Fréttatíminn - 10.09.2016, Qupperneq 66
Ýmislegt spennandi í
pípunum hjá uglunni Vöku
Hrefna Sætran og Rakel Garðarsdóttir hófu samstarf fyrr á þessu ári í framleiðslu á alíslenskum barnamat undir
merkjum uglunnar Vöku. Vaka vill öllu öðru fremur að börn borði næringarríkan og hollan mat sem bragð er
af – og framleiddur í nálægð, ekki hinumegin á hnettinum.
Unnið í samstarfi við Ísam
Okkur fannst raun-ar bara svo skrítið að það væri verið að flytja allan þennan barna-
mat til landsins. Þannig kvikn-
aði hugmyndin; í staðinn fyrir að
bjóða alltaf íslenskum börnum og
gestum upp á erlendan barnamat
sem fluttur er yfir hálfan hnött-
inn fannst okkur „kommon sens“
að framleiða hann á Íslandi,“ segir
Rakel. „Það er líka mjög óum-
hverfivænt að flytja hann inn,
fyrir utan að maður veit ekk-
ert hvað er í erlendum mat. Með
þessu er fjarlægðin engin, það eru
bara tvær sætar stelpur bak við
„brandið“ sem hægt er að hafa
samband við persónulega ef það
er eitthvað sem fólki líkar eða
mislíkar eða ef fólk vill koma með
ábendingu eða hvað sem er. Það
er ekki hægt með erlenda barna-
matinn.“
Ekkert arsenik fyrir börnin
Lagt var upp með að hrá-
efni væri allt íslenskt og hefur
þeim tekist að halda sig við þá
stefnu að langstærstu leyti. „Við
erum með bygg og byggmjöl
sem framleitt er hér á landi og
notum íslenskan kalkún í stað-
inn fyrir kjúkling eða kjöt sem er
oft í erlendum barnamat,“ segir
Hrefna. „Við reynum alltaf að
nota hollasta kostinn sem í boði
er,“ bætir Rakel við. Í erlendum
barnamat eru hrísgrjón gjarn-
an notuð sem uppfyllingarefni í
barnamat en það er staðreynd að
hrísgrjón geta innihaldið snefil-
magn af arseniki. „Það hafa verið
gerðar margar rannsóknir á því
að arsenik er ekki gott fyrir ung-
börn,“ segir Rakel á léttu nótun-
um. „Við vildum því alls ekki fara
þá leið að vera með hrísgrjón.“
Ítarleg rannsóknarvinna
Rakel hefur verið óþreytandi
að benda á skaðsemi matarsóun-
ar og skaðlegrar matvælafram-
leiðslu og er uglan Vaka hluti
af þeirri vinnu. Hrefna er róm-
uð fyrir hæfileika sína á sviði
„gúrme“ eldamennsku en með því
að þróa og framleiða barnamat
má segja að hún sé komin aftur í
grunninn. „Við fórum í mikla rann-
sóknarvinnu á því hvað börn vilja,
hvernig bragð þau fíla og úr þeirri
vinnu urðu til fyrstu fjórar bragð-
tegundirnar. Hrefna er svo á fullu
að þróa nýjar týpur, það eru mjög
spennandi brögð á leiðinni,“ segir
Rakel.
Hrefna segir það vera mikla
áskorun að þróa mat fyrir börn.
„Þegar við erum að gera upp-
skriftir má svo lítið vera í matn-
um í raun og veru, engin aukaefni
eða sykur, engin rotvarnarefni svo
þetta er mjög ólíkt öllu öðru.“
Ekki bara fyrir börn
Þær stöllur heyra gjarnan frá
fólki að börnin þeirra vilji engan
annan mat og þykir þeim vænt um
slíkar sögur; þær ýta enn frekar
undir metnaðinn í að bjóða upp
á fyrsta flokks mat fyrir yngstu
mallakútana. Eldra fólk hefur líka
verið að kaupa matinn, fólk sem
af einhverjum ástæðum erfitt með
að tyggja eða af öðrum ástæðum
kýs maukaðan mat. „Þetta er auð-
vitað bara hollur og hreinn matur,
grænmeti og kalkúnn, bara góð
máltíð,“ segir Hrefna.
Rakel og Hrefna árétta hversu
mikilvægt það er að velja vel
fyrstu fæðu barnanna og leyfa
þeim að þróa bragðlaukana hægt
og rólega. „Ef börn byrja á því
að borða banana þá venjast þau
strax sæta bragðinu. Það er svo
gott að þau byrji á gulrót, rófu
eða blómkáli og kynnist sæta
bragðinu aðeins seinna. Það er
góður grunnur að byrja að borða
grænmeti,“ segir Hrefna.
Það er ýmislegt spennandi
framundan sem ekki er tímabært
að ljóstra upp strax en þær feng-
ust þó til þess að segja frá bragð-
tegund númer fimm sem verður
eftirréttur; Eplapæ! Án sykurs
auðvitað og meinhollt.
Hrefna og Rakel verða
ásamt uglunni Vöku á My Baby
sýningunni í Hörpu um helgina.
…mybaby kynningar 14 | amk… LAUGARDAGURINN 10. SEPTEMBER 2016
Rakel og Hrefna „Okkur fannst
raunar bara svo skrítið að það
væri verið að flytja allan þennan
barnamat til landsins. Þannig
kviknaði hugmyndin.“
Mynd | Rut