við í versl- un Omnom til að tryggja sér miða til að komast að. Hvar: Hólmaslóð 4 Hvenær: 13.00, 14.00, 15.00 og 16.00. Frú Ragnheiður: Skaðaminnkun Frú Ragnheiður – Skaðaminnkun, er verkefni sem rekið er af Rauða krossinum í Reykjavík. Verkefnið er færanlegt og fer fram í endur- innréttuðum sjúkrabíl. Markmiðið er að ná til jaðarsettra hópa í sam- félaginu, eins og heimilislausra einstaklinga og fólks sem sprautar sig með vímuefnum í æð. Þjón- ustan í Frú Ragnheiði er tvíþætt. Annars vegar er hún hjúkrunar- móttaka og hins vegar er hún nála- skiptaþjónusta. Frú Regnheiður býður öllum í heimsókn, sýnir bíl- inn og segir frá verkefninu. Hvar: Fyrir framan Hallgríms- kirkju, á horni Eiríksgötu og Skólavörðustígs Hvenær: 14.00-18.00 Menning án landamæra Menning er án landamæra en hún er oft sögð sundra fólki. Að opna sig fyrir menningu fólks er besta leiðin til að kynnast og skilja annað fólk. Flóttamenn eru með margvíslegan bakgrunn og þurfa oft að þola einangrun þrátt fyrir að hafa mikinn áhuga á að kynnast heimamönnnum. Sviðið verður opnað fyrir flóttafólki og öllum öðrum sem vilja bjóða upp á atriði. Hljómsveitin Innblástur! Arkestra kemur í heimsókn og spilar. Frá- bært tækifæri til að hitta fólk með ólíkan bakgrunn. Matur og drykk- ur í boði. Hvar: Bakgarði Hverfisgötu 104A milli Hverfisgötu og Laugavegar Hvenær: 14.00 – 16.00 Tyrknesk sveifla og tyrkneskt kaffi Tyrknesk-íslenska menningarfélag- ið ætlar að gleðjast saman, fagna fjölbreytileikanum og lífinu á Menningarnótt. Boðið verður upp á tyrkneskt kaffi og gotterí fyrir gesti og gangandi. Hvar: Laugavegi 42 Hvenær: 14.00 - 16.00 Femínismi, ljóð og vöfflur Femínistar úr Kvenréttindafélagi Íslands baka vöfflur fyrir gesti og gangandi, hægt verður að fletta upp í lifandi bókasafni og leita svörum við öllum þeim spurning- um um femínisma sem ykkur hafa brunnið á brjósti og Elísabet Jök- ulsdóttir stígur á stokk kl. 15 og les upp ljóð. Hvar: Hallveigarstöðum, Túngötu 14 Hvenær: 14.00 – 16.00 Allt fyrir ostana! „Allt fyrir ostana“ er söngvadag- skrá sem flutt verður í Ostabúðinni Búrinu á Grandagarði. Dúettinn Sulta og Kex, Brynhildur Björns- dóttir söngkona og Sigríður Ásta Árnadóttir harmonikkuleikari flytja ostasöngva af mikilli innlifun enda er það staðfast vörumerki Búrsins að tengja saman ost og ást. Dagskráin verður flutt utandyra, ef þess er nokkur kostur. Hvar: Grandagarði 35 Hvenær: 16.00 – 16.30 Húlladúllan kennir húll Húlladúllan verður á Óðinstorgi á Menningarnótt með hið sívinsæla Húllafjör. Húlladúllan verður með litla krakkahringi, hringi fyrir full- orðna og nokkra risahringi fyrir sérstaklega hávaxna byrjendur. Húlladúllan gengur á milli og leið- beinir þátttakendum út frá getu- stigi. Það geta allir lært að húlla! Hvar: Óðinstorgi Hvenær: 16.30 - 18.30 Frú Ragnheiður, Húlladúllan og súkkulaðiskóli Brot af því besta á Menningarnótt. …menningarnótt 10 | amk… LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2016

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.