Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 201610 BÍLAR
Bílaflutningar Starfsmenn Króks eru þrautreyndir í bílaflutningum
enda er lítil starfsmannavelta hjá fyrirtækinu en mikil reynsla.
Mikil aukning Sífellt meira er að gera í því að þjónustu erlenda ferðamenn
þegar bílar þeirra bila hér á landi.
Öflugur floti Í flota Króks fimm sæerhæfðir bílaflutninga- og björgunarbílar og vélaflutningavagn. Vinnuvélaflutningar Flutningar á vinnuvélum verða æ algengari hjá Króki.
Leiðandi í flutningum
og björgun ökutækja
Krókur hefur í tæpa þrjá áratugi boðið upp á dráttarbílaþjónustu en starfsemin hefur víkkað mikið út síðan þá.
Nú rekur Krókur uppboðsvef þar sem seldir eru bílar og sér um að þjónusta erlenda ferðamenn á eigin bílum,
svo fátt eitt sé nefnt.
Unnið í samstarfi við Krók.
Fyrirtækið var stofnað árið 1987 og ég er búinn að vera hérna síðan 1990. Velgengni okkar og langlífi byggir mik-
ið á því að við erum með góðan hóp
af starfsfólki. Hér er lítil starfs-
mannavelta en mikil reynsla,“ segir
Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri
Króks.
Krókur er leiðandi aðili í flutning-
um og björgun ökutækja á Íslandi
auk þess sem félagið rekur þjón-
ustumiðstöð fyrir tjónaökutæki. Þá
rekur Krókur uppboðsvefinn www.
bilauppbod.is sem nýtur mikilla
vinsælda og er sífellt stærri hluti af
starfseminni.
Krókur býður einnig upp á
ástands- og tjónaskoðun á bílum,
verðmat og vegaaðstoð. „Aðstoð
við erlenda ökumenn er vaxandi
þáttur í starfseminni. Stór hluti af
því eru ökumenn sem koma með
Norrænu á eigin bílum. Þá erum
við að vinna fyrir erlend trygginga-
félög og bílaklúbba. Það er nefni-
lega ekki gott að sitja við skrifborð
úti í London og þurfa að fást við
bilaðan bíl á Kili eða Sprengisandi.
Þá er gott að eiga hauk í horni á
Íslandi.“
„Upphaflega var Krókur bara
dráttarbílaþjónusta en árið
1990 fórum við að vinna fyr-
ir tryggingafélögin og síðan þá
hefur starfsemin víkkað út á alla
kanta,“ segir Gísli.
Krókur hefur yfir að ráða öflug-
um bíla- og tækjakosti til flutninga.
Til að mynda eru í flota Króks fimm
sérhæfðir bílaflutninga -og björg-
unarbílar og vélaflutningavagn. Auk
þess á Krókur sérhæfðan dráttar-
bíl og tækjaflutningabíl sem hentar
tækjum og stærri bílum. Þjónust-
an er í boði allan sólarhringinn, allt
árið um kring og mikill metnaður
er lagður í stuttan viðbragðstíma.
Þjónustusími Króks er 522-4600.
Krókur tekur bæði að sér
flutning á ökutækjum sem lent hafa
í óhöppum á höfuðborgarsvæðinu
fyrir tryggingafélög en einnig fyrir
einstaklinga og fyrirtæki. „Vinnu-
vélaflutningar hafa til að mynda
aukist talsvert hjá okkur,“ segir
Gísli.
Þjónustumiðstöð Króks er að
Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Sautján
starfsmenn vinna hjá Króki. „Við
erum með 3.300 fermetra húsnæði
og mikið útisvæði,“ segir Gísli.
Er starfsemin alltaf að aukast og
stækka hjá ykkur?
„Já, þetta endurspeglar í raun
hvernig púlsinn í þjóðfélaginu er.
Það eru hæðir og lægðir. Við sett-
um bílauppboðið til að mynda í
gang þegar kreppan kom. Þá varð
hrun í miklu af starfseminni hjá
okkur og bílauppboðið hjálpaði
okkur í gegnum þá lægð.“
Gísli segir að bílauppboðið sé
alltaf að verða stærri þáttur í starf-
semi Króks. „Við erum að selja bíla
fyrir tryggingafélög og kaupleigu-
fyrirtæki en líka geysilega mikið
fyrir einstaklinga. Þetta eru bílar af
öllum stærðum og gerðum, bæði
skemmdir og heilir. Það er alltaf
eitthvað spennandi á síðunni hjá
okkur. Við erum nýlega farnir að
selja bíla fyrir Ríkiskaup, það bæt-
ist alltaf í hópinn,“ segir Gísli.
Bílauppboð Króks fer fram á
www.bilauppbod.is en þar eru bæði
seldir tjónabílar og bílar sem eru í
góðu lagi. Einstaklingar geta selt
bíla sína þar og segir Gísli að það
geti oft verið skilvirkara en að selja
í gegnum bílasölur.
„Bílarnir eru kannski fimm daga á
uppboði og á þeim tíma fær sá sem
er að selja tilboð í bílinn sinn. Það
er allt staðgreitt og þú færð á þess-
um fimm dögum að vita hvað þú
getur fengið í peningum fyrir bílinn.
Ef þú ferð með hann á bílasölu get-
ur hann þurft að standa þar í hálft
ár áður en hann selst og þú veist
ekki fyrr en þá hvað þú færð fyrir
bílinn. Þetta er mjög skilvirkt.“
má fá á heimasíðu Króks,
www.krokur.net,
og í síma 522-4600.
Nánari upplýsingar