Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 12

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016 Vinna gegn mansali -Lögreglan hefur stofnað einingu utanum rannsókinir á mansali og vændi. Ein- ingin varð formlega til á vormánuðum en skipulagt starf gegn mansali hefur staðið yfir mun lengur. -Starfsgreinasambandið hefur unnið markvisst að því að uppræta mansal og gefið út handbók um mansal fyrir eftirlitsaðila sína. Handbókin er aðgengileg á slóðinni sgs.is -Vinnumálastofnun hefur sett saman teymi innan stofnunarinnar sem hefur það hlutverk að vinna úr málum þegar grunur vaknar um mansal. -Haldnir hafa verið 60 fræðslufundir um allt land þar sem farið er yfir skilgrein- ingu á mansali og hvernig sé hægt að bera kennsl á það. -Rauði krossinn hefur fengið fjárveitingu til að opna fyrir móttöku á upplýsing- um og tilkynningum um mansal. -Bjarkahlið samhæfð miðstöð fyrir þolendur mansals og vændis opnar á næst- unni. Að miðstöðinni standa fjölmargar stofnanir og félagasamtök. -Formlegt samstarf og samræmdar aðgerðir fjölmargra stofnanna, verkalýðs- félaga, lögreglu, félagsþjónustunnar, innanríkis- og velferðarráðuneytis. 32 milljarðar dollara. Enginn iðnaður annar en ólögleg sala á fíkni- efnum veltir meiru á ári á heimsvísu en mansal, eða um 32 milljörðum dollara. 45,8 milljónir manna heims- ins lifa við þrældóm. Langflestir eru á Ind- landi, eða um 18.3 millj- ónir. 58% þeirra sem búa við þrældóm búa í fimm löndum: Indlandi, Kína, Pakistan, Bangladesh og Uzbekistan. IV Hvað hefur verið gert til að stöðva þetta? Brotafl og Kraftbindingar Forsvarsmenn verktakafyrirtækj- anna voru hnepptir í gæsluvarðhald í sumar grunaðir um stórfelld skattsvik og auðgunarlagabrot. Við handtöku mannanna fundust háar fjárhæðir í reiðufé og kannabis. Þegar lögregla fór að skoða aðstæður starfsmanna fyrirtækjanna kom í ljós að þeir bjuggu við hrörlegar aðstæður í iðnaðarhúsnæði. Fjölmargir erlend- ir starfsmenn bjuggu þar saman og höfðu óljósar hugmyndir um hver laun og réttur þeirra væri. Þeir sögðu launin fara eftir því hvað þeir ynnu mikið en gátu ekki gefið upp hve mikið þeir fengu á tímann, á dag eða á mánuði. Verst var ástandið á Breiðhellu 12 í Hafnar- firði, þar sem verkamenn bjuggu fyr- ir ofan verkstæði og sváfu þar allir saman í opnu rými. Þar ofbauð lög- reglumönnum aðstaðan. Hátt í tuttugu erlendir verkamenn Brotafls bjuggu við Funahöfða 7. Funahöfði er iðnaðarhverfi en þar eru að finna fleiri hús með leiguher- bergjum, þar sem farandverkamenn frá Austur-Evrópu og eiturlyfja- sjúklingar, langt leiddir alkóhólistar og annað fólk sem á í engin hús að venda, býr. Þegar Fréttatímann bar að garði hafði rafmagni hússins verið lokað vegna vangreiddra reikninga. Öll vinna lá niðri hjá fyrirtækjunum fyrir þar sem forsvarsmenn fyrir- tækjanna voru í gæsluvarðhaldi. Þótt tungumálaerfiðleikar væru miklir var ekki erfitt að skilja að þeir höfðu áhyggjur af því að fyrirtækinu yrði lokað og sumir þeirra vildu snúa aft- ur til Póllands. Þeir sögðust greiða fimmtíu þúsund krónur á mánuði fyrir herbergið, en leigan væri dregin af launum þeirra um hver mánaða- mót. Mennirnir áttu því allt sitt undir vinnuveitendum sínum, vinnu, laun og húsnæði. Lögregla hóf rannsókn á því hvort um mansal væri að ræða. Engin ákæra var gefin út. Engin ákæraSnorri Birgisson „Það er óhætt að segja að þræl- dómur geti aukist í uppsveiflunni. Við munum sjá fleiri svona mál en með áframhaldandi vinnu í þessum málaflokki þá munum við nálgast þau betur en áður. Upplýsingarn- ar sem okkur berast nú eru upp- lýsingar sem við höfum aldrei séð áður. Fólk tilkynnir um aðstæð- ur erlends vinnufólks, því fólk er orðið upplýstara um þetta og far- ið að tengja þetta meira við man- sal en áður. Það er mikil aukning á tilkynningum sem skýrist aðallega með vitundarvakningu almenn- ings. Ýmislegt hefur áunnist svo sem að Reykjavíkurborg hefur sett upp keðjuábyrgð í verktöku í sínum út- boðsskilmálum. Þannig er ábyrgð yfirverktaka á undirverktaka er staðfest. Landsvirkjun hefur sett reglur um hið sama og gerir kröfu um keðjuábyrgð yfirverktaka. Hafnarfjarðarbær hefur, eftir að hafa fengið fræðslu um mansal, ályktað og tekið ákvörðun um að fylgja vinnumansalsmálum fast eft- ir.“ Ólafur Þór Hauksson „Fyrirtækin sem starfa eins og ég lýsti áðan geta valdið tvennskon- ar tjóni. Ríkissjóður og þar með samfélagið allt verður af tekjum þegar fyrirtækin borga ekki skatta eða lífeyrissjóði og kennitöluflakka með ofangreindum hætti. Einnig skekkist samkeppnisstaðan og ger- ir lögmætum fyrirtækjum erfiðara uppdráttar. Þjóðfélagslega er þessi starfsemi því mjög skaðleg.“ Drífa Snædal „Fyrir utan persónulegu af- leiðingarnar og þær að fólk vinnur sér ekki inn margskonar réttindi eins og ellilífeyri, veikindarétt og slysatryggingar, eru samfélagslegu afleiðingarnar þær að fólk vinnur við aðstæður sem við viljum ekki að viðgangist. Flestir í samfélaginu eru sammála um að virðing okkar felist í því að vera með sæmilegar aðstæður á vinnumarkaði. Einnig snúa ferða- menn heim með slæma upplifun af Íslandi.“ V Hverjar eru afleiðingarnar af vinnumansali? „ÞEGAR VIÐ KOMUM Á HÓTELIÐ BRÁ MÉR MJÖG MIKIÐ ÞEGAR HANN SAGÐI AÐ ÉG YRÐI AÐ SOFA Í SAMA RÚMI OG HANN.“ - Starfsmaður á Hótel Adam Helstu fórnarlömb mansals Gerendur mansals velja oftast einstaklinga í veikri stöðu innan samfélagsins. -Konur á flótta undan samfélagi þar sem feðraveldið er sterkt -Mæður sem sjá fjölskyldu sinni farborða fjarri heimalandinu -Háskólanemar fjarri heimalandinu og án atvinnutækifæra -Manneskjur sem samþykkja að vinna án þess að skilja eða þekkja forsendur samþykkis Starfsmenn Brotafls að störfum við byggingu Sand hótel við Laugaveg.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.