Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 42

Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 42
Rafbílar eru framtíðin Stálu bílasýningunni í París Bílasýningunni í París lýkur um helgina en bílaáhugamenn hvaðanæva að hafa flykkst til borgarinnar til að berja augum allt það nýjasta í bíla- iðnaðnum. Segja má að rafbílar hafi stolið sýningunni í fyrsta skipti en þeir voru fyrirferðamestir af þeim nýju bílum sem kynntir voru á þessari yfirgripsmiklu sýningu. Meðal þeirra sem kynntu til sögunnar nýja rafbíla voru Opel, Volkswagen, Mercedes-Benz og Renault. Keppikefli framleiðendanna er að finna leið til að bílarnir drífi sem lengst á einni hleðslu og er vegalengdin alltaf að aukast. Renault kynnti uppfærslu á Renault Zoe sem er mest seldi rafbíll í Evrópu en drægnin hefur nú tvö- faldast. Nýr Volkswagen Golf sem er 100% rafdrifinn mun líta dagsins ljós árið 2020 og Mercedes-Benz mun hefja framleiðslu á lúxusrafbílum eftir tvö ár. Það er augljóst að rafbílar eru framtíðin. Renault Zoe Mest seldi rafbíll Evrópu. Ég tók þá ákvörðun þegar ég gerði bílinn upp að ég myndi nota hann, að þetta yrði ekki neinn sunnudagsbíll. Þannig að nú er íþróttataskan í skottinu og drasl í aftursætinu,“ segir Guðfinnur Einarsson um forláta Mercedes Benz bíl sinn. Keyrður sex mánuði á ári Guðfinnur ekur um á Benz 280 E frá árinu 1980 sem hefur ver- ið í eigu fjölskyldu hans frá upp- hafi og Guðfinnur gerði upp fyrir skemmstu. Bíllinn var upphaf lega í eigu afa og ömmu Guðfinns. Afi hans og nafni var framkvæmdastjóri í Bolungarvík og amma hans heit- ir María Haraldsdóttir. Eftir frá- fall Guðfinns eldri árið 2000 tók sonur hans, Einar K. Guðfinnsson, fráfarandi forseti Alþingis, við bif- reiðinni en árið 2007 var svo kom- ið að Guðfinni yngri. Mjög sterkar hefðir hafa fylgt Benz-inum frá því Guðfinnur tók við honum. „Ég tek bílinn út 17. apríl sem er afmælisdagur Maríu ömmu sem átti bílinn. Ég sæki hana á afmælisdaginn og við förum í bíltúr og fáum okkur kaffi. Svo fer bíllinn inn 17. október en það var afmælisdagur Guðfinns afa míns. Ég fylgi þessum dagsetningum al- veg. Þegar við vorum að gera bílinn upp þá var það alveg skýrt að hann skyldi vera tilbúinn 17. apríl. Menn voru bara að líma númeraplötuna á daginn fyrir.“ Var orðinn illa ryðgaður Guðfinnur ákvað í byrjun árs 2013 að gera bílinn upp en það þótti löngu tímabært. „Bíllinn sjálfur var í góðu ásigkomulagi, hann var bara orðinn illa ryðgaður og farinn að morkna. Þetta var því mikil ryð- bætingarvinna og sprautun,“ segir Guðfinnur sem segir að sitt hlut- verk í endurbótunum hafi að mestu falist í því að útvega varahluti. Að öðru leyti hafi hann notið aðstoð- ar annarra. „Þetta voru allt original varahlut- ir, nýir og ónotaðir. Bíladoktorinn Rúnar var mér innan handar við það. Þetta tók allt í allt rúmlega ár og það var furðulítið óvænt sem kom upp á,“ segir Guðfinnur sem kveðst ekki sjá eftir því að hafa ráð- ist í kostnaðarsamar endurbætur á bílnum. „Heldur betur ekki, þetta er eitt ánægjulegasta verkefni sem ég hef tekið þátt í.“ Ætluðu að panta vínrauðan bíl Afi og amma Guðfinns sóttu bílinn til Reykjavíkur árið 1980. Þau töldu sig vera að sækja vínrauða þýska glæsikerru en fyrir misgáning hafði verið pantaður einn appelsínugul- ur. Segir Guðfinnur yngri að sumir í fjölskyldunni hafi vart getað sér á heilum tekið yfir þeim skiptum og jafnvel hafi verið rætt um að selja bílinn. Afi hans hafi þó tekið tíðindunum með ró og úr varð að appelsínuguli Benzinn hefur fylgt fjölskyldunni æ síðan. Upphaflega var skráningarnúmer hans Í 130 en það er nú einkanúmer Maríu Har- 36 ára og í fullu fjöri Guðfinnur Einarsson keyrir um á appelsínugulum Benz sem hefur verið í fjölskyldu hans síðan hann kom á götuna árið 1980. Hann gerði bílinn upp fyrir rúmum tveimur árum. Mynd | Hari Appelsínugula fjölskyldudjásnið Guðfinnur Einarsson keyrir um á appelsínugulum Benz sem afi hans og amma keyptu nýjan árið 1980. Hann gerði bílinn upp fyrir skemmstu og vekur þessi forláta bíll mikla athygli hvert sem hann fer. aldsdóttir, ömmu hans. Guðfinnur yngri fékk í staðinn númerið Í 3 á Benzinn, en það var á sínum tíma númerið á bíl langaafa hans, Einars Guðfinnssonar athafnamanns í Bol- ungarvík. „Ég náði með því að tengja þenn- an bíl við fjórar kynslóðir,“ segir Guðfinnur stoltur. Bíllinn vekur mikla athygli Aðspurður segir Guðfinnur að bíll- inn veki mikla athygli hvert sem hann fer. „Það líður varla dagur án þess að einhver veifi til manns í umferðinni og reglulega gefur fólk sig á tal við mig á förnum vegi. Það eru til dæmis margir Vestfirðingar sem muna eftir bílnum og svo eru margir sem áttu svipaða bíla á sín- um tíma,“ segir Guðfinnur. Hvað með stelpurnar, eru þær ekki spenntar fyrir bílnum? „Þó bíllinn veki athygli hvert sem hann fer hef ég nú bara fengið hrós frá karlmönnum. Þótt stelp- unum finnist bíllinn eflaust flottir þá eru þær ekki beint að láta það í ljós,“ segir Guðfinnur í léttum tón. Vinsældir Benz-ins eru þó slíkar að hann fleiri hafa falast eftir hon- um eftir endurbæturnar. „Ég hef verið að lána hann í brúðkaupsveislur til vina og vanda- manna. Svo fór hann í pílagríms- ferð vestur, hann er auðvitað upp- haflega frá Bolungarvík. Sú ferð var farin á sjö klukkutímum eins og ökuferðin var þegar ég var krakki, með voldugum stoppum á leiðinni. En á bakaleiðinni var ég búinn að gleyma því enda er bíllinn svo kraftmikill. Þá tók þetta ekki nema hefðbundinn fimm og hálf- an tíma,“ segir hann en Benzinn er sex sílindra og 185 hestöfl. En þótt Guðfinnur kunni því vel að keyra um á Benzinum góða heldur hann sig við reglurnar og á mánudag fer bíllinn inn í skúr næsta hálfa árið. Undanfarið hef- ur hann haft yfir tveimur bílum að ráða en nú ber svo við að hann ætl- ar að vera bílllaus fram á vor. „Já, í vetur skal það vera Strætó. Þetta eru bara sex mánuðir sem þarf að brúa og nú ætla ég að prófa að skipta á einum appelsínugulum Benz yfir í einn af þessum gulu, stóru.“ Þetta voru allt original varahlutir, nýir og ónotaðir. Bíladokt- orinn Rúnar var mér innan handar við það. Þetta tók allt í allt rúmlega ár og það var furðulítið óvænt sem kom upp á. LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 20162 BÍLAR EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.