Fréttatíminn - 10.09.2016, Side 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 10. september 2016
framhaldið. Svona mætti halda
lengi áfram.
Nýtt tímatal: Fyrir og eftir hrun
Frasinn gamansami „hér varð
hrun“ lýsir því hversu upptekin
við erum enn af hruninu 2008 og
hvernig allt sem ber að garði er
rakið til þess. Indverski fjármála-
sérfræðingurinn Ruchir Sharma
hefði getað notað frasann sem titil
á nýjustu bók sína, The Rise and
Fall of Nations: Forces of Change
in the Post-Crisis World. Sharma
er forstöðumaður nýmarkaða hjá
Morgan Stanley-banka og stýrir þar
rúmlega 20 milljarða dollara sjóði
og er því með valdameiri fjárfest-
um. Hann skrifar líka í New York
Times og fleiri blöð og er einn
áhrifamesti álitsgjafi heims á sviði
fjármálamarkaða og áhrifa þeirra á
heimsmálin. Sharma telur að stað-
an í dag sé svo ólík því sem gerðist
fyrir 2008 tala verði um heiminn
fyrir og eftir kreppu. „Á árunum
f.k. – fyrir kreppuna 2008, naut
heimsbyggðin mestu efnahagslegu
uppsveiflu sögunnar sem teygði sig
frá Chicago til Chongqing. Þó að
undrið entist ekki nema í fjögur ár
og undirstöður þess væru veikar
sáu margir fyrir sé upphaf hnatt-
væddrar gullaldar. Svo kom 2008.
F.k. árin hurfu og í staðinn komu
e.k. árin. Eftir kreppu, í staðinn
fyrir vonina um gullöld kvað við
nýjan tón. Allt sem við trúðum á
fyrir áratug er nú búið að snúa á
haus.“
Sitjandi ráðamenn í fallhættu
Teymi Ruchir Sharma gerði rann-
sókn á vinsældum leiðtoga í 20
stærstu ríkjum heims. Síðan um
2010 hafa þær lækkað stöðugt að
meðaltali. Fyrir 2008 voru um 55
prósent ánægð með leiðtoga sína,
en nú eru ekki nema um 35 prósent
í þeim ánægða hópi. Í 30 stærstu
lýðræðisríkjum heims náðu sitj-
andi stjórnvöld endurkjöri í tveim-
ur af hverjum þremur tilfellum fyrir
2008. Nú ná aðeins einn af þremur
sem sitja við stjórnvölinn endur-
kjöri í kosningum.
Gegn ráðandi öflum
Eins og Sharma bendir á beinist
þessi mótmælaalda gegn sitjandi
stjórnvöldum ekki gegn neinni sér-
stakri hugmyndafræði. Það mætti
kannski halda ef horft er á Banda-
ríkin og sum lönd í Evrópu þar sem
popúlískir hægri flokkar taka at-
kvæði frá rótgrónum miðflokkum.
Í Suður-Ameríku hafa vinstrimenn
verið felldir hver á eftir öðrum – til
dæmis í Perú, Argentínu og Brasilíu
– og í staðinn hafa íhaldssinnaðir
miðjumenn verið kjörnir, því þar
hafa popúlískir vinstri flokkar verið
hið ráðandi afl um langt skeið. Þeim
sem tilheyra ráðandi öflum í tiltekn-
um löndum er bægt frá nú á „fyrstu
öld eftir kreppu“.
Löturhægur hagvöxtur
Lélegur hagvöxtur í áraraðir í heim-
inum bland við aukna misskiptingu
er meginástæðan fyrir þessum
breytingum. Það er einkennandi
fyrir árin eftir 2008 að millistétt-
irnar telja sig sífellt lifa verr og að
þeir ríku auðgist hraðar eins og
hið mikla fylgi við Bernie Sanders í
Bandaríkjunum sýndi. Það er ekki
að furða. Ruchir Sharma bendir á
að efnahagskerfi heimsins búi enn
við löturhægan hagvöxt sem á sér
ekki hliðstæðu frá lokum seinni
heimsstyrjaldar. Þar er Evrópa
einna verst stödd og það veldur
titringi.
Misskipting eykst
Fyrir tíu árum síðan voru millj-
arðarmæringar heimsins (í dollur-
um talið) um 1000 manna hópur.
Nú, árið 2016, er talið að þeir séu
2000 talsins. Árið 2010 áttu 388 af
ríkasta fólk heims jafn mikið og fá-
tækari helmingur alls mannkyns.
Nú er sú tala komin niður í 62.
Hópur ríkustu manna heims, sem
saman eiga jafnmikið og helming-
ur mannkyns, myndi því rúmast
vel í sal Alþingis. Misskipting eykst
í flestum helstu hagkerfum heims.
Eignafólk hagnast
Að mati Ruchir Sharma hafa að-
gerðir stjórnvalda öfug áhrif.
„Seðlabankar heimsins hafa dælt
út peningum til að stemma stigu við
hægum bata. Það hefur ekki auk-
ið vöxt launa og atvinnutækifæra í
hagkerfinu eins og til stóð. Mikið af
þessum peningum hefur í staðinn
runnið í eignir, eins og hlutabréf,
skuldabréf og fasteignir – og það
hækkar verð. Þar sem þeir ríku eiga
flestallar þessara eigna eykst mis-
skiptingin og breiðist út. Ríkidæmið
hefur aldrei verið meira í fjármála-
miðstöðvum eins og New York og
London,“ skrifar Sharma. Hann
bendir á staðreynd sem gæti haft
sitt að segja um hvers vegna reiði
kjósenda í Bretlandi er jafn mik-
il og raun ber vitni: Þar hafa laun
hækkað um 13 prósent frá 2008
en virði hlutabréfamarkaðarins
um 115 prósent. 70 milljarðamær-
ingar búa í London. „Í Englandi
var Brexit mótmælakosning gegn
London og hnattvæddu peningael-
ítunni þar og helstu stefnumálum
hennar, frjálsra viðskipta og op-
inna landamæra. Alþjóðavæðingin
er talin slæm.“
Slæmt að bola burt innflytjendum
Hin mögru ár fyrir almennt launa-
fólk í Evrópu og sú staðreynd að
þeir ríku verði sífellt ríkari er full-
kominn jarðvegur fyrir reiði al-
mennings og kjósenda. Helstu
blórabögglarnir eru innflytjend-
ur sem litnir eru hornauga fyrir
að „stela atvinnutækifærum og
nærast á kerfinu“. Þegar málið er
skoðað betur kemur hins vegar
í ljós að Bretland hefur einmitt
Gæti hið ótrúlega gerst? Marine Le Pen, formaður helsta hægriöfgaflokks Frakklands, mælist nú með meira fylgi en aðrir
forsetaframbjóðendur. Kosið verður á næsta ári.
Það er einkennandi fyrir
árin eftir 2008 að milli-
stéttirnar telja sig sífellt
lifa verr og að þeir ríku
auðgist hraðar eins og
hið mikla fylgi við Bernie
Sanders í Bandaríkjunum
sýndi.
Krydd fyrir VEGAN matreiðslu
Fiesta de Mexico
hentar frábærlega á
allt grænmeti.
Arabískar nætur er sjö
kryddablandan ættuð frá
Líbanon. Líbanir nota það
mest í grænmetisrétti.
Reykt paprika bítur
aðeins en er góð í marga
grænmetisrétti.
Eðalsteik og grillblandan
er góð fyrir tofusteikina.
Fiskikrydd er frábært
í grænmetissúpur og
grænmetisrrétti.
Lamb Islandia og
Kalkúnakryddið er frábært
á alla kartöflurétti og á
kjúklingabauna rétti.
Kryddin frá okkur eru ómissandi í eldhúsið hjá ykkur
Benda skal á að öll stök krydd henta í VEGAN matreiðslu s.s. origano, basilikum, steinselja og fleiri.
Töfrakryddið og Ítalskt panini henta ekki í VEGAN matreiðslu því þau innihalda ostaduft.