Fréttatíminn - 10.09.2016, Síða 44
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@amk.is
Ég er með rosalega fé-lagsfælni og á erfitt með margt, en það er að lag-ast. Snapchat hefur hjálpað mér mikið,“ seg-
ir Rebekka Einarsdóttir, snyrti- og
förðunarfræðingur, sem heldur úti
snapchat-reikningi undir nafninu
rebekkaeinars. Þar talar hún mik-
ið um snyrtivörur og förðun ásamt
því að farða sig reglulega. Gjarn-
an mjög dramatískt. Enda er það
hennar stíll. Annars er Rebekka
bara hún sjálf á snapchat og sýnir
lífið gjarnan eins það er í raun og
veru. Ekki bara glimmer og glans-
andi augnskuggar.
Ruslakista fyrir hugsanir
Fyrst var Rebekka með lokað-
an snapchat reikning fyrir vini og
vandamenn, en þegar ókunnugt
fólk var farið að óska eftir að fylgja
henni ákvað hún að opna reikn-
inginn þannig allir sem vildu gætu
fylgst með henni. En hún hefur
einnig skrifað um förðun og snyrti-
vörur á bloggsíðu sinni, rebekka-
einars.is, frá árinu 2014. „Ég byrjaði
að blogga því mér fannst það gam-
an, en var ekkert að auglýsa mig.
Mig langaði að koma efni frá mér,
allt um „makeup“ auðvitað. Það eru
svo miklar listrænar hugsanir sem
tengjast þessu. Bloggið hefur eigin-
lega verið hálfgerð ruslakista fyrir
hugsanir,“ segir Rebekka og bendir
á að förðunin sé miklu meira en að
setja á sig maskara, heldur er um
listræna tjáningu að ræða.
Rebekka, sem er 24 ára, fékk
snemma áhuga á snyrtivörum og
förðun. Hún var 13 ára þegar hún
byrjaði að farða sig, og reynd-
ar vinkonur sínar líka, en hún sá
um förðunina fyrir öll skólaböllin
í grunnskóla. „Þetta byrjaði bara
þannig hjá mér, að ég setti á mig
maskara og meik, en varð svo miklu
meira. Í níunda eða tíunda bekk
rogaðist ég til dæmis með lítið koff-
ort í skólann fullt af snyrtidóti, til að
hjálpa til við sminka fyrir viðburð á
árshátíðinni. Það var mjög gaman.“
Kynntist kærastanum á Tinder
Rebekka er með um 3000 fylgjend-
ur á snapchat og aðspurð segir hún
töluvert áreiti fylgja því að vera með
svona opinn reikning. Samt alls ekki
neikvætt. „Ég fæ margar fyrirspurn-
ir um hvaða krem eða förðunarvör-
ur séu best fyrir viðkomandi, sem
er mjög erfitt fyrir mig að svara
án þess að sjá eða koma við, en ég
reyni mitt besta. Ég hef ekki fengið
nein ljót skilaboð, en stundum fæ ég
skilaboð um að ég máli mig of mik-
ið. En mér finnst það allt í lagi, fólk
má hafa skoðun á því. Ég er ekki
svona máluð alla daga, eins og ég
sýni á snapchat. Þegar ég er að gera
mig fína þá finnst mér rosa gam-
an að fara aðeins yfir línuna. Vera
Tekst á við
félagsfælni
og kvíða með
snapchat
Rebekka Einarsdóttir heldur úti vinsælu
förðunar„snappi“ og hefur eignast margar
góðar vinkonur í gegnum snapchat. Miðillinn
hefur hjálpað henni að takast á við félagsfælni
og kvíða sem hún hefur glímt við síðan hún
var barn. Listræn tjáning Fyrir Rebekku er förðunin miklu meira en bara að skella á sig maskara og meiki, hún tjáir sig listrænt með förðunarburstanum.
dramtísk. Það myndast líka miklu
betur. Myndavélin verður að hafa
eitthvað að grípa,“ segir Rebekka og
brosir. Kærastinn hennar er dugleg-
ur að taka af henni myndir sem hún
setur á bloggsíðuna sína. „Við erum
mjög gott teymi í þessu,“ bætir hún
við, örlítið feimnislega.
Parið hefur verið saman í ár, en
þau kynntust á samfélagsmiðlinum
Tinder. Hann er fyrsti kærastinn
hennar og þau eru mjög ástfangin.
„Þetta er mjög nýtt en mér líður
samt eins og við séum búin að vera
saman í sex ár. Við vorum reyndar
mjög treg í þessu í fyrstu. Ég held
að við höfum talað saman í tvo
mánuði áður en við hittumst. Ég er
sjálf mjög hæg í öllu sem ég geri. Ég
vil hafa allt á hreinu og vita hvar ég
stend.“
Vaknar stundum í sjokki
Rebekka hefur glímt við kvíða og
félagsfælni frá því hún var hún var
barn, en vinnur statt og stöðugt í
því að ná betri tökum á hugsunum
sínum. Að tjá sig á snapchat hefur
hjálpað henni mikið þó henni hafi
þótt erfitt að nota miðilinn í fyrstu.
„Að stíga skrefið og tala var rosa-
lega erfitt. Svo stundum þegar ég
hef verið að taka yfir stærri „snöpp“
þá verð ég mjög stressuð, en um leið
og ég er byrjuð þá er þetta allt í lagi.
Þetta er svolítið eins og sviðsskrekk-
ur. Kosturinn er að það er enginn í
kringum mig að horfa á mig. Ég hef
sent kærastann minn fram þegar ég
er að tala á snapchat. Það er fyrst
núna, eftir ár, sem ég er aðeins byrj-
uð að geta talað fyrir framan hann.“
Þá á Rebekka það til að hugsa
mikið um það sem hún hefur verið
að segja á snapchat af ótta við að
hún hafi sagt eitthvað vitlaust. „Ég
hef vaknað upp klukkan þrjú um
nótt í sjokki yfir einhverju sem ég
man eftir að hafa sagt. Þá þarf ég að
fara yfir allt sem ég er búin að birta
og ritskoða sjálfa mig. Stundum
dettur maður nefnilega inn í hálf-
gerðan trans og lætur margt flakka.
Ég vill ekki segja neitt vitlaust og
verð alltaf að hafa rétt fyrir mér.“
Kvíðinn háði henni í vinnu
Rebekka segir kvíðann og félags-
fælnina hafa háð sér mikið í lífinu,
en kærastinn hennar hefur verið
duglegur að hjálpa henni að takast
á við vandann síðastliðið ár. „Það
er mjög þroskandi að takast á við
þetta,“ segir hún einlæg. „Þetta
háði mér líka í vinnunni. Ég þjáð-
ist af vinnukvíða. Ég vinn svo mik-
ið með fólki og fyrst var það rosa-
lega erfitt. Ég var dauðþreytt eftir
daginn að þurfa alltaf að vera að
hitta nýtt fólk. Svo þurfti allt að vera
fullkomið hjá mér, en vinnubrögð-
in mín voru kannski ekki fullkom-
in þegar ég var að byrja. En núna
er þetta ekkert mál og skil ekki af
hverju þetta var svona erfitt,“ segir
Rebekka sem starfar á snyrtistof-
unni Dimmalimm.
Henni þykir þó stundum erfitt
þegar fólk á förnum vegi horfir á
hana eins og það þekki hana, sem
því þykir það kannski gera eftir að
hafa fylgst með henni á snapchat.
„Það er samt í góðu lagi. Mér þyk-
ir líka gaman þegar fólk kemur og
heilsar mér, en ég get orðið rosalega
vandræðaleg og horfi niður á skóna
mína. Ég er samt alltaf að venjast
þessu betur og betur.“
Hefur eignast góðar vinkonur
Rebekka reynir að vera einlæg og
heiðarleg á snapchat, en hún gæt-
ir þess þó að deila ekki of miklum
persónulegum upplýsingum. Hún
heldur sig meðvitað innan ákveðins
ramma. „Fyrst þegar ég var að byrja
þá bjó ég ómeðvitað til einhverja
aðra manneskju, en svo sagði syst-
ir mín við mig að ég talaði öðruvísi
á snapchat en ég gerði í alvörunni.
Þá fór ég að hugsa af hverju ég væri
að þykjast vera önnur en ég er og
breytti alveg um stíl. Nú er þetta
bara ég að dúlla mér.“
Hún hefur eignast margar góð-
ar vinkonur í gegnum snapchat,
sem allar eiga það sameiginlegt að
verða förðunar- og lífsstíls„snapp-
arar“. „Þetta er fólk sem ég hefði
örugglega aldrei kynnst annars,
með mína félagsfælni. Ég hefði
ekki lagt í að tala við þær. En það er
auðveldara að senda fólki skilaboð
í gegnum snapchat. Við hittumst all-
ar reglulega og það er góður mórall
í hópnum.“
Þær leita ráða hjá hver annarri,
til dæmis hvernig eigi að bregðast
við ljótum skilaboðum, og eru hver
annarri stuðningur í mörgu sem
þær taka sér fyrir hendur. „Það er
stundum erfitt að vera einn með allt
þetta fólk, sem maður þekkir ekki,
að fylgjast með manni. Þess vegna
er gott að hafa kjarna sem mað-
ur getur leitað til. Svo tengir mað-
ur meira við sumar og talar jafn-
vel við þær á hverjum degi,“ segir
Rebekka, þakklát fyrir nýja vina-
hópinn sinn.
Rebekka heldur úti bloggsíðunni
rebekkaeinars.is og hægt er að fylgj-
ast með henni á snapchat:
rebekkaeinars.
Þegar ég er
að gera mig
fína þá finnst mér
rosa gaman að fara
aðeins yfir línuna.
Vera dramatísk. Það
myndast líka miklu
betur. Myndavélin
verður að hafa eitt-
hvað að grípa.
M
yn
d
| R
ut
…viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016