Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 48

Fréttatíminn - 15.10.2016, Blaðsíða 48
Grænn á undanhaldi - brúnn sækir á Vinsælasti bílalitur Englands er silfurlitaður, sýna glænýjar tölur byggð- ar á bílaeign þjóðarinnar. 22% af rúmlega 30 milljón bílum þar er silfur- litaður. Næstvinsælasti liturinn er svartur en milljón færri bílar bera þann lit. Bílum sem sprautaðir eru svartir fer raunar fækkandi en svört- um bílum fjölgar ört þannig að eftir örfá ár gæti myndin litið öðruvísi út. Blár er vinsælastur frumlita og hvítur er algengasti liturinn á nýjum bíl- um. Brúnn er að hljóta uppreisn æru en brúnum bílum á Englandi hefur fjölgað um 84% síðan 2013 meðan grænum bílum hefur fækkað um 30% á sama tíma. Innkallanir á Toyota Toyota samsteypan hefur innkallað 340.000 eintök af nýjasta Prius módelinu vegna galla í handbremsu sem þarf að laga. Týpan var framleidd frá ágúst 2015 til október 2016. Engin slys hafa verið tilkynnt vegna gallans í Japan en ekki liggja upp- lýsingar um slys annars staðar í heiminum af völdum hans. Hér á landi hafa 27 eintök af Toyota Corolla verið innkölluð. Um er að ræða bifreiðar sem framleiddar voru 2002 og 2003. Ástæða innköllun- arinnar er hliðaröryggispúði í ökumannssæti. Við árekstur sem er nógu harður til að öryggispúðinn eigi að blása út er mögulegt að drifbún- aðurinn fyrir púðann rifni og púðinn veiti ekki þá vernd sem honum er ætlað. Toyota mun hafa samband við bifreiðaeigendur vegna þessarar innköllunar. Mikilvægt að velja réttan öryggis- búnað fyrir börn Ef notaður búnaður er valinn er nauðsynlegt að hann sé ekki útrunnunninn eða hafi lent í tjóni. Þegar öryggisbúnaður fyrir barn í bíl er valinn er mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að kynna sér hvað í boði. Búnað- urinn þarf nefnilega bæði að passa barninu og bílnum. Hægt er að fá upplýsingar á heimasíðum fram- leiðenda eða í bæklingi sem fylgir honum um hvort búnaðurinn passi í tiltekinn bíl. Flest börn nota þrjár tegundir af öryggisbúnaði um ævina áður en þau nota bílbeltið eitt og sér. Ungbarnabílstóll Fyrsti stóllinn er í flestum tilvik- um gerður fyrir börn upp að 13 kílóum. Slíka stóla er hægt að nota sem burðarstóla. Einnig er hægt að fá stóla sem henta frá fæðingu þar til barnið er orðið 18 kíló, en þeir henta ekki til burðar og eru því hafðir fastir í bílnum. Vert er að hafa í huga að aldrei má setja barn undir eins árs í fram- vísandi barnabílstól, en mælt er með notkun bakvísandi bílstóla til þriggja ára aldurs. Það er talið ör- uggara vegna þess að höfuð barns- ins er hlutfallslega stórt og þungt og hálsliðir þess ekki fullþroskaðir. Með því að nota bakvísandi barna- bílstól eru minni líkur á alvarlegum áverkum á mænu og heila. Barnabílstóll Þegar barn vex upp úr ungbarnabíl- stól er tímabært að flytja það í stól sem hentar börnum upp í 18 eða 25 kíló. Þeir stólar eru festir í bílinn með bílbelti eða ISOFIX festingum, en barnið sjálft er fest í stólinn með fimm punkta belti. Bílpúði með baki Eftir að barn hefur náð 18 til 25 kílóa þyngd er óhætt að setja það á Er notaður búnaður öruggur? Margir freista þess að spara peninga með því að kaupa notaðan barnabílstól, leigja eða fá lánaðan, en það getur verið varhugavert. Miðstöð slysavarna barna mælir ekki með því að notaður sé öryggisbún- aður keyptur af ókunnugum þar sem ekki er hægt að kanna með vissu hvort hann hefur lent í tjóni. Hvað leigu á barnabílstólum varðar þá er mikilvægt fyrir foreldra að vita að ekkert eftirlit er með fyrir- tækjum sem leigja öryggisbúnað hér á landi. Ef barnanbílstóll er endurnýttur frá eldra barni eða fenginn að láni frá ættingjum og vinum er mikilvægt að kanna aldur búnaðarins og fá á hreint að hann hafi ekki lengt í árekstri. Hafi það gerst er búnaður- inn ónýtur, þó ekki sjáist á honum skemmdir. Miðað er við að ungbarnabílstólar endist í 5 ár frá söludegi vegna þess hvað þeir eru í mikilli notkun, bæði undir barnið í bílnum og ekki síst sem burðar- stóll. Allt þetta hefur áhrif á burðarþol hans. Ör- yggisbúnaður fyrir eldri börn endist í 8-10 ár. Fram- leiðsludagsetningu barnabílstóla er hægt að finna aftan á stólunum. Farðu vel yfir allar festingar á notuðum bílstólum, til dæmis beltisfestingarnar. Ef plastið er upplitað í kringum festingarnar þá er búnaðurinn ekki í lagi. Einnig þarf að kanna beltin í honum, að þau séu ekki trosnuð og að spennan sé í lagi (hún á ekki að opn- ast öðruvísi en að ýtt sé á lásinn). bílpúða með baki. Athugið að sum merki framleiða bílpúða með baki fyrir börn frá 15 kílóum en þó er ekki ráðlegt að setja börn mjög ung á bílpúða með baki. Ekki er mælt með notkun bílpúða án baks. Bæði veitir bakið hliðará- rekstrarvörn og eins kemur það í veg fyrir að bílpúðinn renni und- an barninu. Á bakinu eru auk þess lykkjur eða hök til að festa beltið í sem tryggir að það falli rétt að lík- ama barnsins. Bílpúða með baki skal nota þar til barnið er 36 kíló eða 10 til 12 ára. Barn í bíl Mikilvægt er að búnaðurinn passi bæði barninu og bílnum. Mynd | Peopleimages LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 20168 BÍLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.