Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 10.09.2016, Síða 42

Fréttatíminn - 10.09.2016, Síða 42
Madonna gefur eftir Eftir rúmt ár af rifrildi og leiðindum, hafa Madonna og Guy Richie komist að samkomu- lagi um umgengnina við 16 ára son þeirra, Rocco Richie. Guy býr í London en Madonna býr í Bandaríkjunum. Samkvæmt heimildar- manni sem þekkir Madonnu vildi hún ein- göngu eiga traust og ástkært samband við son sinn á ný og það sé að verða að veruleika. Rocco er í skóla og á mikið félagslíf í London en það sama á ekki við um Los Angeles og New York. Madonna vildi fá hann til að búa hjá sér og barðist mikið fyrir því að fá hann til að vera hjá sér. Hún fór til London og sá hversu mikið hann naut sín þar og átti góða vini og ákvað þá að láta kyrrt liggja. Litaði hárið óvart ljóst Kylie Jenner litaði hárið sitt ljóst í vikunni og hefur það vakið mikla athygli á netmiðlum. Hún hefur áður verið með ljóst hár en hefur þá yf- irleitt verið með hárkollu en ekki í þetta skipti. „Ég ætlaði ekki að verða ljóshærð,“ sagði Kylie í samtali við People. „Mig langaði í hunangsbrún- an lit en svo þegar við byrjuðum að lýsa það, tók hárið svo vel við og lýstist á augabragði. Ég sá að hárið mitt þoldi þetta svo ég ákvað að hafa það bara svona.“ Kendall, systir Kylie, var spurð hvort hún væri ekki næst í að lita sig ljós- hærða og hún útilokaði það ekki. Systurnar hafa verið að kynna nýjar flíkur í tískulínu sinni en þær eru að hanna saman föt og snyrtivörur sem seljast eins og heitar lummur. Dóttir Rosie O’Donnell í geðrannsókn Dóttir Rosie O’Donnell, Chelsea, er 19 ára göm- ul og var lögð inn á spítalann á Long Island á þriðjudaginn. Þar fór hún í geðrannsókn sam- kvæmt E! News. Fjölmiðlafulltrúi Rosie sagði: „Chelsea, eins og milljónir annarra, er að glíma við andleg veikindi. Þetta hefur reynst henni og fjölskyldunni erfitt en fjölskyldan vill bara að hún sé örugg.“ Samband Rosie við Chelsea hefur verið stormasamt og árið 2015 lýsti Rosie eftir henni, en hún lét sig hverfa. Hún fannst svo heima hjá kærasta sínum, sem sagður er vera heróínfíkill. Chelsea gaf út yfirlýs- ingu í nóvember þar sem hún sagði að hún væri að takast á við margt og allt sem sér og móður sinni færi á milli væri þeirra einkamál. Ósáttur við tengdafjölskylduna Tengdamóðir Kanye og tvær elstu systur eiginkonu hans mættu ekki þegar nýjasta fatalína Yeezy var kynnt. Nýjasta línan í fatamerki Kanye West, Yeezy, hefur fengið mis­ jafnar viðtökur eftir tískusýningu í vikunni og er hann ekkert sér­ staklega kátur með það, eðlilega. Ekki bætti úr skák að stór hluti af fjölskyldu eiginkonu hans, Kim Kardashian, lét ekki sjá sig á tísku­ sýningunni. En móðir hennar og tvær systur höfðu öðrum hnöpp­ um að hneppa. Kris Jenner er í fríi í Evrópu ásamt elstu systurinni, Kourtney og fjölsyldu hennar, en Khloe þurfti að mæta í ann­ að partí. Kendall og Kylie Jenner mættu hins vegar á sýningunni, en þær þurftu hvort eð er að vera í New York á svipuðum tíma vegna opnunarteitis í tengslum við sína eigin fatalínu undir vörumerkinu KENDALL + KYLIE. Kim er heldur ekki sátt við fjöl­ skyldu sína en hún reynir að vera stuðningsrík eiginkona með því að klæðast fatnaði úr nýjustu línu Yeezy á göngu sinni um stræti New York borgar. Kanye var víst mjög taugatrekktur í kringum sýninguna og batt Kim vonir við að hann myndi róast þegar henni væri lokið. Vegna misjafnra dóma hefur það líklega ekki gengið eftir, en New York Post sagði sýninguna til að mynda hafa verið stórslys. Ósáttur við tengdó Kim reynir að styðja sinn mann með því að ganga í fötum úr fatalínunni hans. Ég held í einlægni að þetta sé umfjöllunarefni sem allir tengja við og þetta er ólíkt öllu sem ég hef séð í sjónvarpi hér. Ég miða alltaf við hvað ég myndi sjálf horfa á og já, ég myndi sitja límd yfir þessu,“ segir Sigrún Ósk Kristjáns­ dóttir sjónvarpskona. Sigrún Ósk vinnur nú að tveimur áhugaverðum sjónvarpsþátta­ röðum sem sýndar verða á Stöð 2 í vetur. Sú fyrri kallast Leitin að upprunanum og verður frum­ sýnd 23. október. Í þáttunum fylgir Sigrún þremur konum eftir í leit að líffræðilegum foreldrum þeirra en allar voru þær ættleiddar til Íslands ungar að árum. Tvær þeirra voru ættleiddar frá Sri Lanka og ein frá Tyrklandi. Upptökur fóru fram fyrr á þessu ári og ekki er hægt að upplýsa hvernig leitin að foreldrunum gekk. Það hefur þó reynst þrautin þyngri að halda því leyndu hvernig til tókst. „Já, þær eru hringjandi í mig dag og nótt og kvarta yfir því að þurfa að þegja yfir þessu,“ segir Sigrún brosandi. Aðdragandi að gerð þáttanna var langur, að sögn Sigrúnar. Hún kveðst hafa gengið með þessa hug­ mynd í maganum í nokkur ár en það var hálfgerð tilviljun að vinn­ an fór af stað fyrir rúmu ári. „Það hvarflaði eiginlega ekki að mér að ég myndi fá þessa hugmynd sam­ þykkta. Ég vissi ekki fyrr en ég var tögguð á Facebook í færslu einnar sem ég endaði á að fara út með. Þar lýsti hún því yfir að hún væri búin að ákveða að fara út og leita að for­ eldrum sínum, rúmum 30 árum eftir að hún var ættleidd til Íslands. Ég ákvað að athuga hvort ég fengi að gera þætti um þetta og án þess að vera búin að kynna mér hvað þetta gæti orðið umfangsmikið verkefni þá fékk ég þetta samþykkt – og þá sat ég í súpunni,“ segir hún og hlær. Auglýst var eftir fleiri þátttak­ endum og á sjötta tug umsókna barst. Bæði frá fólki sem hafði verið ættleitt og vildi fræðast um upp­ runann en líka frá fólki sem var að leita að öðru foreldri sínu. Hvernig var svo að vinna þetta, þið hafið varla getað bara hoppað upp í flugvél og mætt á staðinn? „Nei, við vorum með alla anga úti alls staðar. Við Íslendingar erum svo vanir því að hægt sé að slá allt inn í já.is. Og ég í einfeldni minni hélt í alvörunni að rafrænar skráningar væru komnar lengra í heiminum al­ mennt. Svo var ýmislegt sem maður þurfti að finna út úr, eins og það að útlendingar eru að vesenast með að skipta um eftirnöfn þegar þeir gifta sig.“ Kafar ofan í ættleiðingar og misheppnuð húðflúr Sigrún Ósk undirbýr tvær nýjar sjónvarpsþáttaraðir. Önnur fjallar um ættleiddar stúlkur en hin um fólk sem vill láta húðflúra yfir gömul „træbal“ tattú. Tvær nýjar þáttaraðir Sigrún Ósk hefur í nógu að snúast um þessar mundir. Í næsta mánuði frumsýnir hún þætti um leit ungra íslenskra kvenna að líffræðilegum mæðrum sínum og eftir áramót er komið að þáttaröð um fólk sem lætur húðflúra yfir gamlar syndir. Mynd | Hari Sigrún er nú á fullu við að taka upp aðra þætti sem kallast Reykja­ vík Ink. Fólkið á samnefndri húð­ flúrstofu hefur sérhæft sig í að hylja gömul tattú, ör og fleira og í þátt­ unum sjáum við það í verki. 1.500 manns sóttu um að fá að koma fram í þáttunum og láta húðflúra sig. „Við höfum séð mikið af gömlum „træbal“­tattúum, „tramp­stamps“ og jurtatattúum. Það er ekki hlaupið að því að fela svona dót en það er magnað að sjá hvað listamennirnir eru flinkir í því,“ segir Sigrún sem sjálf hefur aldrei gerst svo fræg að láta flúra sig. „Nei, og það er búið að gera óhemju grín að mér á stofunni. Mér hefur samt alltaf fundist allt mjög áhugavert í kringum húðflúr. Sér­ staklega hvað fólk er margt óhrætt við að fá sér eitthvað sem það verð­ ur með á líkamanum að eilífu. Ég get ekki einu sinni valið mér eldhús­ innréttingu sem ég þarf að þola í fimmtán ár.“Ármúla 21, 2. hæð • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com Snyrtistofan Hafblik PANTAÐU FRÍAN TÍMA Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA 893-0098 ÞREYTTUR Á ÞVÍ AÐ VERA ALLTAF ELDRAUÐUR Í FRAMAN ? Nú er tíminn fyrir háræðaslits- og húðslípimeðferðir Sérhæfum okkur í að fjarlægja háræðaslit í andliti Tilboð út september Fyrir Eftir …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016 Við höfum séð mikið af göml- um „træbal“-tattú- um, „tramp-stamps“ og jurtatattúum. Það er ekki hlaupið að því að fela svona dót en það er magnað að sjá hvað listamennirnir eru flinkir í því.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.