Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 16.09.2016, Blaðsíða 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 16. september 2016 liðið fer á í röð og í þetta skiptið hlýtur að vera fullkomlega raunhæft að búast við góðri frammistöðu hjá liðinu. Landsliðskonurnar hafa öðl- ast reynslu af stórmótum og nokkrar þeirra búa svo vel að hafa tekið þátt í báðum úrslitakeppnunum áður. Það er því ólíklegt að taugatitringur aftri þeim. Reynslan, getan og græðgin í að ná árangri er til staðar. Svo getur allt gerst. Ekki peningar, en tækifæri samt Ein helsta breytingin sem orðið hefur á kvennaboltanum á undan- förnum tíu árum, eða frá því að ís- lenska landsliðið keppti fyrst í úr- slitakeppni EM, er gríðarleg fjölgun landsliðskvenna í atvinnumennsku. Meira hefur reyndar komið til og fjölmiðlaathyglin hefur líka auk- ist. Það var fátítt fyrir þann tíma að íslenskar fótboltakonur hefðu atvinnu af því að spila í útlönd- um. Fótboltafærni þeirra nýtt- ist þá aðallega til að komast á fót- boltastyrkjum inn í flotta háskóla, til dæmis í Bandaríkjunum. María Björg Ágústsdóttir sem lengi var varamarkmaður landsliðsins, sótti nám í bæði Harvard og Oxford og spilaði með skólaliðunum þar. Þóra B. Helgadóttir, sem lengi þótti með bestu markmönnum heims, fór í nám í Duke University en systir hennar og landsliðsfyrirliðinn Ást- hildur Helgadóttir fór til Vander- bilt, einnig í Bandaríkjunum. Yngri leikmenn, svo sem Katrín Ómars- dóttir og Thelma Björk Einarsdótt- ir stunduðu báðar nám í Berkley University, og Dagný og Elín Metta í Florida State. Listinn er ótæmandi. Því þó peningar hafi hvergi verið áberandi í kvennabolta í heiminum, hafa íslenskar fótboltastelpur fengið fjölmörg tækifæri til að mennta sig í útlöndum vegna hans. Íslenska innrásin Um það leyti sem landsliðið komst á Evrópumeistaramótið í fyrsta sinn, var eins og íslenskar landsliðskon- ur gerðu innrás í sænsku deildina, en hún þykir ein sú albesta í kvennaknattspyrnu í heiminum. Þar hafði raunar Ásthildur Helga- dóttir unnið frækna sigra í gegnum tíðina, og rutt brautina fyrir aðrar fótboltakonur. Íslenska innrásin, eins og sænskir fjölmiðlar kölluðu hana, var held- ur betur eftirtektarverð. Mark- vörðurinn Guðbjörg Gunnarsdótt- ir og varnarmaðurinn Guðrún Sóley Gunnarsdóttir gengu til liðs við Djurgarden, aðal Stokkhólms- -liðið, en Guðbjörg færði sig síðar til Noregs og Þýskalands. Margrét Lára Viðarsdóttir fór til Linkjöping og síðar Kristianstad og svo aftur heim. Edda Garðarsdóttir og Ólína Viðarsdóttir léku meðal annars með Örebro. Sara Björk Gunnars- dóttir gekk síðar til liðs við Mal- mö þar sem Dóra Stefánsdóttir var einnig, og varð fjórum sinnum Sví- þjóðarmeistari með liðinu áður en hún færði sig í þýsku deildina. Allar þessar stelpur vöktu mikla athygli í sænska fótboltaheiminum. Aðrar landsliðskonur fóru til Nor- egs, svo sem þær Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Ásta Árnadóttir. Hólm- fríður Magnúsdóttir reyndi fyrir sér í Bandaríkjunum en fór síðar til Noregs. Ungliðinn Rakel Hönnu- dóttir fór til Danmerkur. Hallbera Guðný Gísladóttir spilaði á Ítalíu. Síðan hafa orðið miklar hrókeringar og landsliðskonurnar hafa flakkað milli sterkra félagsliða í útlöndum og á Íslandi. Stelpurnar eru nú í 16. sæti á heimslista FIFA og þær níundu efstu meðal Evrópuþjóða. Í landsliðshópnum sem til- kynntur hefur verið fyrir komandi leiki, eru stelpur sem bæði hafa verið atvinnumenn í þónokkurn tíma og farið á báðar undankeppn- ir Evrópmeistaramótsins. Liðið er því skipað gömlum kemp- um sem hafa oft áður leikið á móti stórliðum. Til viðbótar eru yngri stelpur sem hafa frá unga aldri æft við kjöraðstæður, á upphituðum gervigrasvöllum og innanhúsvöll- um. Þær hafa fengið betri þjálfun af mentuðum þjálfurum í betri húsa- kynnum. Reyndar virðist margst hafa breyst í kvennaknattspyrnu á undanförnum árum. Árið 2009 voru ekki mörg dæmi um að leik- menn kæmu aftur í landsliðið eftir að hafa eignast börn. Margrét Lára sem trónir á topp-tíu lista marka- hæstu leikmanna UEFA, hefur hins- vegar snúið fílefld tilbaka í liðið sitt, eftir að hafa eignast lítinn strák fyr- ir tveimur árum. Inn í liðið hefur svo fikrað sig hin stórhættulega litla systir hennar, Elísa Viðarsdóttir, sem einnig fékk sitt fótboltaupp- eldi á malarvellinum í Vestmanna- eyjum. Dóra María Lárusdóttir hvarf af sjónarsviðinu árið 2014 og það kom skemmtilega á óvart að sjá nafn hennar á ný í landsliðshópn- um. Dóra María hefur komið aftur endurnærð eftir þónokkurt hlé en hún var ein af lykilleikmönnun- um í landsliðinu sem fyrst komst á Evrópumeistaramót. Hún skor- aði tvennu í frægum úrslitaleik gegn Írum á ísilögðum Laugardals- velli og átti þannig risastóran þátt í að tryggja liðinu þátttökurétt í undankeppninni 2009. Berjast enn fyrir tilveruréttinum Enn eru þó þúsund ástæður fyr- ir því að veita kvennalandsliðinu í fótbolta sérstaka athygli og styðja það í þeirri miklu baráttu sem framundan er. Jafnrétti kynjanna er fjarstæða í fótboltaheiminum og á meðan landsliðsmennirnir okkar fá milljónir í bónusa og eru seldir á háar fjárhæðir milli félagsliða, eru atvinnukonur í knattspyrnu enn að borga með sér. Þær þurfa enn að berjast fyrir tilverurétti sínum, fyrir því að fá jafngóða æfingatíma á vellinum og strákarnir, fyrir því að fá fjölmiðlaumfjöllun um stóra leiki. Fyrir því að fá áhorfendur á leiki. Fréttatíminn mælir með því að þeir sem ekki enn hafa séð hvað býr í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta, geri sér ferð á Laugardals- völlinn í dag. Í landsliðshópnum sem tilkynntur hefur verið fyrir komandi leiki eru stelpur sem bæði hafa verið atvinnu- menn í þó nokkurn tíma og farið á báðar undankeppn- ir Evrópmeistaramótsins. Enn eru þó þúsund ástæður fyrir því að veita kvennalandsliðinu í fótbolta sérstaka athygli og styðja það í þeirri miklu bar- áttu sem framundan er. Jafnrétti kynjanna er fjarstæða í fótboltaheiminum og á meðan landsliðsmennirnir okkar fá milljón- ir í bónusa og eru seldir á háar fjárhæðir milli félagsliða, eru atvinnukonur í knattspyrnu enn að borga með sér. Mynd | Getty Sara Björk Gunnarsdóttir er einn af lykilmönnum liðsins. Hún hefur fjór- um sinnum orðið Svíþjóðarmeistari og leikur nú í Þýskalandi. Mynd | Getty Margrét Lára Viðarsdóttir er meðal tíu markahæstu leikmanna á Evrópumeistaramótum. Hún er komin aftur af fullum krafti inn í landsliðið eftir barnsburð. Mynd | Getty Baileysterta pekanpæ jarðarBerjakaka kökur og kruðerí að hætti jóa Fel rósaterta með Frönsku súkkulaði-smjörkremi sími: 588 8998
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.