Fréttatíminn - 10.09.2016, Qupperneq 72
…mybaby kynningar 20 | amk… LAUGARDAGURINN 10. SEPTEMBER 2016
0,2 L
0,77 L
0,75 L
0,75 L
0,75 L0,75 L
Unnið í samstarfi við Innnes
Ávaxta- og grænmetis-safar eru góðir til að hjálpa okkur að ná að innbyrða 5 skammta af
ávöxtum og grænmeti á dag. En
það er ekki sama hvernig safar
það eru. Mikilvægt er að drekka
hreina safa sem ekki innihalda
neinn viðbættan sykur og eru
ekki búnir til úr þykkni. Og enn
betra er að safarnir séu lífræn-
ir því þá innihalda þeir meira af
næringarefnum og vítamínum.
Með hæsta gæðastimpil líf-
rænna vara
Beutelsbacher safarnir eru allir
100% lífrænir og fjölmargir þeirra
eru einnig með „demeter“ vott-
un, en það er hæsti gæðastimp-
ill sem til er fyrir lífrænar vörur.
Demeter er vottun fyrir lífafls-
ræktun (biodynamic agriculture)
og er hæsti gæðastimpill sem til
er á lífrænum vörum. Hún nær
út fyrir hefðbundnar reglugerðir
um lífræna ræktun. Lífaflsræktun
er heildræn nálgun til landbún-
aðar sem grundvallast á heildar-
sýn sem nær yfir vistfræðilega,
hagfræðilega og félagslega þætti
landbúnaðarframleiðslu, bæði er
varðar nærumhverfi og með tilliti
til allrar jarðarinnar og þær lífver-
ur sem á henni lifa.
Hreinir, lífrænir safar í 80 ár
Lífrænir safar í 80 ár
Beutelsbacher var stofnað árið
1936 af Maier fjölskyldunni í
Remstal í Þýskalandi og er í dag
rekið af þriðju kynslóð fjöl-
skyldunnar í Weinstadt í Þýska-
landi.
Vel er vandað til framleiðslu á
Beutelsbacher söfum með eins
fáum framleiðslustigum og kostur
er til þess að halda í sem mesta
næringu úr hráefninu. Engin
rotvarnarefni, ensím eða önnur
aukefni eru notuð við framleiðslu
safanna og eru þeir allir settir á
vistvænar, endurnýtanlegar gler-
flöskur.
Í öllu framleiðsluferlinu er
áhersla lögð á orkusparnað og
notkun endurvinnanlegra efna.
Keppikefli þeirra er að gæta
umhverfisins. Þau auka frjósemi
jarðvegarins með skiptiræktun,
grænum áburði og rotmassa.
Kókos-ananas safi
Ljúffengur og
frískandi safi með
framandi bragði af
ferskum ananas og
kókoshnetu. Safinn
er blandaður með
bananamauki og
appelsínusafa og
sættur með agave og
vínberjaþykkni. Þessi
safi er æðislegur í
lífræna frostpinna,
bara hella honum í
formið og frysta!
Beutelsbach-er safarnir eru 100% lífrænir. Þeir innihalda ekki neinn viðbættan sykur en eru í staðinn nærin-garríkir og fullir af vítamínum.
Eplaedik
Eplaedik hefur löng-
um verið þekkt fyrir
góð áhrif á meltingu,
brjóstsviða og
aukna slímmyndun í
líkamanum. Það ger-
ir líkamann basísk-
ari og hjálpar til við
hreinsun líkamans
ásamt því að vera
náttúrulega vatns-
losandi. Eplaedikið
frá Beutelsbacher er
ekki hitameðhöndl-
að og er því náttúru-
lega skýjað. Það er
dregið úr ógerjuðum
eplasafa sem pressaður hefur
verið úr ferskum eplum. Epla-
edikið er kaldunnið til þess að
varðveita mikilvæg næringarefni.
Prófið að byrja daginn á vatns-
glasi með 2 msk af eplaediki og
finnið áhrifin.
Spírulína safi
Spírulína þörungar
innihalda mikið magn
næringarefna, þeir
styrkja varnir líkam-
ans og auka orku og
vellíðan. Sumum líkar
ekki bragðið af spíru-
lína en í þessum safa
er það vel blandað í
ávaxtasafa og bragð-
ast mjög vel. Uppi-
staðan í þessum safa
er ferskpresssaður
mangósafi og appel-
sínusafi, hann er líka
gerður aðeins sætari
með agave og vínberjaþykkni.
Gott er að skella einum svona í sig
þegar seinniparts þreytan gerir
vart við sig.