Fréttatíminn - 15.10.2016, Side 48
Grænn á undanhaldi - brúnn sækir á
Vinsælasti bílalitur Englands er silfurlitaður, sýna glænýjar tölur byggð-
ar á bílaeign þjóðarinnar. 22% af rúmlega 30 milljón bílum þar er silfur-
litaður. Næstvinsælasti liturinn er svartur en milljón færri bílar bera
þann lit. Bílum sem sprautaðir eru svartir fer raunar fækkandi en svört-
um bílum fjölgar ört þannig að eftir örfá ár gæti myndin litið öðruvísi út.
Blár er vinsælastur frumlita og hvítur er algengasti liturinn á nýjum bíl-
um. Brúnn er að hljóta uppreisn æru en brúnum bílum á Englandi hefur
fjölgað um 84% síðan 2013 meðan grænum bílum hefur fækkað um 30%
á sama tíma.
Innkallanir á Toyota
Toyota samsteypan hefur
innkallað 340.000 eintök
af nýjasta Prius módelinu
vegna galla í handbremsu
sem þarf að laga. Týpan
var framleidd frá ágúst
2015 til október 2016.
Engin slys hafa verið
tilkynnt vegna gallans í
Japan en ekki liggja upp-
lýsingar um slys annars
staðar í heiminum af
völdum hans.
Hér á landi hafa 27 eintök af Toyota Corolla verið innkölluð. Um er að
ræða bifreiðar sem framleiddar voru 2002 og 2003. Ástæða innköllun-
arinnar er hliðaröryggispúði í ökumannssæti. Við árekstur sem er nógu
harður til að öryggispúðinn eigi að blása út er mögulegt að drifbún-
aðurinn fyrir púðann rifni og púðinn veiti ekki þá vernd sem honum er
ætlað. Toyota mun hafa samband við bifreiðaeigendur vegna þessarar
innköllunar.
Mikilvægt að velja
réttan öryggis-
búnað fyrir börn
Ef notaður búnaður er valinn er nauðsynlegt að
hann sé ekki útrunnunninn eða hafi lent í tjóni.
Þegar öryggisbúnaður fyrir barn í bíl er valinn er mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að kynna sér hvað í boði. Búnað-
urinn þarf nefnilega bæði að passa
barninu og bílnum. Hægt er að fá
upplýsingar á heimasíðum fram-
leiðenda eða í bæklingi sem fylgir
honum um hvort búnaðurinn passi
í tiltekinn bíl.
Flest börn nota þrjár tegundir af
öryggisbúnaði um ævina áður en
þau nota bílbeltið eitt og sér.
Ungbarnabílstóll
Fyrsti stóllinn er í flestum tilvik-
um gerður fyrir börn upp að 13
kílóum. Slíka stóla er hægt að nota
sem burðarstóla. Einnig er hægt að
fá stóla sem henta frá fæðingu þar
til barnið er orðið 18 kíló, en þeir
henta ekki til burðar og eru því
hafðir fastir í bílnum.
Vert er að hafa í huga að aldrei
má setja barn undir eins árs í fram-
vísandi barnabílstól, en mælt er
með notkun bakvísandi bílstóla til
þriggja ára aldurs. Það er talið ör-
uggara vegna þess að höfuð barns-
ins er hlutfallslega stórt og þungt
og hálsliðir þess ekki fullþroskaðir.
Með því að nota bakvísandi barna-
bílstól eru minni líkur á alvarlegum
áverkum á mænu og heila.
Barnabílstóll
Þegar barn vex upp úr ungbarnabíl-
stól er tímabært að flytja það í stól
sem hentar börnum upp í 18 eða 25
kíló. Þeir stólar eru festir í bílinn
með bílbelti eða ISOFIX festingum,
en barnið sjálft er fest í stólinn með
fimm punkta belti.
Bílpúði með baki
Eftir að barn hefur náð 18 til 25
kílóa þyngd er óhætt að setja það á
Er notaður búnaður öruggur?
Margir freista þess að spara peninga með því að
kaupa notaðan barnabílstól, leigja eða fá lánaðan,
en það getur verið varhugavert. Miðstöð slysavarna
barna mælir ekki með því að notaður sé öryggisbún-
aður keyptur af ókunnugum þar sem ekki er hægt að
kanna með vissu hvort hann hefur lent í tjóni.
Hvað leigu á barnabílstólum varðar þá er mikilvægt
fyrir foreldra að vita að ekkert eftirlit er með fyrir-
tækjum sem leigja öryggisbúnað hér á landi.
Ef barnanbílstóll er endurnýttur frá eldra barni eða
fenginn að láni frá ættingjum og vinum er mikilvægt
að kanna aldur búnaðarins og fá á hreint að hann
hafi ekki lengt í árekstri. Hafi það gerst er búnaður-
inn ónýtur, þó ekki sjáist á honum skemmdir.
Miðað er við að ungbarnabílstólar endist í 5 ár frá
söludegi vegna þess hvað þeir eru í mikilli notkun,
bæði undir barnið í bílnum og ekki síst sem burðar-
stóll. Allt þetta hefur áhrif á burðarþol hans. Ör-
yggisbúnaður fyrir eldri börn endist í 8-10 ár. Fram-
leiðsludagsetningu barnabílstóla er hægt að finna
aftan á stólunum.
Farðu vel yfir allar festingar á notuðum bílstólum,
til dæmis beltisfestingarnar. Ef plastið er upplitað
í kringum festingarnar þá er búnaðurinn ekki í lagi.
Einnig þarf að kanna beltin í honum, að þau séu ekki
trosnuð og að spennan sé í lagi (hún á ekki að opn-
ast öðruvísi en að ýtt sé á lásinn).
bílpúða með baki. Athugið að sum
merki framleiða bílpúða með baki
fyrir börn frá 15 kílóum en þó er
ekki ráðlegt að setja börn mjög ung
á bílpúða með baki.
Ekki er mælt með notkun bílpúða
án baks. Bæði veitir bakið hliðará-
rekstrarvörn og eins kemur það í
veg fyrir að bílpúðinn renni und-
an barninu. Á bakinu eru auk þess
lykkjur eða hök til að festa beltið í
sem tryggir að það falli rétt að lík-
ama barnsins. Bílpúða með baki
skal nota þar til barnið er 36 kíló
eða 10 til 12 ára.
Barn í bíl Mikilvægt er að búnaðurinn passi bæði barninu og bílnum. Mynd | Peopleimages
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 20168 BÍLAR