Fréttatíminn - 15.10.2016, Page 16
16 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
Get látið draumana rætast
„Það er ekki oft sem ég verð mjög dapur þó að það komi stundum fyrir. Ég tekst á
við hlutina með húmor og jákvæðni, það hefur alltaf verið minn stíll.“ Mynd | Rut
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Fyrir þrettán árum síðan klifraði
ég upp í ljósastaur á djamminu og
kom öfugur niður. Ég hálsbrotnaði
og skaddaðist á mænu, með þeim af-
leiðingum að ég lamaðist fyrir neðan
axlir og hef verið í hjólastól síðan,“
segir Rúnar Björn Herrera Þorláks-
son. Rúnar var tuttugu og eins árs
gamall og bjó á Sauðárkróki þegar
slysið átti sér stað. Hann flutti til
Reykjavíkur því það voru engin úr-
ræði í boði fyrir hann fyrir norðan.
Leið eins og í stofufangelsi
„Það var dálítið erfitt að fara frá
vinunum og sambandið hefur dal-
að. Það dalaði samt fyrst og fremst
vegna þess að mér fannst svo óþægi-
legt að þurfa alltaf að stóla á aðstoð
vinanna við allt. Fyrst eftir að ég
lamaðist var ég með hefðbundna
þjónustu en árið 2012 fékk ég NPA,
notendastýrða persónulega þjón-
ustu, og þá umbreyttist líf mitt til
hins betra. NPA virkar þannig að
sveitarfélagið metur hversu mikla
þjónustu ég þarf og verðmetur það.
Sveitarfélagið lætur mig svo hafa
fjármagnið svo ég geti sjálfur séð
um að ráða aðstoðarfólk. Ég ræð þá
sjálfur hver aðstoðar mig, hvenær ég
fæ aðstoðina og hvar hún veitt. Þetta
þýðir að ég er ekki lengur bundinn
við heimilið. Mér leið dálítið eins og
í stofufangelsi áður, eins og ég væri
útrásarvíkingur með ökklaband. Í
dag bý ég aftur á móti í leiguíbúð
með kærustunni minni.“
Lífið er svo spennandi
„Ég hef alltaf verið frekar jákvæður
en mér fór samt að líða mun betur
eftir að ég fékk þessa þjónustu, auk-
ið sjálfstæði lætur manni líða betur.
En það er erfitt að horfa upp á vini
sína búa enn við svona skertar að-
stæður,“ segir Rúnar sem ákvað að
hann yrði að gera eitthvað í málun-
um. Hann er garðyrkjufræðingur
að mennt en næstum allur hans
tími fer í að vinna að félagsstörf-
um í þágu fatlaðra. Hann byrjaði
að blogga fyrir nokkrum árum en
stofnaði svo í fyrra facebook-síðuna
Ævintýri Rúnars þar sem hann deil-
ir hinum ýmsu uppákomum úr lífi
sínu. „Það er ekki oft sem ég verð
mjög dapur þó að það komi stund-
um fyrir. Ég tekst á við hlutina með
húmor og jákvæðni, það hefur alltaf
verið minn stíll. Mér finnst gaman
að vera á lifi og yndislegt að fylgj-
ast með öllu í kringum mig. Lífið er
svo spennandi. Ég byrjaði á því að
blogga en færði mig svo yfir í vídjó-
in og finnst það áhrifaríkara. Það er
miklu skemmtilegra að rugla fyrir
framan myndavél en að vera með
áhyggjur af stafsetningarvillum,“
segir Rúnar og hlær.
Ekkert hræddur við að ferðast
Rúnar segist fyrst og fremst hafa
stofnað Ævintýri Rúnars til að sýna
fram á hvernig líf hans breyttist í
kjölfra NPA þjónustunnar. „Ég er að
gera allskonar hluti en er ekki lengur
bara bundinn við stólinn heima hjá
mér. Ég get látið drauma mína ræt-
ast og hef ferðast um allan heim, frá
Asíu til Ameríku, og geri allskonar
hversdagslega hluti sem ég gæti ekki
gert ef ég væri fastur heima. Ég er
líka lamaður í höndunum svo ég þarf
í raun aðstoð við allt, en ég er ekkert
hræddur við að ferðast þó það geti
fylgt því ákveðin óvissa og áhætta.
Það er allt hægt með réttu tækin og
góða aðstoð.“
„ Reykjavíkurborg ákvað að gera
NPA samninga við 15 manns en í
þrjú ár hafa ekki verið gerðir fleiri
samningar, þó það sé í lögum um
málefni fatlaðs fólks að það eigi að
gera þetta. Samband sveitarfélaga og
ríkið eru enn að rífast um einhverjar
krónur til og frá en þessir einstak-
lingar geta ekki beðið eftir þessu
lengur. Fyrir fatlað fólk í minni
stöðu er miklu mikilvægara að fá
rétta aðstoð heldur en einhvern tíu
þúsund kall í veskið. Ef við komumst
ekki út úr húsi höfum við ekkert við
peninga að gera.“
Samband sveitarfélaga og
ríkið eru enn að rífast um
einhverjar krónur til og
frá en þessir einstaklingar
geta ekki beðið eftir þessu
lengur. Fyrir fatlað fólk í
minni stöðu er miklu mik-
ilvægara að fá rétta aðstoð
heldur en einhvern tíu
þúsund kall í veskið.
Rúnar Björn Herrera Þorláksson lenti í slysi rúmlega tvítugur og hefur
notað hjólastól síðan. Hann lætur fötlun sína ekki stoppa sig í að
framkvæma drauma sína og segir NPA-þjónustuna hafa umbreytt lífi sínu.
Þann 15. október næstkomandi kl. 15:00 mun Viðreisn
opna kosningamiðstöðina sína í Höfðatorgi með prompi
og prakt. Boðið verður upp á gómsætar veitingar,
frábæran félagsskap og skemmtiatriði fyrir börnin.
Verið Velkomin í Borgartún 16.
Opnun kOsningamiðstöðvar viðreisnar