Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. september 2016 Leyndarhyggja og lungnabólga Þar sem forsetaframbjóðendum er fylgt eftir af sjónvarpsmyndavél- um við hvert fótmál náðist atvikið á mynd og upptaka af því var spiluð linnulaust á öllum sjónvarpsstöðv- um. Sérfræðingar voru kallaðir inn til að velta vöngum yfir heilsu Clint- on, því hvað amaði í raun að henni og hvaða þýðingu það hefði fyrir kosningabaráttuna. Kosningaskrifstofa Clinton stað- hæfði í fyrstu að Hillary hefði of- hitnað og fengið svima, en hitinn í New York þá um morguninn var um 27 gráður. Síðar um daginn var svo birt yfirlýsing frá lækni Hillary, þar sem fram kom að hún hefði þjáðst af slæmum hósta undanfarið sök- um árstíðabundins ofnæmis en við læknisskoðun á föstudeginum fyr- ir athöfnina hefði hún greinst með lungnabólgu og í kjölfarið fengið sýklalyf. Við minningarathöfnina á Stærsta fréttin úr banda- rísku forsetakosningun- um í síðustu viku, eða í það minnsta sú sem hefur vakið mesta athygli, eru veikindi Hillary Clinton á minningarathöfn um hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001, í New York síðastliðinn sunnudag. Eftir að hafa meðal annars rætt við fjölskyldur fólks sem lést í árásunum þurfti Hillary að yfirgefa athöfnina í skyndi, áður en dagskránni var lokið Á leiðinni að bíl sínum fékk hún svo aðsvif með þeim afleiðingum að lífverð- ir hennar þurftu að styðja hana og hjálpa henni upp í bílinn. Magnús Sveinn Helgason ritstjorn@frettatiminn.is sunnudag hefði hún hinsvegar bæði ofhitnað og ofþornað með þeim af- leiðingum að hún örmagnaðist. Hún hefði í kjölfarið fengið viðeigandi að- hlynningu og á góðum batavegi og ef marka má dagskrá Clinton síðustu daga virðist hún hafa náð fullum bata. Lungnabólga og leyndarhyggja Þessi uppákoma, og fjölmiðlaum- fjöllunin um hana, er merkileg fyrir margra hluta sakir og full ástæða til að staldra við og velta henni fyrir sér. Fyrir utan augljósar spurningar um heilsufar frambjóðendanna, bæði Hillary Clinton og Donald Trump, hafa fjölmiðlar velt því fyrir sér hvaða þýðingu það myndi hafa fyrir kosningabaráttuna ef Clint- on væri í raun alvarlega veik og neyddist til að draga framboð sitt til baka. Hvernig færi flokkurinn að því að skipta um forsetaframbjóðanda á lokametrunum? Þótt heilsufar Clinton hafi í upp- hafi verið stóra fréttin í málinu snérist athyglin hins vegar fljótlega að því af hverju Clinton hefði kosið að þegja um veikindin, enda hefur Hillary ítrekað verið gagnrýnd fyr- ir að koma ekki hreint til dyranna. Einn þeirra sem gagnrýndi þetta var David Axelrod, fyrrum ráðgjafi Obama, sem sagði á Twiter „sýkla- lyf geta læknað lungnabólgu. En hvaða lækning er við óheilbrigðri leyndarhyggju sem virðist hvað eft- ir annað skapa alvarleg vandamál?“ Fjölmargir hafa tekið undir orð Axelrod, og gagnrýna Hillary fyrir það sem þeir telja að sé margítrekað ósannsögli og ógagnsæi og lungna- bólga Hillary er þannig orðin að birtingarmynd alvarlegra vanda- máls. Newt Gingrich, þingforseti Repúblíkanaflokksins í neðri deild Bandaríkjaþings árin 1995 til 1999, og einn harðasti andstæðingur Clint- on-hjónanna á tíunda áratugnum, sagði í viðtali við Sean Hannity, þáttastjórnanda á Fox News að það væri ómögulegt að treysta yfirlýsing- um lækna Clinton, og að það gilti í raun einu hvaða gögn þeir gerðu op- inber, því það væri engu að treysta þegar Clinton-hjónin væru annars vegar. Ógagnsæjustu frambjóðendurni Aðsvif Clinton og umræðan um meint ógagnsæi í herbúðum henn- ar hefur líka vakið upp að nýju spurningar um heilsu og heiðar- leika Donald Trump, enda nær Clinton ekki með tærnar þar sem Trump er með hælana þegar kem- ur að ógagnsæi. Trump hefur til dæmis staðfastlega neitað að birta skattframtöl sín, með þeim rökum að umsvif hans séu það mikil og viðskipti svo flókin að fólk myndi misskilja framtölin og snúið yrði út úr upplýsingum í þeim til þess eins að koma á hann höggi. Þetta hefur auðvitað vakið spurningar um hvað hann sé að reyna að fela. Einu upplýsingarnar sem Trump hefur birt um heilsufar sitt er undarlegt bréf frá meltingarfæra- lækni sem segist hafa sinnt Trump í áratugi. Í bréfinu, sem er hálf blaðsíða á lengd og fullt af stafsetn- ingarvillum. er því haldið fram að nái Trump kjöri verði hann „hraust- asti forseti í sögu Bandaríkjanna“. Bréfið vakti skiljanlega athygli fjöl- miðla þegar það var birt, en frásögn læknisins af tilurð þess er þver- sagnakennd, auk þess sem hann segir að það hafi verið skrifað í miklum flýti. Þó Trump drekki ekki áfengi og hafi aldrei reykt má setja spurningamerki við það hvort það geti staðist að hann verði hraust- asti forseti Bandaríkjanna, nái hann kjöri, því hann yrði þá elsti forseti Bandaríkjanna. Meðal þeirra sem endurtístu færslu Axelrod var Kellyanne Conway, kosningastjóri Trump, Hvað gerist ef Hillary Clinton dregur framboð sitt til baka? Hillary Clinton kemur á minn- ingarathöfn í New York vegna hryðjuverkaárásanna 11 sept- ember 2001. Stuðningsmenn Trump, og hægrisinnaðar fréttaveitur á borð við Breit- barg News hafa að undanförnu dreift samsæriskenningum um að Clinton sé að fela alvarleg veikindi og sé við dauðans dyr. Leyndin sem hafði hvílt yfir lungnabólgu Clinton varð til þess að kynda undir þessar samsæriskenningar. Ronald Reagan Repúblíkani 73 1984 endurkjör Bob Dole Repúblíkani 73 1996 náði ekki kjöri John McCain Repúblíkani 72 2008 náði ekki kjöri Donald Trump Repúblíkani 70 2016 ? Ronald Reagan Repúblíkani 69 1980 kjörinn forseti Hillary Clinton Demókrati 69 2016 ? G.H.W. Bush Repúblíkani 68 1992 kjörinn forseti Dwight D. Eisenhower Repúblíkani 66 1956 endurkjör Mitt Romney Repúblíkani 65 2012 náði ekki kjöri Harry Truman Demókrati 64 1948 kjörinn forseti William Jennings Bryant Demókrati 40 1900 náði ekki kjöri Thomas Dewey Repúblíkani 42 1944 náði ekki kjöri John F. Kennedy Demókrati 43 1960 kjörinn forseti Theodore Roosevelt Repúblíkani 46 1904 kjörinn forseti Thomas Dewey Repúblíkani 46 1948 náði ekki kjöri Bill Clinton Demókrati 46 1992 kjörinn forseti Richard M. Nixon Repúblíkani 47 1960 náði ekki kjöri Barack Obama Demókrati 47 2008 kjörinn forseti Williams Jennings Bryant Demókrati 48 1908 náði ekki kjöri Wendell Wilkie Repúblíkani 48 1940 náði ekki kjöri flokkur aldur á kosningadag kosingaár 10 elstu forsetaframbjóðendur Bandaríkjanna síðan 1900 Aldur forsetaframbjóðenda Hillary Clinton og Donald Trump eru með elstu forsetaframbjóðendum í sögu Bandaríkj- anna. Trump, sem er fæddur 14 júní 1946 yrði kominn á áttræðisaldur þegar hann tæki embættiseiðinn í janúar, sem myndi gera hann að elsta forseta í sögu Bandaríkjanna. Clint- on, sem er fædd 26 október 1947 yrði 69 ára gömul í janúar og næst elsti forsetinn í sögu Bandaríkjanna, nærri níu mánuðum yngri en Reagan þegar hann tók við embætti. Reagan var líka 69 ára gamall þegar hann sór embættiseið 20 janúar 1980, tveimur vikum áður en hann fagnaði 70 ára afmæli sínu. 10 yngstu forsetaframbjóðendurnir síðan 1900 M yn di r | N or di cP ho to s/ G et ty Im ag es
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.