Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. september 2016 Þegar hjónin Ólöf S. Sigur- jónsdóttir og Guðmundur Jónasson tóku við kjúklinga- búinu í Straumi í Straums- vík árið 1976 voru þau ung og full bjartsýni. Eftir að hafa misst alla fuglana úr óútskýrðum veikindum og háð níu ára baráttu vegna flúormengunar við Íslenska álfélagið voru hjónin hins vegar í sárum. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Þrjátíu ár eru liðin frá því að dóm- ur var kveðin upp í máli Guðmund- ar Jónassonar kjúklingabónda í Straumi í Straumsvík gegn ÍSAL, Íslenska álfélaginu. Ólöf og Guðmundur eiga erfitt með að horfa til baka og rifja málið upp. Eftir að hafa misst fuglana sem áttu að sjá sex manna fjölskyldunni farborða og hafa síðar eytt níu árum í baráttu við risavaxið al- þjóðlegt álfyrirtæki án árangurs, var fjölskyldan í sárum. Þau segjast hafa grafið málið þegar dómur féll og reynt að tala sem minnst um það. „Við þurftum að halda áfram, það var ekkert annað í boði,“ segir Ólöf. „Á þessum tíma vantaði alla sam- stöðu milli fólks um þessi mál. Það var einhver kæf- ing í gangi. Þetta var eitt- hvað aðeins rætt í frétt- um en svo bara gleymdist þetta.“ Ung og full bjartsýni Guðmundur og Ólöf áttu fjögur börn og bjuggu í sinni eigin íbúð í Hafnarfirði þegar þau tóku ákváðu að taka kjúklingabú- ið í Straumi á leigu sumarið 1976 og gerast kjúklingabændur. Þau voru staðnum vel kunnug því Guð- mundur hafði verið bústjóri á bú- inu nokkrum árum áður og hafði þá fjölskyldan búið í gamla bænum og líkaði vel. „Hefði maður vitað að eitthvað gæti komið fyrir hefði maður ekki farið út í þetta. Það var rekið þarna bú áður og aldrei neitt komið fyr- ir svo okkur datt þetta ekki í hug,“ segir Guðmundur. „Okkur leist vel á að fara út í þetta,“ segir Ólöf. Kjúklingur var vinsæll og góður matur á þessum tíma og okkur þótti þetta ákjósan- legt. Þetta var góður markaður og okkur langaði til að gera eitthvað nýtt og spennandi. Okkur datt ekki í hug að eitthvað kæmi fyrir enda vorum við ung og full af bjartsýni.“ Grunaði flúormengun Stuttu eftir að þau tóku við búinu fóru fuglarnir að drepast og þó alltaf séu einhver afföll í kjúklingarækt fór Guðmund og Ólöfu að gruna að eitt- hvað verulega mikið væri að þegar minna en helmingjur fuglanna komst á legg. Í lok ársins þurftu þau að selja íbúðina sína í Hafnafirði til að ná endum saman. Þau vonuðust alltaf til að ræktin myndi ná sér á strik en það gerðist aldrei og rúm- lega ári eftir að þau tóku við búinu þurftu þau að slátra síðustu fuglun- um. Á þessum tíma var töluverð fjöl- miðlaumfjöllun um mengun frá Við ofurefli að etja Kjúklingabændurnir í Straumi horfa til baka Straumur í Straumsvík. Hjónin Guðmundur Jónasson og Ólöf S. Sigurjónsdóttir gerðust kjúklingabændur í Straumi árið 1976. Ári síðar höfðu þau misst allt sem þau áttu. Guðmundur og Ólöf hafa aldrei rifjað málaferlin upp fyrr en nú og treystu sér ekki til að láta ljósmynda sig fyrir umfjöllunina. Þau segja þetta hafa verið hrikalegan tíma en þau hafi komist yfir erfiðleikana saman. „Við bjuggum í fjórum leiguíbúðum þar til við enduðum á að byggja okkur hús hér í Hafnafirði. Hér höfum við verið síðan og lifað góðu og hamingjuríku lífi í mörg ár,“ segir Ólöf. Mynd | Hari Vildu byrja upp á nýtt Guðmundur var bústjóri á kjúklingabúinu á Straumi á ár- unum 1971-1973 en haustið 1976 tóku þau Ólöf kona hans búið á leigu og keyptu bústofn og annað til rekstursins. Stuttu síðar fóru fuglarnir að drepast og um veturinn 1977 voru afföllin 54%. “Þegar við tók- um við kjúklinga- búinu vildum við byrja upp á nýtt og gera það vel. Við hugsuðum rosa- lega vel um þessa fugla. Svo fóru þeir að deyja og við skildum þetta ekki fyrr en við fórum að hugsa um meng- unina frá álverinu.” Ólöf Sigurjónsdóttir. Mynd | Skjáskot úr Helgar- póstinum, 5.11.82.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.