Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 10.09.2016, Blaðsíða 44

Fréttatíminn - 10.09.2016, Blaðsíða 44
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég er með rosalega fé-lagsfælni og á erfitt með margt, en það er að lag-ast. Snapchat hefur hjálpað mér mikið,“ seg- ir Rebekka Einarsdóttir, snyrti- og förðunarfræðingur, sem heldur úti snapchat-reikningi undir nafninu rebekkaeinars. Þar talar hún mik- ið um snyrtivörur og förðun ásamt því að farða sig reglulega. Gjarn- an mjög dramatískt. Enda er það hennar stíll. Annars er Rebekka bara hún sjálf á snapchat og sýnir lífið gjarnan eins það er í raun og veru. Ekki bara glimmer og glans- andi augnskuggar. Ruslakista fyrir hugsanir Fyrst var Rebekka með lokað- an snapchat reikning fyrir vini og vandamenn, en þegar ókunnugt fólk var farið að óska eftir að fylgja henni ákvað hún að opna reikn- inginn þannig allir sem vildu gætu fylgst með henni. En hún hefur einnig skrifað um förðun og snyrti- vörur á bloggsíðu sinni, rebekka- einars.is, frá árinu 2014. „Ég byrjaði að blogga því mér fannst það gam- an, en var ekkert að auglýsa mig. Mig langaði að koma efni frá mér, allt um „makeup“ auðvitað. Það eru svo miklar listrænar hugsanir sem tengjast þessu. Bloggið hefur eigin- lega verið hálfgerð ruslakista fyrir hugsanir,“ segir Rebekka og bendir á að förðunin sé miklu meira en að setja á sig maskara, heldur er um listræna tjáningu að ræða. Rebekka, sem er 24 ára, fékk snemma áhuga á snyrtivörum og förðun. Hún var 13 ára þegar hún byrjaði að farða sig, og reynd- ar vinkonur sínar líka, en hún sá um förðunina fyrir öll skólaböllin í grunnskóla. „Þetta byrjaði bara þannig hjá mér, að ég setti á mig maskara og meik, en varð svo miklu meira. Í níunda eða tíunda bekk rogaðist ég til dæmis með lítið koff- ort í skólann fullt af snyrtidóti, til að hjálpa til við sminka fyrir viðburð á árshátíðinni. Það var mjög gaman.“ Kynntist kærastanum á Tinder Rebekka er með um 3000 fylgjend- ur á snapchat og aðspurð segir hún töluvert áreiti fylgja því að vera með svona opinn reikning. Samt alls ekki neikvætt. „Ég fæ margar fyrirspurn- ir um hvaða krem eða förðunarvör- ur séu best fyrir viðkomandi, sem er mjög erfitt fyrir mig að svara án þess að sjá eða koma við, en ég reyni mitt besta. Ég hef ekki fengið nein ljót skilaboð, en stundum fæ ég skilaboð um að ég máli mig of mik- ið. En mér finnst það allt í lagi, fólk má hafa skoðun á því. Ég er ekki svona máluð alla daga, eins og ég sýni á snapchat. Þegar ég er að gera mig fína þá finnst mér rosa gam- an að fara aðeins yfir línuna. Vera Tekst á við félagsfælni og kvíða með snapchat Rebekka Einarsdóttir heldur úti vinsælu förðunar„snappi“ og hefur eignast margar góðar vinkonur í gegnum snapchat. Miðillinn hefur hjálpað henni að takast á við félagsfælni og kvíða sem hún hefur glímt við síðan hún var barn. Listræn tjáning Fyrir Rebekku er förðunin miklu meira en bara að skella á sig maskara og meiki, hún tjáir sig listrænt með förðunarburstanum. dramtísk. Það myndast líka miklu betur. Myndavélin verður að hafa eitthvað að grípa,“ segir Rebekka og brosir. Kærastinn hennar er dugleg- ur að taka af henni myndir sem hún setur á bloggsíðuna sína. „Við erum mjög gott teymi í þessu,“ bætir hún við, örlítið feimnislega. Parið hefur verið saman í ár, en þau kynntust á samfélagsmiðlinum Tinder. Hann er fyrsti kærastinn hennar og þau eru mjög ástfangin. „Þetta er mjög nýtt en mér líður samt eins og við séum búin að vera saman í sex ár. Við vorum reyndar mjög treg í þessu í fyrstu. Ég held að við höfum talað saman í tvo mánuði áður en við hittumst. Ég er sjálf mjög hæg í öllu sem ég geri. Ég vil hafa allt á hreinu og vita hvar ég stend.“ Vaknar stundum í sjokki Rebekka hefur glímt við kvíða og félagsfælni frá því hún var hún var barn, en vinnur statt og stöðugt í því að ná betri tökum á hugsunum sínum. Að tjá sig á snapchat hefur hjálpað henni mikið þó henni hafi þótt erfitt að nota miðilinn í fyrstu. „Að stíga skrefið og tala var rosa- lega erfitt. Svo stundum þegar ég hef verið að taka yfir stærri „snöpp“ þá verð ég mjög stressuð, en um leið og ég er byrjuð þá er þetta allt í lagi. Þetta er svolítið eins og sviðsskrekk- ur. Kosturinn er að það er enginn í kringum mig að horfa á mig. Ég hef sent kærastann minn fram þegar ég er að tala á snapchat. Það er fyrst núna, eftir ár, sem ég er aðeins byrj- uð að geta talað fyrir framan hann.“ Þá á Rebekka það til að hugsa mikið um það sem hún hefur verið að segja á snapchat af ótta við að hún hafi sagt eitthvað vitlaust. „Ég hef vaknað upp klukkan þrjú um nótt í sjokki yfir einhverju sem ég man eftir að hafa sagt. Þá þarf ég að fara yfir allt sem ég er búin að birta og ritskoða sjálfa mig. Stundum dettur maður nefnilega inn í hálf- gerðan trans og lætur margt flakka. Ég vill ekki segja neitt vitlaust og verð alltaf að hafa rétt fyrir mér.“ Kvíðinn háði henni í vinnu Rebekka segir kvíðann og félags- fælnina hafa háð sér mikið í lífinu, en kærastinn hennar hefur verið duglegur að hjálpa henni að takast á við vandann síðastliðið ár. „Það er mjög þroskandi að takast á við þetta,“ segir hún einlæg. „Þetta háði mér líka í vinnunni. Ég þjáð- ist af vinnukvíða. Ég vinn svo mik- ið með fólki og fyrst var það rosa- lega erfitt. Ég var dauðþreytt eftir daginn að þurfa alltaf að vera að hitta nýtt fólk. Svo þurfti allt að vera fullkomið hjá mér, en vinnubrögð- in mín voru kannski ekki fullkom- in þegar ég var að byrja. En núna er þetta ekkert mál og skil ekki af hverju þetta var svona erfitt,“ segir Rebekka sem starfar á snyrtistof- unni Dimmalimm. Henni þykir þó stundum erfitt þegar fólk á förnum vegi horfir á hana eins og það þekki hana, sem því þykir það kannski gera eftir að hafa fylgst með henni á snapchat. „Það er samt í góðu lagi. Mér þyk- ir líka gaman þegar fólk kemur og heilsar mér, en ég get orðið rosalega vandræðaleg og horfi niður á skóna mína. Ég er samt alltaf að venjast þessu betur og betur.“ Hefur eignast góðar vinkonur Rebekka reynir að vera einlæg og heiðarleg á snapchat, en hún gæt- ir þess þó að deila ekki of miklum persónulegum upplýsingum. Hún heldur sig meðvitað innan ákveðins ramma. „Fyrst þegar ég var að byrja þá bjó ég ómeðvitað til einhverja aðra manneskju, en svo sagði syst- ir mín við mig að ég talaði öðruvísi á snapchat en ég gerði í alvörunni. Þá fór ég að hugsa af hverju ég væri að þykjast vera önnur en ég er og breytti alveg um stíl. Nú er þetta bara ég að dúlla mér.“ Hún hefur eignast margar góð- ar vinkonur í gegnum snapchat, sem allar eiga það sameiginlegt að verða förðunar- og lífsstíls„snapp- arar“. „Þetta er fólk sem ég hefði örugglega aldrei kynnst annars, með mína félagsfælni. Ég hefði ekki lagt í að tala við þær. En það er auðveldara að senda fólki skilaboð í gegnum snapchat. Við hittumst all- ar reglulega og það er góður mórall í hópnum.“ Þær leita ráða hjá hver annarri, til dæmis hvernig eigi að bregðast við ljótum skilaboðum, og eru hver annarri stuðningur í mörgu sem þær taka sér fyrir hendur. „Það er stundum erfitt að vera einn með allt þetta fólk, sem maður þekkir ekki, að fylgjast með manni. Þess vegna er gott að hafa kjarna sem mað- ur getur leitað til. Svo tengir mað- ur meira við sumar og talar jafn- vel við þær á hverjum degi,“ segir Rebekka, þakklát fyrir nýja vina- hópinn sinn. Rebekka heldur úti bloggsíðunni rebekkaeinars.is og hægt er að fylgj- ast með henni á snapchat: rebekkaeinars. Þegar ég er að gera mig fína þá finnst mér rosa gaman að fara aðeins yfir línuna. Vera dramatísk. Það myndast líka miklu betur. Myndavélin verður að hafa eitt- hvað að grípa. M yn d | R ut …viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.