Fréttatíminn - 15.10.2016, Page 18
Myndir
eftir
synina
„Ég er hrifin
af myndlist
og er með
nokkur
verk eftir
samtímamynd-
listamenn upp á
vegg. Vænst þyk-
ir mér þó um þær
myndir sem synir
mínir hafa teiknað og
gefið mér. Mér þykir
sérstaklega vænt um
þessar tvær mynd-
ir sem synir mínir
Þorleifur og Þorkell
teiknuðu þar sem mér finnst þær fanga þá báða svo vel á
ólíkan hátt. Ég er með mikið af myndum eftir þá uppi á vegg
því mér finnst gaman að hafa þær sýnilegar, bæði fyrir mig
og þá. Myndirnar draga upp mynd af hugmyndaheimi þeirra
og sýn, eru skemmtilega ólíkar. Það sem gerir þær líka svo
einstakar er að þær eru algjörlega þeirra.“
18 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
BORÐSTOFU
DAGAR
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
20-50%
AFSLÁTTUR
Kassinn
„Kassinn í Þjóðleikhúsinu er mér mjög kær en þar hef ég sett upp flestar mínar
sýningar. Í vetur verð ég með tvær sýningar í Kassanum, Gott fólk og Tíma-
þjófinn. Mér þykir alveg sérstaklega vænt um þetta svið og þetta hús því þetta
er í raun mitt annað heimili þegar ég er að vinna að sýningum,“ segir Una sem
frumsýnir Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti
í Kúlunni í sama húsi um helgina. „Ég hef alltaf verið hrifin af litlum sviðum,
nándinni við leikarann, því að sjá leikarann nánast anda og geta jafnvel náð
augnsambandi við hann/hana. Það er eitthvað í þessu nána sambandi milli
áhorfanda og leikara sem dregur mig að leikhúsinu. Mér finnst líka áhugavert
að vinna með þessa nánd, með mörkin á milli raunveruleika og leikhússins, milli
einlægni og leiks.“
Lífið í fimm hlutum
Góð skissubók
inniheldur
innkaupalista
Una Þorleifsdóttir leikstjóri segist ekki vera
mikill safnari þó hún safni kaffibollum, plötum
og ljóðabókum. Reyndar safnar hún eiginlega
líka skissubókunum sem hún hefur gengið
með á sér frá því löngu áður en hún byrjaði
í leikstjórnarnámi. Una deilir hér sínum
uppáhaldshlutum með Fréttatímanum.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Kaffibollinn
„Ég safna svona litlum mokkabollum og
þykir sérstaklega vænt um þennan.
Ég fékk hann í frumsýningar-
gjöf frá Sigtryggi Magnasyni
eftir að við höfðum verið að
vinna saman og mér finnst
hann sérlega fallegur,“ segir
Una sem er mikil kaffimann-
eskja og drekkur kaffi úr öllum
bollunum sem hún safnar. „Þeir eru
ekki til sýnis heldur bara lokaðir inni
í skáp en ég tek þá reglulega fram og nota.
Ég man ekki hvenær ég byrjaði á að safna kaffibollum, kannski fyrir svona tíu
árum. Mamma og pabbi gefa mér alltaf bolla úr öllum sínum ferðalögum svo
ég á bolla frá Eþíópíu og allsstaðar að. Einn þeirra er frá Grikklandi og er með
skreytingum úr 24 karata gulli. Ég er samt ekkert svo mikill safnari í mér, þessir
bollar eru það eina sem ég safna fyrir utan plötur og bækur.“
Bókasafnið
„Bókasafnið er samansafn af
hugmyndum, sögum, fortíð og
framtíð. Þarna er að finna allt frá
ljóðabókum, sagnfræði, skáldskap
og samfélagsgreiningu og safnið
er bara endalaus uppspretta hug-
mynda. Ég elska bækur og geng
reglulega í safnið og endurles
bækur. Safnið er líka samansafn
minninga og upplifana. Ég á enga
uppáhaldsbók en ég held sérstak-
lega upp á ljóðabækurnar, þá að-
allega vegna þess að þær er hægt
að lesa aftur og aftur og alltaf
uppgötva eitthvað nýtt í hvert
sinn. Það er eitthvað við bækur,
pappírslyktina, áferðina og heim-
inn sem hver bók býr yfir sem mér
finnst heillandi. Hver bók er í raun
heimur út af fyrir sig, uppfullur af
ævintýrum og mennsku.“
Skissubækurnar
„Ég á heilan haug af eld-
gömlum skissubókum
sem ég hef sankað að
mér í gegnum tíðina.
Þetta eru vinnu-
bækur sem ég er
alltaf með á mér og ég
er með eina bók fyrir hvert
verkefni sem ég er að vinna að.
Þessar bækur eru mitt helsta
vinnutól og ég skrifa allar hugmyndirnar mínar í þær.
Bækurnar geta verið mismunandi en það mega alls
ekki vera neinar rúður eða línur í þeim, og helst vil
ég hafa þær með teygju og svo verða þær að vera
sveigjanlegar. Vinnubókin er besti vinur manns í
vinnunni, sérstaklega í upphafi vinnunnar þegar
maður er enn að reyna að ná utan um hugmyndirnar
og hugsanirnar,“ segir Una sem byrjaði að nota hug-
myndabækur löngu áður en hún byrjaði í leikstjórn-
arnámi. „Einu sinni heyrði ég sagt að góð skissubók
innihéldi líka innkaupalista, því það þýðir að þú ert
alltaf að nota hana.“
WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900
VERÐ FRÁ 255.000.- Í VIKU
MEXICO ALLT ÁRIÐ
PLAYA DEL CARMEN
Þú ferð þegar þú vilt eins lengi og þú vilt.
Pálmatré, hvítar strendur og kristaltær sjór.
Karíbahafið eins langt og augað eygir. Þar má
auk þess sjá Maya pýramída, regnskóginn, tær
lón og neðanjarðarhella, veitingahús, verslanir
og næturlíf. Þú finnur allt i Playa Del Carmen.
Er þetta aðeins hluti af því fjölmörgu í þessu
stórbrotna umhverfi sem heillar ferðamanninn.
Rétt utan við ströndina er svo næst stærsta
kóralrif heims með öllum sínum litaafbrigðum
og ótrúlegum fjölda fiska í öllum regnbogans
litum.
Við bjóðum uppá glæsilegt 4*hótel og allt
innifalið, um 40 atriði.