Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 24
 Fleiri myndir eftir Stas á frettatiminn.is 24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. september 2016 byggði einnig fyrstu rafstöðina á Íslandi hérna í Hafnarfirði árið 1904. Fyrstu árin okkar í Hafnarf- irði var varla nokkur lifandi vera á gangi hérna á götunum, sem er auðvitað mjög einkennandi fyrir Ís- land afþví Íslendingar fara ekki neitt án bílsins. En við sjáum þetta líka breytast núna. Í dag má sjá fólk og fjölskyldur og jafnvel hunda spáss- era um Hafnarfjarðarbæ. Við erum líka farin að hitta gamla nágranna okkar frá C is for Cookie, unga fólkið sem flytur úr Þingholtunum hingað í Hafnarfjörðinn. Síðast í dag heils- aði ég fyrrverandi fastakúnna okk- ar hérna út á götu og ég man ennþá hvað hún pantaði sér, hún fékk sér alltaf soja-latte.“ Ljósmyndarinn Stas „Ég held að ég hafi farið að ljós- mynda á sínum tíma af sömu ástæðu og unglingurinn sem finn- ur tjáningarþörf sinni útrás í gegn- um væmin ljóðaskrif, ég tók væmn- ar og einsleitar ljósmyndir. Ég var 14 ára þegar ég byrjaði að fikta með rússneska myndavél, Zenith E, sem pabbi átti. Ég og bróðir minn sem er nokkrum árum eldir en ég, þá upp- rennandi efnafræðingur, deildum herbergi í íbúðinni okkar í komm- únistablokkinni. Bróðir minn hafði umbreytt herberginu okkar í efna- fræðitilraunarstofu þannig að ég hafði aðgang að allskyns efnum og framkallaði sjálfur mínar filmur enda hafði ég ekki efni á öðru. Ég lærði mikið á þessum æfingum okk- ar í efnaheiminum, sérstaklega lærði ég að vera varkár, því eitt sinn slapp ég naumlega lifandi frá sprengingu í herberginu okkar af völdum tilrauna með efnið oxyhydrogen. En ég lærði allt sem þurfti til þess að framkalla filmur og stækka ljós- myndir. Ég bjó til myrkraherbergi á baðherberginu okkar og þegar fólkið mitt fór í rúmið á kvöldin fór ég inná baðherbergi að stækka ljósmyndir. Þetta var svo spennandi að ég átti til að gleyma stað og stund og rank- aði ekki við mér fyrr en fjölskyldan vaknaði að nýjum degi og hékk á hurðinni og þurfti að komast inn á baðherbergið.“ Bókasafnsfræðingurinn óþarfur „Það var gaman að búa með bróður mínum og þegar hann fór loksins í eiginlegt efnafræðinám þá kynnt- ist hann sínum líkum. Einn vinur hans hafði misst auga við tilraunir sínar og annar missti allt hárið eft- ir að hafa sýslað með kvikasilfur. Sjálfur fór ég í ljósmyndanám í iðn- skóla sem var í 200 km fjarlægð frá heimili mínu. Þar bjó ég í húsnæði þar sem hvorki var vatn né rafmagn og ég lærði við kertaljós. Mig langaði að læra að vinna litmyndir sem ég hafði ekki haft tækifæri til heima. Ég lærði margar aðferðir einsog „solarisation“, „izohelia“, „gum pr- ints“, og „bromoil“ í þessum skóla. En ég var óheppinn af því að þetta var á sama tíma og digital-tæknin var að taka yfir og ég var síðasti ár- gangurinn sem lærði þessa gömlu iðn við skólann. Ég var líka uppi á röngum tíma þegar ég innritaði mig í bókasafns- fræði en það var sama ár og google breytti heiminum og tók yfir upplýs- ingamiðlunina sem bókasafnið hafði haldið utan um fram að því, „story of my life“.“ Upplifun frekar en niðurstaða Stas segir útkomuna skipta sig minna máli en sjálft ferlið sem er að finna mótívið og taka sjálfa ljósmyndina. Þess vegna getur hann ekki hugsað sér að þurfa að lifa af því að vera ljós- myndari. Hann vill eiga augnablik- ið og sæluna sem því fylgir fyrir sig. En þetta er líka ástæðan fyrir því að hann segist vera lengi að klára ver- kefnin sem flest eru langtímaverk- efni. Stas er með nokkur samhliða ljósmyndaverkefni í burðarliðunum en það liggur á. „Til dæmis er ég að elta ferðamenn með agnarlítil tjöld á tjaldsvæðinu okkar í Hafnarfirði. En ég hitti þá svo sjaldan við tjöldin sín og hef því aðeins náð tveimur myndum hingað til. Áramótabrenn- ur er annað viðfangsefnið mitt, en þá fylgist ég með brennunni áður en það er kveikt í henni og mynda hana yfir daginn, en þetta hef ég gert í tvö ár og sé fram á að það verði í nokkur ár í viðbót.“ Göngutúr um Hafnarfjörð „Ég vann í fjögur ár á lyftara, fyrst hjá Atlantsskip og síðan hjá Öl- gerðinni. Á meðan á því stóð tók ég nánast engar myndir en byrjaði aft- ur þegar ég vann á C is for cookie, og hef haldið því áfram eftir að ég gerðist heimavinnandi. Stas lagði í vana sinn að fara langa göngutúra, sérstaklega með Eryk sem átti erfitt með svefn nema að hann væri á hreyfingu. Á þessum göngutúrum fór ég að taka myndir sem ég setti síðan saman í bókina mína HFJ. Sjálfum finnst Stas myndirnar ekki vera neitt pólskar, jú okei þarna er ein Lada, en það er fólk allstaðar í Póllandi og því algjört fágæti að ná myndum af mannvirkjum þar sem ekki er eitthvert fólk líka. Hérna labba ég heilan dag í íbúðahverfi í Hafnarfirði og hitti varla manneskju á ferli. Að vísu var ég oftast að ganga með börnin á þeim tíma sem venju- legt fólk er í vinnu og skóla sem skýr- ir kannski auðnina. Myndirnar frá Hafnarfirði er að finna á heimasíðu Stas þar sem einnig er hægt að nálg- ast bókina hans HFJ. http://stan.is Útlendingar í iðnaðarhverfum Stas og Agnieszka sjá gjarnan veg- villta túrista í Lækjargötu í Hafnar- firði með útbreitt kort af Reykjavík að leita að Lækjargötu í miðbæ 101 Reykjavík. „Íslendingar eru nú ekki mikið fyrir merkingar, þeir miða við að allir séu innfæddir og þekki göturnar í sínu heimalandi,“ seg- ir Stas sem er þó manna fróðastur um hverfi borgarinnar sem hann hefur gengið um og myndað síð- astliðin ár. Pólverjarnir vilja flestir búa í Breiðholti segir Stas og undr- ar sig á því, en það er líklega vegna þess að þá eru þeir nálægt frænd- um og frænkum og vinum sínum. En margir útlendingar leigja í iðnað- arhverfunum, og það er til dæmis hægt að sjá það á gervihnattadisk- unum sem eru utan í bílskúrum og skemmum í þessum hverfum, að þar býr reyndar fólk. Mannlífið í iðnaðarhverfunum Stas keyrir með okkur í eitt slíkt iðnaðarhverfi sem við fyrstu sýn virðist vera alveg líflaust á þessum sunnudegi en þegar við stígum út úr bílnum þá kemur rúmensk fjöl- skylda gangandi niður götuna, hjón með ungan strák á skólaaldri, fjöl- skyldan virðist vera hamingjusöm, allavega eru þau að ræða eitthvað sem skemmtir þeim. Stuttu síðar koma tveir bílar keyrandi úr gagn- stæðri átt og stoppa, bílstjórarnir renna niður bílrúðunum og taka saman spjall á arabísku. Ungt par leggur nýjum drapplituðum og gljá- andi fínum bíl sínum og gengur inn í hús þar sem er heildsala á neðri hæðinni, þau eru bæði í jogging- galla og ganga upp á aðra hæð með innkaupapoka sína. Krúnurakaður maður kemur út og fleygir sorpinu í ruslatunnu sem stendur upp við húsvegginn. Þetta hefði hinsvegar verið ósköp venjulegt iðnaðarhverfi með vöruskemmum og heildsölum þar sem starfssemi liggur niðri á miðjum sunnudegi ef ekki Stas hefði verið með í för og opnaði rifu í heim útlendinga á Íslandi, þeirra sem hafa hreiðrað um sig í iðnaðarhverfum borgarinnar, góðum og slæmum. „Góð og slæm hverfi“ Jafnframt því að safna ljósmynd- um úr hverfum borgarinnar held- ur Stas úti skoðanakönnun um „góð og slæm“ hverfi á vefsíðu sinni. „Það hvarflar að mér að sum hverfi þyki verri í huga Íslendinga af því að þar búa útlendingar. Ég hef heyrt fólk segja hluti einsog „ég gæti aldrei hugsað mér að búa á Völlunum í Hafnarfirði“ eða að Breiðholt sé gettó. Ég fór því að velta fyrir mér hvort vondu hverfin væru ódýrari vegna þess að þar búa útlendingar eða hvort ástæðan fyrir því að útlendingarnir búi í „slæm- um“ hverfum sé sú að þar sé fast- eignaverðið lægra. Vegna minna aðstæðna, en ég ólst upp í Austur- -Evrópu á níunda áratugnum sem var ekki spennandi umhverfi, en þess vegna finnst mér alltaf skondið þegar Íslendingar tala um „góð og slæm“ hverfi. Fyrir mér eru aðeins „góð og betri“ hverfi í Reykjavík seg- ir Stas en það er hægt er að kjósa um “góð og slæm” hverfi í Reykjavik á vefsíðu hans. Skoðanakönnun Stas um „good and bad neighbourhoods: http://stan.is/q/z Stas kom tæpu ári á undan Agnieszku til landsins eða árið 2006. Íslenskur athafnarmaður sem hafði milligöngu um starf og húsnæði fyrir pólskt verkafólk leigði honum þennan svefn- kassa á 35 þúsund kr. Stas fór að velta fyrir sér hvort „slæmu“ hverfin væru ódýrari vegna þess að þar búa útlendingar eða hvort ástæðan fyrir því að útlendingarnir búi í „slæmum“ hverfum sé sú að þar er fasteignaverðið lægra. Mynd | Stas Margir útlendingar leigja í iðnað- arhverfunum, og það er til dæmis hægt að sjá það á gervihnattadisk- unum sem eru utan á bílskúrum og skemmum í þessum hverfum, að þar býr reyndar fólk. Mynd | Stas Munndreifitöflur 250 mg Pinex® Smelt H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 5 1 1 0 7 2 Mikið úrval! Álfar, riddarar, dýr, ofurhetjur osfrv. www.krumma.is Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 Handmáluðu fígúrurnar frá SCHLEICH fást í verslun við Gylfaflöt 7 ®
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.