Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
Sjóðirnir hættu við að kaupa
lyfjaverksmiðju Róberts
Viðskipti Forstjóri lyfjafyr-
irtækisins Alvogen, Róbert
Wessmann, eignaðist sjálfur
lyfjaverksmiðju á lóð sem
sem Reykjavíkurborg út-
hlutaði honum á lóð Háskóla
Íslands. Ætlaði að selja 51
prósent í verksmiðjunni til
lífeyrissjóða og tryggingafé-
laga í fyrra í gegnum sænskt
eignarhaldsfélag en sjóðirn-
ir hættu við. Líf Magneudótt-
ir varaborgarfulltrúi var
gagnrýnin á lóðaúthlutina
til Alvogen og sagði hana
„ógagnsæja“.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Fjárfestirinn Róbert Wessmann
ætlaði að selja 51 prósenta hlut í
fasteigninni sem hýsir lyfjaverk-
smiðju Alvogen á háskólavæðinu
í Vatnsmýrinni til lífeyrissjóða og
tryggingarfélaga fyrir 857 milljónir
króna í fyrra en sjóðirnir hættu við
kaupin. Sagt var frá því í fjölmiðlum
að viðskiptin hefðu átt sér stað.
Upplýsingarnar um ætlað kaup-
verð í viðskiptunum koma fram í
ársreikningi sjóðsins sem ætlaði að
kaupa húsið, SR II slhf. Stærstu hlut-
hafar sjóðsins eru Lífeyrissjóður
verslunarmanna, Stapi lífeyrissjóð-
ur og Frjálsi lífeyrissjóðurinn og er
það sjóðsstýringarfyrirtæki Arion
banka, Stefnir, sem stýrir honum.
Halldór Kristmannsson, upp-
lýsingafulltrúi Alvogen, segir hins
vegar að viðskipti Stefnis með hús-
ið hafi komist í uppnám út af kaup-
um fasteignafélagsins Reita á hon-
um í fyrra. „Þeir óskuðu eftir því
að viðskiptin myndu ganga til baka.
Engin viðskipti hafa átt sér stað
og eignarhald hússins er óbreytt.
Við leitum áfram að áhugasöm-
um kaupendum,“ og nefnir Hall-
dór fagfjárfesta eins og lífeyrissjóði
sérstaklega í því samhengi. Sænskt
félag, Alvogen Aztiq AB, á lyfja-
verksmiðjuna því ennþá í gegnum
íslenska fyrirtækið Fasteignafélagið
Sæmund ehf.
Róbert, sem er forstjóri Alvogen,
gerði samninga um úthlutun lóðar-
innar undir lyfjaverksmiðjuna við
Reykjavíkurborg og Háskóla Ís-
lands árið 2013 og um mitt ár 2015
var gerður annar samningur við
Vísindagarða Háskóla Íslands um
byggingu annarrar verksmiðju á
svæðinu. Þegar samningur Reykja-
víkur og Alvotech var gerður lá ekki
fyrir að Róbert Wessmann myndi
sjálfur eignast húsið. Þetta gerðist
hins vegar í kjölfar þess að samn-
ingarnir voru gerðir og er Róbert
eigandi hússins í gegnum umrætt
sænskt félag. Í ársreikningi Fast-
eignafélagsins Sæmundar kemur
fram að félagið hafi gert leigusamn-
inga til 22 ára sem hægt er að meta
til fjár.
Þannig hefur Róbert, í krafti
stöðu sinnar hjá Alvogen, búið til
viðskipti fyrir sig persónulega með
samningum lyfjafyrirtækisins sem
hann stýrir.
Þegar samningur Reykjavíkur
og Alvogen var gerður lá ekki fyrir
að Róbert Wessmann myndi sjálf-
ur eignast húsið samkvæmt svari
frá Degi B Eggertssyni, þáverandi
formanni borgarráðs í Reykja-
vík og núverandi borgarstjóra, í
Stundinni í fyrra: „Það lá fyrir að
þetta yrði í eigu annars félags en
það hafði ekki verið valið. […] Við
vissum að það var ófrágengið og að
verið væri að kanna hagkvæmustu
leiðir.“ Alvogen fékk meðal annars
lán frá Reykjavíkurborg upp á 200
milljónir fyrir gatnagerðargjöldun-
um vegna hússins og þurfti ekki að
greiða afborganir af því í þrjú ár.
Frekar lítil umræða var um út-
hlutun lóðarinnar til Alvogen árið
2013 en Líf Magneudóttur, þáver-
andi varaborgarfulltrúi VG, sagði að
úthlutunin hefði verið „ógagnsæ“
og að „setja mætti spurningamerki
við þær flestar“. Benti Líf meðal
annars á að Reykjavíkurborg hefði
boðið Alvogen að „velja“ sér stað í
borginni undir verksmiðjuna.
Róbert Wessmann seldi lífeyrissjóðum
og tryggingafélögum meirihluta í lyf-
javerksmiðju Alvogen í fyrra í gegnum
sænskt fyrirtæki, Alvogen Aztiq AB.
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Á gönguskíðum í Seefeld í Tíról
Fararstjórar: Íris Marelsdóttir & Árni Ingólfsson
Verð: 188.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
4. - 11. febrúar
Vetrarólympíubærinn Seefeld býður upp á allt það besta fyrir
ógleymanlegt vetrarævintýri. Skíðagöngubrautir svæðisins
eru 280 km langar í 1.200 - 1.550 m hæð yfir sjávarmáli,
og henta jafnt byrjendum sem lengra komnum. Gist verður
á huggulegu 4* hóteli í hjarta Seefeld. Einstakt tækifæri til
útivistar og hreyfingar í skemmtilegum félagsskap.
Heilbrigðismál Alls hafa
24 einstaklingar, flestir
samkynhneigðir karlmenn,
greinst með sáraásótt það
sem af er ári. Það eru jafn
margir og greindust með
sárasótt allt síðasta ár.
Þórólfur Guðnason sótt-
varnarlæknir segir þróunina
ekki endilega bundna við
Ísland, sömu vísbendingar
megi sjá víðar.
„Það hefur verið tilkynnt nokkuð
um þetta í mörgum vestrænum
löndum, það er að segja aukningu
á sárasótt og lekanda, og er aukn-
ingin aðallega á meðal karlmanna
sem stunda kynlíf með öðrum
karlmönnum,“ segir Þórólfur, en
athygli vekur að árið 2013 greindust
þrjú tilfelli með sárásótt hér á landi,
en þau voru 17 árið eftir. Á síðasta
ári voru tilfellin 24, sami fjöldi og
hefur greinst á síðstu síðustu átta
mánuðum.
En hver er skýringin á þessari
aukningu?
„Svo virðist vera að ástæðan gæti
verið sú að menn séu farnir að slaka
verlega á í notkun á smokkum,“ seg-
ir Þórólfur en sárasótt smitar venju-
lega um slímhúð kynfæra við sam-
farir, en getur einnig smitað um
aðrar slímhúðir svo sem í munnholi
og endaþarmi.
Fáist ekki fullnægjandi meðferð
við sjúkdómnum á fyrstu stigum
hans getur bakterían sest að í ýms-
um vefjum líkamans og valdið ýms-
um sjúkdómum síðar á ævinni, svo
sem hjarta- og taugasjúkdómum. Ef
fóstur smitast á meðgöngu
getur bakterían einnig
valdið varanlegum skaða á
því.
„Hún getur valdið sýking-
um og heilaskemmdum,“
segir Þórólfur sem
undirstrikar einnig
hættuna ef þunguð
kona fær sjúkdóm-
inn, þá getur það
haft mjög alvar-
legar af leiðingar
fyrir fóstrið.
Þóról f u r seg-
ir skimun hjá áhættu-
hópum öfluga, en einnig hefur
Landlæknaembættið sóttvarna-
læknir leitað aðstoðar til að
mynda samtakanna´78 og HIV
Ísland um fræðslu og hvatn-
ingu á því að meðlim-
ir muni eftir að nota
smokkinn.| vg
Mikil aukning á sárasótt síðustu þrjú ár
Þórólfur Guðnason segir
töluverða aukningu á
sárasótt. Besta leiðin er
að nota smokkinn.
Fern árslaun nægja fyrir húsnæði
Það vantar rúmlega 3000 íbúðir í Reykjavík. Mynd | Hari
Það vantar 5100 íbúðir til að fulll-
nægja þörf fyrir íbúðarhúsnæði á
höfuðborgarsvæðinu, þar af þarf
3000 til 3300 íbúðir í Reykjavík.
Í greiningu Capacent á fasteigna-
markaðnum sem unnin var fyrir
borgina og kynnt á föstudag kem-
ur fram að byggingarkostnaður er
orðinn lægri en kaupverð íbúða.
Þrátt fyrir mikla hækkun fast-
eignaverðs að undanförnu kostar
álíka mörg mánaðarlaun að kaupa
íbúð í Reykjavík í dag og það kost-
aði árið 2004. Að jafnaði tekur það
48 mánaðarlaun einstaklings miðað
við meðaltalið, að greiða fyrir 90
fermetra íbúð í Reykjavík.
Aðstæður til að auka framboð
íbúða hafa batnað mikið frá hruni.
Kaupverð fasteigna hefur hækkað
umfram byggingarkostnað og er
byggingarkostnaður fjölbýlishúsa
nú lægri en kaupverð þeirra.
Byggingarkostnaður sérbýla er þó
enn hærri en kaupverð þeirra.
Leiðrétt
Í Fréttatímanum í gær var röng mynd við
frétt af dæmdum fjársvikara sem hefur
tekið sér fé úr hússjóði fjölbýlishúss í Árbæ.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
„Sárasóttin getur valdið
sýkingum og heila-
skemmdum“
Lögreglumál Skóla- og
frístundarsvið segist ekki
vera í ráðningarsambandi
við sjálfstætt starfandi
leikskóla og því mun borgin
ekki hlutast til um það hvort
starfsmaður leikskóla, sem
sætir rannsókn vegna of-
beldis gegn barni, sé enn að
störfum.
Skóla- og frístundarsvið mun ekki
hlutast til um það þó starfsmað-
ur Korpukots, sem er sakaður um
að hafa beitt barn ofbeldi, sé þar
enn að störfum. Þetta kemur fram
í skriflegu svari frá Skóla- og frí-
stundarsviði Reykjavíkurborgar
sem segist ekki eiga í ráðningar-
sambandi við sjálfstætt starfandi
leikskóla.
Ofbeldisdeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu hefur málið til
rannsóknar en því var vísað þangað
frá Barnaverndaryfirvöldum í Kópa-
vogi. Fréttatíminn ræddi við móður
sem hafði vísað málinu til barna-
verndaryfirvalda eftir að hún upp-
götvaði ljóta áverka á líkama dóttur
sinni í lok ágúst og birtist viðtali við
hana í blaðinu í gær. Móðirin gagn-
rýnir skólastjóra Korpukots harð-
lega og sagði hana meðal annars
hafa ætlað að víkja starfsmannin-
um frá störfum á meðan rannsókn-
inni stæði, en stúlkan greindi sjálf
frá nafni starfsmannsins þegar hún
var spurð um ofbeldið.
Leikskólastjórinn upplýsti svo
foreldra fyrst um atvikið á þriðju-
daginn síðastliðinn, en fullyrti
jafnframt að rannsókn leikskólans,
hefði leitt í ljós að ásakanirnar væru
tilhæfulausar. Þess ber þó að geta
að rannsókn lögreglu er ekki lokið.
Fréttatíminn spurði einnig hvort
Skóla- og frístundarsvið myndi
endurskoða samstarf sitt við leik-
skólann, sem er einkarekinn. Svar-
ið var eftirfarandi: Sviðið hefur leið-
beiningarskyldu og gerir kröfur um
úrbætur ef með þarf. | vg
Borgin skiptir sér ekki af
starfsmanni á Korpukoti
Móðir er ósátt við stjórnendur
Korpukots.
Húsnæðismál