Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 48
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Lífslíkur eftir greiningu krabbameins eru alltaf að aukast. Hér áður fyrr voru ekki miklar líkur á því að fólk lifði af ef það fékk krabbamein. Þannig að nú erum við að glíma við lúxusvanda­ mál,“ segir Hulda Hjálmarsdóttir, formaður Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess. Nú er verið að koma á fót svokall­ aðri miðstöð síðbúinna afleiðinga krabbameins barna og unglinga, en með auknum lífslíkum fjölgar þeim sem glíma við bæði líkamlegar og andlegar aðfleiðingar krabba­ meinsmeðferðar. Styrktarfélag krabbmeinssjúkra barna styrkir verkefnið og miðstöðin verður opn­ uð í október. Hefur áhrif á félagsþroska „Með þessari miðstöð verður búið til utanumhald um þennan hóp sem lifað hefur af og þarf að lifa með síðbúnum afleiðingum eftir krabbameinsmeðferð. Miðstöð­ in mun kalla inn alla þá sem hafa fengið meðferð frá árinu 1981 og voru undir 18 ára aldri þegar með­ ferðin hófst. Eftir fylgdin hefur þann tilgang að efla heilsu og lífs­ gæði einstaklinga eftir krabbamein með áhættumiðuðu heilsufarsmati, stuðningi og fræðslu. Að meðal­ tali greinast tíu börn á hverju ári, þannig þetta er mjög stór hópur, þótt einhverjir hafi vissulega fall­ ið frá. Hver og einn einstaklingur fær svo vegabréf sem inniheldur allar upplýsingar um þá meðferð sem hann fékk,“ útskýrir Hulda, sem þekkir síðbúnar afleiðingar krabbameins vel af eigin raun, en hún greindist með bráðahvítblæði 15 ára gömul. Hún segir miðstöð af þessu tagi hafa vantað, enda oft erfitt fyrir fólk að fara aftur út í lífið eftir langa krabbameinsmeðferð. Endurhæf­ ing er ekki hluti af meðferðinni, nema viðkomandi glími við þeim mun meiri líkamleg eftirköst. Hvað andlega þáttinn varðar verða einstaklingar sjálfir að leita sér hjálpar. „Þegar við horfum til barna og unglinga þá verða þau oft eftir á í félagslegum þroska, sérstaklega ef þau eru veik í langan tíma. Það getur reynst þeim erfitt að snúa aftur í skólann,“ bendir Hulda á. Hún segir það mjög mismunandi hvernig fólk bregst við krabba­ meinsmeðferð og hvaða síðubúnu afleiðingar það þarf að takast á við. Það er ekki hægt að ganga að því vísu að eitthvað eitt lyf eða ákveðin meðferð hafi sömu áhrif á alla. „Það er samt eitt lyf, adriamycin, sem ég fékk, sem vitað er að getur valdið drepi í hjartavöðvanum ef fólk fær of mikið af því. Þegar það lyf er gefið þarf að skoða hjartað vel, bæði fyrir og eftir, og ég þarf að fara í hjartaskoðun á fimm ára fresti. En læknar eru alltaf að reyna að finna út hve mikið má gefa af lyfinu, þannig það virki án þess að valda skaða.“ Námserfiðleikar eftir meðferð Hulda var að byrja í tíunda bekk þegar hún greindist með bráða­ hvítblæði og missti úr allan tíunda bekkinn vegna krabbameinsmeð­ ferðar. Hún tók engu að síður samræmdu prófin um vorið, eftir að hafa lokið meðferð, en fékk að vera í sérstofu með lengri próf­ tíma. Henni gekk vel í prófunum en kennarnir á spítalanum hjálp­ uðu henni mikið. Eftir grunn­ skólann lá svo leiðin í Menntaskól­ ann við Hamrahlíð. „Ég ólst upp í Kópavoginum og ég vildi fara í annað hverfi í skóla. Allir í Kópa­ voginum vissu að ég hefði verið veik og í hugum fólks var ég stelp­ an sem fékk hvítblæðið. Ég vildi losna við þann stimpil og sótti því um í MH.“ Þegar komið var í menntaskóla byrjaði hins vegar að bera erfiðleik­ um hjá Huldu við lærdóminn. Hún hafði alltaf verið góður námsmað­ ur og það var henni þungbært að geta ekki staðið sig jafn vel og áður, og hún taldi sig hafa getu til. „Það tók mig miklu lengri tíma að læra. Dönskukennarinn minn spurði mig til dæmis fyrir jólaprófin hvort ég væri lesblind því ég náði aldrei að klára verkefnin í tímum. Þetta var mikið sjokk því ég hafði alltaf verið góður námsmaður. Hún benti mér á að tala við námsráðgjafa því hún hafði áhyggjur af því ég myndi ekki ná lokaprófunum. Sem ég gerði með kökkinn í hálsinum. Ég fann sjálf að það var eitthvað að hamla mér,“ segir Hulda, en enginn af kennurum hennar í MH vissi að hún hafði nýlokið erfiðri krabba­ Fékk alvarlega kvíðaröskun í kjölfar krabbameinsmeðferðar Hulda Hjálmarsdóttir greindist með bráðahvítblæði þegar hún var 15 ára og hefur glímt við síðbúnar afleiðingar þess. Á tímabili gat hún varla borðað og sofið vegna kvíða. Verið er að koma á fót miðstöð síðbúinna afleiðinga krabbameins- meðferðar sem mun hafa þann tilgang að efla lífsgæði einstaklinga eftir krabbamein, veita stuðning og fræðslu. meinsmeðferð. „Ég sagði engum frá því. Ég var byrjuð að fá hárið aftur á þessum tíma þannig það var bara eins og ég væri snoðklippt. Og ef fólk spurði mig þá sagði ég að ég hefði klippt mig því mér þætti það flott. Mér fannst fólk nefni­ lega koma öðruvísi fram við mig ef það komst að því að ég hefði verið veik. Ég var ennþá bara Hulda þó ég hefði gengið í gegnum þessa lífs­ reynslu.“ Upplifði mikla andlega vanlíðan Hulda fór í ýmis konar próf til að reyna að finna út í hverju námsörð­ ugleikarnir fólust. Í ljós kom að hún hafði góðan lesskilning en það tók hana mjög langan tíma að meðtaka texta. „Læknarnir vildu meina að skammtímaminnið mitt væri skert. Það er þekkt afleiðing af tíðum svæfingum að skammtíma­ minni versnar, en oft gengur það til baka,“ útskýrir Hulda. „Ég var samt mjög metnaðar­ full og vildi standa mig vel. Það fór að valda mér rosalega mikl­ um kvíða. Náms­ og prófkvíða. Ég gat ekki staðið mig jafn vel og ég vildi. Þetta háði mér mjög mikið, bæði í menntaskóla og háskóla. Ég hætti að geta borðað og sofið. Þetta þróaðist svo út almennan kvíða og ég var komin með mikla kvíðarösk­ un. Ég vaknaði alltaf með hjartslátt og upplifði mikla andlega vanlíðan. Ég prófaði alls konar leiðir til að draga úr kvíðanum. Fór til dæmis á námskeið hjá Kvíðameðferðarstöð­ inni og í jóga. Það hjálpaði mér eitt­ hvað en kvíðinn var alltaf undir­ liggjandi og hann hamlaði mér. Það var ekki fyrr en í fyrrahaust að ég prófaði að fara á kvíðalyf og þau hafa hjálpað mér virkilega mikið. Allt í einu hvarf þessi slæma tilfinn­ ing sem ég var búin að finna fyrir svo ótrúlega lengi. Það er mjög gott að geta vaknað á morgnana og vera ekki með hjartað í buxunum. Lyf­ in hafa líka hjálpað mér að hugsa skýrar. Þegar maður er svona hel­ tekinn af kvíða þá hugsar maður svo óskýrt,“ segir Hulda en hún útskrifaðist úr sálfræði frá Háskóla Íslands í fyrravor. Hefur verið lánsöm Kvíðinn er þekkt afleiðing af krabbameinsmeðferð. Þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum lífs­ hættuleg veikindi og upplifað raunverulega erfiðar aðstæður, þá geta tiltölulega einföld verkefni í daglegu lífi varið að valda kvíða. „Kvíðinn er ekki rökréttur. Þér líður eins og þú sért í lífsógnandi aðstæðum, þó þær séu það alls ekki. Pabba mínum fannst það til dæmis mjög ólógískt að ég væri að skíta í buxurnar yfir einhverju prófi þegar ég var búin að kom­ ast yfir miklu stærri hindranir í lífinu.“ Ein helsta alvarlega síðbúna afleiðingin af krabbameinsmeð­ ferð er ófrjósemi, en Hulda segir lækna vilja meina að hún geti eignast börn. Hún hefur þó ekki látið á það reyna. „Ég hef verið mjög lánsöm hvað varðar líkam­ legar afleiðingar. Námsörðugleik­ ar og kvíði eru þær síðbúnu af­ leiðingar sem ég hef helst verið að glíma við. En það skiptir mig engu máli stóra samhenginu, ég er bara þakklát fyrir að vera á lífi. En það skiptir auðvitað máli að opna Lánsöm Huldu finnst það ekki skipta máli í stóra samhenginu að hún glími við kvíða og skert skammtímaminni. Mestu máli skiptir að hún er á lífi. Mynd | Rut þessa umræðu, að segja frá hvað fólk þarf að díla við eftir krabba­ meinsmeðferð.“ Óttaðist að deyja Það var Huldu eðlilega mikið áfall að greinast með hvítblæði á sínum tíma. Í staðinn fyrir að hefja nám í tíunda bekk eins og stóð til, var henni kippt inn í krabbameinsmeð­ ferð. Þetta gerðist allt mjög hratt. Greiningin kom á fimmtudegi og meðferðin hófst á mánudegi. „Fyrsta spurningin sem ég spurði lækninn minn var reyndar kannski svolítið grunnhyggin, en ég spurði hvort ég myndi missa hárið,“ segir Hulda og hlær. „En svo tók við mjög mikill ótti við að deyja. Ég upplifði þá tilfinningu að vita að kannski fengi ég ekki að lifa mikið lengur. Það er mjög skrýtið að vera stillt svona upp við vegg. Þetta var erfitt á þessum aldri. Ég var í svo mikilli einangrun og gat ekkert hitt skóla­ félaga mína. Ég held að ég myndi samt ekki vilja skipta út þessari lífsreynslu. Hún hefur kennt mér svo ótrúlega margt. Ég kynntist líka svo yndislegu fólki á spítalanum. Bæði starfsfólki og þeim sem voru í meðferð. Ég eignaðist til dæmis minn fyrsta kærasta á spítalanum. Hann var líka að ganga í gegnum krabbameinsmeðferð. Við vorum á sama aldri og urðum mjög góðir vinir. Það gerðist reyndar ekkert á milli okkar fyrr en ég hafði lokið minni meðferð.“ Hulda segir það hafa verið mjög þroskandi að takast á við veik­ indin. Bæði sín eigin og svo vera í sambandi með strák sem var glíma við svipaða erfiðleika. „Á fyrsta árinu mínu í menntó þegar allir voru að hugsa um að djamma, þá var kærastinn minn í krabba­ meinsmeðferð og ég að jafna mig eftir meðferð. Þetta var allt annar veruleiki heldur en jafnaldrar mín­ ir lifðu í. Fyrsta árið átti ég því erfitt að samsama mig með jafnöldrum mínum. Mér fannst fólk ekki skilja mig og það tók mig tíma að leyfa mér að verða unglingur aftur.“ Inn í félagið fyrir tilviljun Hulda finnur stundum fyrir því að fólki finnist skrýtið að hún sé for­ maður Krafts, enda komin 13 ár frá því hún kláraði krabbameinsmeð­ ferðina sína. En málefni þeirra sem greinst hafa með krabbamein eru henni enn mjög hugleikin. Um er að ræða sjálfboðastarf og þarf áhuginn því virklega að vera til staðar. Sjálf fór Hulda inn í félag krabba­ meinssjúkra barna þegar hún greindist, enda var hún aðeins 15 ára. Frá 19 ára aldri hefur hún svo séð um stuðningshóp hjá félaginu. En það eru aðeins fimm ár síðan hún, fyrir algjöra tilviljun, fór að taka þátt í starfinu hjá Krafti. Hún þurfti að gera sér ferð í húsakynni Krafts til að kaupa bók fyrir kúrs í HÍ. Þar lenti hún á kjaftatörn við framkvæmdastjórann sem bauð henni að koma í stjórn. „Þetta er mál sem er mér hjartfólgið og finnst skipta máli. Ég fann það sjálf þegar ég lá á spítalanum að mér fannst vanta jafningastuðning. Mér finnst líka mikilvægt að fólk hafi einhver úrræði þegar það er að greinast. Ég virkilega brenn fyrir þessu, og það er örugglega ástæðan fyrir því að ég er ennþá að starfa fyrir félagið,“ segir Hulda og brosir. 280cm 98cm 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega 20% afsláttur af öllum vörum til 17. júní Túnika kr. 3000 Bláu húsin Fax feni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komna ftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vörur daglega Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum upp nýjar vöru dagleg Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11- 6 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta Loksins komnar aftur *leggings háar í mittinu kr. 5500. Tökum pp nýjar vörur daglega Full búð af kápum, úlpum o peysum KJÓLAR KR 2.990 ÚLPUKÁPA KR.16,900. STÆRÐIR 40-56. TASKA KR 5.900 Haustlægðir nálgast og veður fer kólnandi …viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 16. SEPTEMBER 2016 Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.