Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 8

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 8
8 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016 ÞRÆLDÓMUR EYKST Í UPPSVEIFLUNNI Brjálæðislegur vöxtur í ferðaþjónustu hefði aldrei getað orðið nema vegna þess að erlent vinnuafl hefur tekið störfunum sem Íslendingar vilja ekki. Mannréttindi útlendinganna virðast stundum minna máli skipta en réttur fólks til að braska sig til ríkidæmis í greininni. Mansalssérfræðingur lögreglunnar telur þrældóm grassera í uppsveiflunni en þrátt fyrir mikla vinnu gegn mansali ná lögin ná ekki yfir brotin. Hótel Framnes í Grundarfirði Nokkrir fyrrum starfsmenn hótels- ins lýstu í Fréttatímanum óbærilegu vinnuálagi eftir að nýir eigendur keyptu hótelið í vor. Var starfsmönn- um fækkað um meira en helming og þeir sem eftir voru látnir gegna tveim- ur til þremur störfum fyrir sömu laun og áður. Carlotta Birtoglio flutti frá Ítalíu til að starfa á hótelinu fyrir tæpum þremur árum. Í lok sumars segist hún hafa fengið taugaáfall eftir að hafa þurft að sjá ein um morgunmat, upp- vask og aðstoð við þvotta á 60 manna hóteli. „Ég brotnaði bara saman og fór að ofanda. Tárin streymdu niður og ég gat ekki hætt að gráta. Ég hef aldrei upplifað slíkt áður. Þetta var bara vegna álags.“ Hún segist hafa verið herbergis- þerna fyrsta árið en eftir að hún fékk bakeymsli af vinnunni var hún færð yfir í morgun- matinn. „Ég lét nýjan eiganda vita af þessu en samt var ég látin í þrif og þvott meðfram morgunmatnum. Ég gerði athugasemd við að ég væri í raun komin í þrjú störf, og þá var bara hlegið að mér.“ Carlotta lýsir morgninum sem hún gekk út úr vinnunni; „Ég hafði mætt klukkan sex til að undirbúa morgun- matinn. Eldhúsið var fullt af óhreinu leirtaui og það var ekki til nægilega mikill matur. Gestirnir áttu að koma klukkan sjö en streymdu að miklu fyrr. Ég var ein í öllu með um fjörutíu gesti. Þeir kvörtuðu undan gæðunum á hlaðborðinu. Enginn var í móttök- unni svo ég var sú eina sem þeir gátu talað við. Þegar morgunmaturinn var búin fór ég inn í eldhús til að vaska upp allt óhreina leirtauið. Svo brotn- aði ég bara saman yfir uppvaskinu og gekk út. Fleiri starfsmenn lýstu óviðráðan- legum vinnuaðstæðum. Verkalýðs- félag Snæfellinga, ASÍ og lögregla fóru í rassíur á hótelið í sumar enda var grunur um að eigendur væru með útlendinga í vinnu sem ekki þekktu rétt sinn á íslenskum vinnumark- aði. Þeir bjuggu í húsnæði á vegum eiganda hótelsins og voru ekki skráðir sem starfsmenn þess þótt þeir sinntu herbergisþrifum. „Við höfum áhyggjur af hótelinu og að þar séu erlendir starfsmenn sem ekki þekki rétt sinn né launakjör. Þar ríkir algjör undirmönnun og við vitum að starfsmenn hafa leitað læknishjálp- ar vegna álags,“ sagði Guðbjörg Jóns- dóttir hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga. Engin ákæra var gefin út. Hamraborg Fjórir menn leituðu sér hjálpar á slysa- deild Landspítalans eftir að hafa verið misþyrmt í herbergjum við Hamra- borg í Kópavogi fyrir rúmum hálfum mánuði. Mennirnir vildu engin lög- regluafskipti og fóru úr landi strax eftir árásina. Lögregla taldi líklegt að samland- ar þeirra hafi staðið að baki árásinni. Mennirnir störfuðu allir í byggingar- iðnaði hér á landi. Grunsemd- ir vöknuðu á slysadeildinni þegar mennirnir leituðu þangað. Þeir gátu illa gert grein fyrir áverkunum en þeir höfðu meðal annars hlotið bein- brot og opin sár á höfði. Mennirnir veittu lögreglu takmarkað- ar upplýsingar en greindu þó frá því að árásin hefði átt sér stað í atvinnu- og verslunarhúsnæði við Hamraborg í Kópavogi. Þegar lögregla kom á vettvang voru þar brotnir innanstokksmun- ir, blóð var á veggjum og í rúmi og á gólfinu lá brotin hafnarboltakylfa Aðeins sólarhring eftir spítalaheim- sóknina voru mennirnir farnir úr landi. Lögreglan hefur engar vísbendingar um tildrög misþyrminganna eða hver hafi verið að verki. Engin ákæra Snorri Birgisson lögreglufulltrúi telur blekk- inguna vera stærsta þátt mansals. I Vinnumansalið lýsir sér svona Snorri Birgisson, lögreglufulltrúi og yfirmaður mansalsteymis lög- reglunnar „Stærsti þátturinn í nauð- unginni er blekkingin. Algengt er að einstaklingur sæki um vinnu eða sé ráðinn til starfa á vinnustað í gegnum starfsmannaleigu, undir þeim formerkjum að vinna venju- legan vinnudag fyrir umsamin laun. Einstaklingurinn býr kannski í landi þar sem launin eru miklu lægri en hér. Sem dæmi er launa- taxtinn í Póllandi mjög lágur og því geta kjörin hljómað vel. Þegar viðkomandi kemur til Íslands get- ur vinnudagurinn hinsvegar reynst vera 14 til 16 klukkutímar á dag og launin í engu samræmi við það sem um var samið. Þau geta jafnvel verið borguð í svörtu og starfsmaðurinn ekki skráður sem launþegi hjá fyr- irtækinu. Við þetta getur bæst að yfirmenn eða eigendur fyrirtækis- ins hóti einstaklingnum með því að ef hann klagi eða fari til yfirvalda þá munu þeir gera honum, og eftir atvikum fjölskyldu hans, lífið leitt. Vinnuveitandinn gerir honum ljóst að hann sé í landi þar sem hann þekki ekki réttindi sín eða skyldur en vinnuveitandinn þykist sjálfur hafa mikil ítök í samfélaginu. Það undirstrikar að einstaklingurinn á ekki að leita sér aðstoðar. Nærtækt dæmi úr raunveruleik- anum er af manni sem leitaði til yf- irvalda. Hann var með glóðarauga og sagðist hafa hlotið áverkann við það að detta í stiga og í sömu andrá týna vegabréfi sínu. Hann vildi því ekkert gefa upp um fyrir hvern hann væri að vinna. Hljómar þetta trúverðugt? Algengt er að fólki sé refsað fyrir að sinna ekki vinnunni nógu vel og fái þá minni laun. Fólk í nauðungarvinnu á oft óeðlilega mikið undir vinnuveitend- um sínum, svo sem húsnæði, uppi- hald, flugmiða til og frá landinu og auðvitað laun fyrir vinnuna. Þannig verður fólk háð vinnuveitanda sín- um og getur átt erfitt með að stíga út úr aðstæðunum. Algengt er að þeir sem koma hingað til lands sem sjálfboðaliðar eða au pair eigi einmitt alltof mikið undir vinnu- veitandanum. Mjög oft eru tengsl milli vinnu- veitenda og þeirra sem útvega starfsfólk og algengt er að fólk misnoti samlanda sína í nauð- ungarvinnu. Það gerir þetta að skipulagðri brotastarfsemi, en ein af alþjóðlegu skilgreiningunum á henni er að tveir eða fleiri fremja saman refsivert athæfi. Við höfum ótal frásagnir af svona dæmum og sjáum þau í byggingaverktöku, veitinga- og hótelgeiranum. Alltaf er um að ræða erlent vinnuafl." Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins „Fólk kemur hingað á allskonar forsendum. Það getur verið að það komi til að vinna og fái svo alltof lítil eða bara alls engin laun. Þetta getur verið fólk með ólíkan bak- grunn, líka velmenntað fólk sem vill fara á vit nýrra ævintýra. Mikil eftirspurn eftir vinnuafli hér á landi og gríðarlegt atvinnuleysi sem rík- ir meðal ungs fólks í Evrópu, veld- ur því að fólk leitar hingað eftir vinnu. Sumir koma sem sjálfboða- liðar, hreinlega til að öðlast starfs- reynslu og auka atvinnumöguleika sína í framtíðinni. Fólk sem ekki er upplýst um réttindi sín og skyldur, sem er háð atvinnurekanda með fæði og hús- næði, er í landfræðilegri einangr- un, jafnvel ekki með atvinnuleyfi og einhver misnotar aðstæður þess, það geta verið þolendur mansals. Einnig eru dæmi um að launin fari ekki til þess sem vinnur heldur til þriðja aðila. Við sjáum það í ferðaþjónust- unni, þar sem við hjá Starfsgreina- sambandinu þekkjum best til, að fólk kemur gjarnan hingað í góðri trú um að það sé að fara að vinna í lögregri starfsemi við hóflegan vinnutíma og góðar aðstæður. Svo endar það með allt í fangi sér, jafn- vel gert ábyrgt fyrir rekstri heilu eininganna og undir hælinn lagt hvort það fái greitt. Aðbúnaður starfsfólks í hótel- bransanum fer ekki endilega eftir verðmiðanum á hótelherberginu. Við sjáum til dæmis erlendar keðj- ur nýta sér verkata í þrifum á hót- elum, þar eru verkin eru boðin út. Aðbúnaður herbergisþernanna þarf ekki haldast í hendur við gæði á hótelinu. Brotavilji atvinnurekandans er þó ekki alltaf einbeittur. Í þessum málum er ekki allt svart eða hvítt, heldur geta málin verið flókin.“ Engin ákæra Þóra Tómasdottir thora@frettatiminn.is VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS VR óskar eftir orlofshúsum VR óskar eftir vönduðum sumarhúsum eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir húsnæði á landsbyggðinni fyrir næsta sumar. Áhugasamir sendi upplýsingar á vr@vr.is fyrir 15. nóvember 2016. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja tilboði: - Lýsing á eign og því sem henni fylgir - Ástand íbúðar og staðsetning - Stærð, fjöldi svefnplássa og byggingarár - Lýsing á möguleikum til útivistar og afþreyingar í næsta nágrenni Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir og lýsing á umhverfi fylgi með. Öllum tilboðum verður svarað.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.