Fréttatíminn

Eksemplar

Fréttatíminn - 10.09.2016, Side 4

Fréttatíminn - 10.09.2016, Side 4
Skólamál Grindavíkurbær vill koma í veg fyrir að ung- lingarnir í bænum flosni upp úr framhaldsskóla og nái í kjölfarið ekki að feta sig inn á vinnumarkaðinn. Krakk- arnir hafa undirritað samn- ing um að þiggja aðstoð ef þau þeir sýna hættumerki. Þeir sem skrópa verða meðal annars sendir í slorið. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Í Grindavík hefur nýlega verið grip- ið til aðgerða til að veita unglingum, sem eru fara úr grunnskóla yfir í framhaldsskóla, meiri eftirfylgni. Yfirvöld bæjarins, félagsþjónustan, grunnskólinn og Fjölbrautaskóli Suðurnesja hafa tekið saman hönd- um til að bregðast við ef nemendur sýna merki um að þeir gætu verið að flosna upp úr námi. „Það hafa komið upp tilfelli þar sem krakkar, sem dottið hafa út úr skóla, hafa ekki haft frumkvæði til að koma sér út á vinnumarkaðinn. Við höfum misst sjónar á þeim og þeir hafa á endanum lent í umsjá félagsmálayfirvalda. Þá eru þeir komnir í ákveðinn áhættuhóp. Upp frá því spannst hugmyndin um verkefnið Netið. Það snýst um hafa teymi sem fylgist með og grípur inn í þegar þess gerist þörf. Náms- og starfsráðgjafi er öllum nemendum grunnskólans innan handar með því að skrá þá inn í framhaldsskóla. Þannig höfum við yfirsýn yfir hvert þeir fara og hvort þeir fari ekki ör- ugglega í skóla,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkur- bæjar. Bærinn hefur því tryggt að þeim, sem þurfa á slíku að halda, bjóðist vinna hjá nokkrum fyrirtækjum í bænum, og ábyrgist hluta launa þeirra. „Það eru störf í sjávarút- vegi og þjónustugeiranum, með- al annars.“ Önnur sveitarfélög á Suðurnesjum hafa sýnt verkefninu áhuga og hafa hug á að innleiða það þegar komin er reynsla á kerfið í Grindavík. 4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10. september 2016 Unglingar sem skrópa í skólanum fá að spreyta sig á vinnu, til dæmis í sjávarútvegi. Unglingar sendir í slorið ef þeir skrópa Skattar Alþingi vísaði frum- varpi um þunna eiginfjár- mögnun til ríkisstjórnar- innar fyrir rúmum tveimur árum. Markmiðið er meðal annars að koma í veg fyrir að álfyrirtæki geti tekið rekstrarhagnað sinn skatt- frjálsan úr landi. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@frettatiminn.is „Málið er búið að bíða frá byrjun kjörtímabilsins og tillögurnar mín- ar byggja á vinnu starfshóps frá síð- asta kjörtímabili. Þetta sýnir bara að þetta er ekki búið að vera neitt forgangsmál í ráðuneytinu, þrátt fyrir skýran vilja löggjafans,“ seg- ir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, aðspurð um frum- varpið um þunna eiginfjármögnun sem hún lagði fyrst fram á Alþingi haustið 2013. Vorið 2014 var frumvarpið sam- þykkt af 53 þingmönnum. Málinu var þá vísað til ríkisstjórnarinnar og fékk fjármálaráðuneyti Bjarna Benediktssonar það til sín. Síðan vorið 2014 hefur málið verið inni í ráðuneyti Bjarna þar til hann sendi efnahags- og viðskiptanefnd hug- myndir ráðuneytisins í ágúst. Í frumvarpi Katrínar er gert ráð fyrir að fyrirtæki megi einungis draga 30 prósent af hagnaði sínum fyrir fjármagnsliði frá vaxtagjöld- um vegna lánaviðskipta við tengda aðila. Samkvæmt tillögunum frá ráðuneyti Bjarna er þetta hlutfall 25 prósent. Ef slík lagasetning um þunna eig- infjármögnun hefði verið innleidd á Íslandi árið 2014 þá hefði Alcoa, til dæmis, ekki getað dregið nær allan hagnað sinn af álverinu á Reyðar- firði í fyrra, tæplega 19,5 milljón- ir dala eða 2,5 milljarða króna, frá skattstofni sínum vegna endur- greiðslna á lánum upp á 20,5 millj- ónir dollara, 2.7 milljarða króna, til móðurfélags Alcoa í Lúxemborg. Seinagangur þjónar hagsmunum álvera Ágúst Smári Beaumont er ósáttur við framgöngu Birgittu Jónsdóttur og segir það lýð- ræðislega skyldu sína að upplýsa um framgöngu hennar. Alcoa, sem á og rekur álverið í Reyðarfirði, hefði getað dregið nærri tveimur milljörðum króna minna frá skattstofni sínum í fyrra ef reglur um þunna eignfjár- mögnun hefðu verið settar árið 2014. Vinnan við málið hefur dregist í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Stjórnmál Mikil ólga er hjá pírötum í Norðvestur- kjördæmi en Ágúst Smári Beaumont, sem situr í kjördæmaráði Pírata í kjör- dæminu, segir að Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hafi þrýst á sig með óeðlilegum hætti og kraf- ist þess að hann beitti sér fyrir því að frambjóðandi í fimmta sæti yrði færður upp í annað sætið – og þannig hunsa lýðræðislega niður- stöðu prófkjörsins sem fram fór í ágúst. Valur Grettisson Valur@frettatiminn.is Birgitta hafnar þessum ásökunum alfarið, en viðurkennir að hafa átt símtal við Ágúst þar sem hún lýsti yfir áhyggjum vegna listans. Ágúst Smári var staddur á Sauð- árkróki þegar Birgitta hringdi í hann sama kvöld og fyrra prófkjör Pírata fór fram í ágúst. Prófkjörið átti síðar eftir að verða afar umdeilt eftir að Þórður Guðsteinn Péturs- son, sem fór með sigur af hólmi, var sakaður um ólöglega smölun. Ásökun sem var síðar hrakin af úr- skurðarnefnd flokksins. „Hún lýsti því í fyrstu hvað hún var ósátt við listann og sagði meðal annars að hún þekkti ekkert þenn- an Þórð,“ segir Ágúst Smári í sam- tali við Fréttatímann, en honum þótti vinnubrögð í kringum próf- kjörið með slíkum ólíkindum að hann telur það lýðræðislega skyldu sína að upplýsa um samskipti sín við Birgittu. „Kjarni samtalsins var sá að hún sigar mér beinlínis í það verkefni að „Þeir geta bara komið með sannanir, harðar sannanir, og svo getum við brugðist við því.“ Sakar Birgittu um óeðlileg afskipti af prófkjöri Pírata fá aðra frambjóðendur til þess að færa sig neðar svo það væri hægt að koma Gunnari Ingiberg Guðmunds- syni í hærra sæti á listanum,“ segir Ágúst, en þess má geta að Gunn- ar var svo kjörinn í annað sætið í seinni kosningunum, en þá var sá háttur hafður á að allir píratar á landinu fengu að taka þátt í kosn- ingunum, ólíkt öðrum prófkjörum flokksins. Annar pírati varð vitni að sam- talinu á milli Ágústs og Birgittu og talaði blaðamaður við hann. Sá treysti sér ekki til þess að koma fram undir nafni af ótta við við- brögð forystu Pírata en hann lýs- ir samtalinu með sama hætti og Ágúst. Þeir halda því fram að þrýst hafi verið á frambjóðendur að færa sig til á lista til þess að koma Gunnari ofar. „Þetta er alvarlegt vandamál,“ segir Ágúst Smári, sem segist ekki geta hugsað sér að kjósa f lokk- inn í næstu kosningum. „Þetta er bara grátlegt, byltingin er að fara í vaskinn,“ segir hann. Birgitta Jónsdóttir neitar því al- farið í samtali við Fréttatímann að samtalið þeirra á milli hafi verið með þessum hætti sem hann lýsir. „Hvaða hagsmuni ætti ég að hafa af þessu?“ spyr hún á móti. „Þeir geta bara komið með sannanir, harðar sannanir, og svo getum við brugð- ist við því,“ segir Birgitta sem segist vísa ásökunum alfarið á bug. Birgitta Jónsdóttir neitar alfarið að hafa beitt sér með þeim hætti sem Ágúst lýsir í viðtali við Fréttatímann. Fótbolti Ef gagnrýnisradd- irnar ná yfirhöndinni nú, er hætt við því að óléttar fótboltastelpur hætti að æfa eða spila fyrr en þær þurfa, af ótta við að fá á sig harka- lega gagnrýni. Þetta segir Stjörnu-framherjinn Harpa Þorsteinsdóttir sem er barnshafandi. „Engar reglur banna óléttum konum að spila,“ segir Klara Bjart- marz. Þóra Tómasdóttir thora@frettatiminn.is Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Breiðabliks, lét þau orð falla í vik- unni að Stjörnu-konan Harpa Þor- steinsdóttir væri að setja aðra leik- menn í óeðlilega stöðu, með því að spila leik gegn Breiðabliki í dag. Harpa er markahæsti leikmað- ur úrvalsdeildar, en Breiðablik og Stjarnan mætast í hálfgerðum úr- slitaleik deildarinnar í dag. Harpa svaraði Þorsteini í Frétta- blaðinu í gær með þeim hætti að hún sé fullfær um að spila leikinn, ákvörðun hennar um hvort hún geri það sé tekin í samráði við fag- fólk. Hún sakar Þorstein um sál- fræðihernað gegn sér. „Ég er komin 14 vikur á leið og er hissa á hve mikil umræða blossar upp um þetta nú. Ég spilaði lengur þegar ég var ófrísk af fyrra barni mínu og það er alls ekki einsdæmi að konur spili fótbolta á þessu stigi meðgöngu. Fjölmargar íþróttakon- ur hafa sent mér skilaboð um að þær hafi spilað leiki, lengra gengn- ar með barn en ég er nú. Ein þeirra var Arna Steinsen sem spilaði hand- boltaleik á 17. viku. En umræðan er mikilvæg. Það er ekki sjúkdómur að vera óléttur og margar stelpur eignast börn og halda áfram í fót- bolta. Mér finnst mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir að það er í lagi upp að vissum tímapunkti. Það er einmitt mikilvægt að njóta þess að gera það sem maður er vanur og hefur heilsu til.“ Harpa segist hinsvegar vera kom- in að mörkunum nú á 14 viku og gefi ekki kost á sér í komandi lands- leikjum sem eru framundan. K la ra Bja r t m a rz , f ra m- kvæmdastjóri Knattspyrnusam- bands Íslands, segir að ekki hafi verið rætt um þessi mál sérstak- lega innan sambandsins. „Ef Harpa treystir sér til að spila, þá bara spil- ar hún. Það eru engar reglur til, að mér vitandi, sem banna leikmönn- um að spila óléttir. Það eru til ná- kvæmar leiðbeiningar um með- höndlun höfuðáverka en að öðru leyti eru ekki til reglur sem tak- marka leikmönnum að spila.“ Gagnrýni má ekki stoppa óléttar stelpur í að spila Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, segir mikilvægt að ófrískar konur njóti þess að gera það sem þær geta, meðan þær hafa heilsu til.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.