Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 14
14 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
Þóra hjálpaði mér að baka sjálfa kökuna, svo kem ég og skreyti þetta sko,“ segir Bjarni Benediktsson í nýju
kosningamyndbandi. Hann er með
svuntu og hveiti á nefinu, eins og
algjör heimilisdraumur í dós.
Þeir gerast ekki flottari en þetta
bakaradrengirnir.
Myndmálið í aðdraganda kosn-
inganna er löðrandi í sykri og
feiti eins og kakan hans Bjarna
( fyrirgefið, sem konan hans Bjarna
bakaði og Bjarni skreytti).
Í útgáfu áramótaskaupsins er
næsta víst, að atriðið verði látið
heita, Bjarni étur köku.
Vigdís Hauksdóttir gaf upp bolt-
ann með Litlu gulu hænuna og
stolnu fjaðrirnar. Það er ekki sú út-
gáfa sem er kennd í barnaskólum
en þessi er lesin í ungliðahreyf-
ingu Framsóknarflokksins. Nú er
spurningin hvort litla gula hænan
hafi bakað kökuna hans Bjarna. Við
borðstofuborðið á stjórnarheimil-
inu hjá Bjarna bíður öll fjölskyldan
spennt eftir kökunni (sem Bjarni
bakaði reyndar ekki sjálfur en
skreytti með stolnum fjöðrum).
Þarna eru frænkurnar, Eygló og
Ragnheiður Elín, Sigurður Ingi og
Sigrún, Ólöf og Gunnar Bragi og
Kristján Júl. Sigmundur Davíð lúr-
ir bak við stein, handan við stjórn-
arráðið og nuddar aumt stélið. Stél-
fjaðrirnar taka sig vel út á kökunni
hans Bjarna og gestirnir í kökuboð-
inu sleikja útum.
Og svo fer Bjarni að skammta.
Það atriði bíður skaupsins en ég
get þó skýrt frá því að það fór allt
í háaloft í boðinu. Bjarni reyndist
ætla að éta kökuna sjálfur að stór-
um hluta. Hann stangaði úr tönnun-
um með stélfjöðrunum og hrinti
Ragnheiði Elínu litlu þegar hún ætl-
aði að fá sér sneið.
En, það eru fleiri flinkir bakarar
en Bjarni.
Ef kosningarnar væru kökubasar,
þar sem hver og einn kæmi með
sína köku handa kjósendum.
Hvernig myndu þær líta út?
Kakan hans Bjarna væri klárlega
framlag Sjálfstæðisflokksins, bökuð
af konu og skreytt af karli. Hún liti
svo sem nógu vel út á yfirborðinu,
með öllum þessum glassúr, en
væri óholl og aðeins útvaldir fá að
smakka.
Og kaka Pírata. Jú gefum Birgittu
Jónsdóttur orðið. Hún birti einmitt
mynd af köku á Facebook síðu sinni
þar sem hún vildi ekki vera minni
manneskja en Bjarni en þó má
greina undir niðri hinn napra tón
öfundsýkinnar.
„Þó að ég sé opin bók, þá finnst
mér að börnin mín eigi rétt á sinni
friðhelgi. Þannig að ég mun ekk-
ert vera að birta neinar myndir af
mér að skreyta kökur, en hér er
ein mynd af köku sem við mamma
gerðum saman fyrir langa löngu
þegar frumburður minn varð sex
ára. Þetta var einmitt afmælis-
veislan sem ég neyddist til að taka
minn fyrsta yfirdrátt hjá bankan-
um fyrir sem var um 20.000 krónur
til að geta haldið afmæli fyrir son
minn. Þvílíkur okurvextir sem eru
af slíkum lánum……“
Þá vitum við það. Köku Pírata er
haldið leyndri vegna friðhelgi heim-
ilanna en þó skal upplýst að fyrir
innihaldinu var tekið okurlán að
upphæð 20.000.
Þetta hljómar eins og mjög
dýr kaka. Vonandi var þetta ekki
hasskaka?
Kaka Framsóknarflokksins, féll
í ofninum. En með rjóma má laga
flest slys, þótt hætt sé við því að við-
stadda gruni hvað sé undir rjóm-
anum og þeir sneiði hjá kökunni.
Rjóminn er líka dálítið súr.
Kaka Samfylkingarinnar bókstaf-
lega brann við í ofninum. Það var
verið að rífast á flokksheimilinu og
enginn hafði rænu á því að gá að
kökunni. Samfylkingin hefur líka,
samkvæmt myndmálinu í kosninga-
baráttunni, of mikið að gera, að út-
skýra fyrir hinum barnalegu, illa
upplýstu kjósendum hvernig kaupin
gerast á eyrinni. Það er ekki hægt
að ætlast til þess að hún standi líka
í kökubakstri.
Kaka Vinstri grænna, er gulrót-
arkaka, ákaflega holl og trefjarík
en talsvert hörð undir tönn og ekki
alveg nógu bragðgóð. Það er líka
búið að sneiða algerlega hjá hvítum
sykri en lífrænir bananar bjarga
kökunni fyrir horn.
Og kaka Bjartrar framtíðar, kem-
ur á óvart. Hún gamaldags souffle
(en úr pakka) og spennandi að sjá
hvað hún getur þanist út áður en
hún springur.
Viðreisnarkakan er innflutt (ég
meina alþjóðleg) með sykurglassúr.
Enginn hafði tíma til að baka köku,
það var svo mikið að gera, en það
var hægt að fá mjög fína köku frá
Póllandi fyrir lítið verð. Ef horft er
framhjá bragðgæðum, rotvarnar-
efnum og öðrum óhollum aukaefn-
um, er þetta ágætis díll ef maður
nennir ekki að standa í eldhúsinu.
Og nú eru bara smákökur eftir í
pottinum.
Formaður Þjóðfylkingarinnar
ætlaði að baka smáköku að morgni
en gleymdi að taka hana út að
kvöldi. Það segir því ekki meira af
þeirri smáköku.
Hinar smákökurnar dreymir um
að verða tertur en það er ólíklegt að
sá draumur rætist fyrir kosningar.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
BJARNI
BAKAR
KÖKU
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is
Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Ritstjórar: Gunnar Smári Egilsson og Þóra Tómasdóttir.
Fréttastjóri: Þóra Kristín Ásgeirsdóttir. Ritstjórnarfulltrúi: Höskuldur Daði Magnússon. Dreifing: Póstdreifing. Framkvæmdastjóri
og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 83.000 eintökum í Landsprenti.
Og nú baka allir flokkarnir köku ...
Hjá Alþýðufylkingunni fá allir
hnífjafna sneið af Lenín
GLÆSILEGAR
BORGIR Í A-EVRÓPU
Í BEINU FLUGI
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa,
fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt, 2,3,4
daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt
að gera góð kaup á hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum
uppá skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki.
BÚDAPEST Í UNGVERJALANDI
Ein af fallegri borgum Evrópu, hún
er þekkt fyrir sínar glæsi byggingar
sem margar eru á minjaskrá Unesco,
forna menningu og spa/heilsulindir.
Þar hefur í árhundruði blandast
saman ýmis menningaráhrif sem
gerir borgina svo sérstaka.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
GDANSK Í PÓLLANDI
Hansaborgin Gdansk er elsta og
fallegasta borg Póllands, saga
hennar nær aftur til ársins 997.
Glæsilegur arkitektúr, forn menning
og tónlistar-hátíðir hafa gert borgina
að vinsælustu ferðamannaborg
Póllands.
Flogið er tvisvar í viku allt árið.
RIGA Í LETTLANDI
Gamli og nýi tíminn mætast í borg
sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn í
Riga er virkilegt augnayndi hvert sem
litið er og setur borgina á stall með
fallegri borgum Evrópu. Þar ber hæst
kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs
og Dómkirkjan. Flogið er tvisvar í viku
frá maí til október.
VERÐ FRÁ 87.900.-
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
NÝ KYNSLÓÐ - NÝIR EIGINLEIKAR
Innbyggt
GPS
Mælir
Hjartslátt
Vatnshelt
að 50 metrum
Alhliða þjálfunar
forrit
Sérblað um
Barnaafmæli
Þann 21. október
auglysingar@frettatiminn.is | 531 3300