Fréttatíminn - 15.10.2016, Síða 22
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Allt sem þeim áður fannst
alltaf svo gaman
var horfið og farið
þó færum við saman
því alltaf þau voru með álið í framan.
Krakkarnir á Bakka verða himinlifandi
þegar fjörugur hvolpur leynist í jóla-
pakkanum. En um næstu jól eru gjafirnar
enn meira spennandi svo að hundurinn
gleymist. Þá þarf hann að grípa til
sinna ráða!
ENGINN SÁ HUNDINN
er skemmtileg saga í
bundnu máli sem foreldrar
og börn munu njóta að lesa
saman aftur og aftur.
VÍSUR
EFTIR BJARKA
KARLSSON
22 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
Góð ópera
er eins og
spaghetti
- allt snýst
um sósuna
Í rússnesku óperunni E
vgení Onegin eftir Tchaikov-
sky reyna persónurnar
að höndla hamingjuna
eins og við öll. Leikstjóri
nýrrar uppfærslu Íslensku
óperunnar á þessu sígilda
verki, Anthony Pilavachi,
segir heim óperunnar alltaf
að verða meira og meira
spennandi í Þýskalandi þar
sem hann býr. Tíu ára lagði
hann á flótta frá heimalandi
sínu Kýpur þegar tyrk-
neskur her réðst á eyjuna.
Guðni Tómasson
gudni@frettatiminn.is
Ungur og efnaður maður kemur á
rússneskan herragarð. Það er vor
og blómin spretta í sólinni en samt
liggur leiðinn í loftinu. Unga fólk-
inu á staðnum leiðist í áhyggjuleys-
inu. Brátt kviknar samt ástin með
bréfaskriftum og hjartasorg, ást-
ar-þríhyrningum og misskilningi
sem gerir drauma að engu.
Þetta er upphafið að óperunni
Evgení Onegin eftir rússneska tón-
skáldið Pjotr Tchaikovsky sem
Íslenska óperan frumsýnir um
næstu helgi, 22. október. Tónlistin
er hárómantísk en snúin í flutn-
ingi, bæði fyrir söngvara og hljóm-
sveit. Himneskar laglínurnar koma
í bunkum enda var náðargáfa tón-
skáldsins ótrúleg þegar kom að
þeim. Tónlistin var Tchaikovsky
nauðsynleg til að lifa af og hann
setti hjarta sitt og tilfinningar í
hvern tón.
Á við á öllum tímum
„Umfjöllunarefni óperunnar er
eilíft,“ segir leikstjórinn Anthony
Pilavachi fullviss um erindi óp-
erunnar á okkar tímum. Óperan
er byggð á sögu Alexanders Pus-
hkin sem hann skrifaði í bundnu
máli á síðari hluta þriðja áratugar
19. aldar. Sagan var í raun undan-
fari stórvirkjanna sem verða rúss-
neskar bókmenntir síðar á öldinni.
„Þetta er það sama og á við um
Shakespeare, erindið er alltaf til
staðar. Ástin er eilíf og sagan er í
grunninn einföld. Ung stúlka verð-
ur ástfangin af ókunnugum manni.
Hún skrifar honum bréf en hann
vill ekkert með hana hafa, ekki
fyrr en löngu löngu seinna þegar
allt er breytt og sérstaklega þau
bæði.
Þarna er því meira en bara ástin
til umfjöllunar heldur líka það
hvernig við mannfólkið förumst
á mis í lífinu, hvað það þýðir fyr-
ir okkur að missa af og glata tæki-
færum í hamingjuleit okkar. Þetta
snýst um ranga tímasetningu og
það getum við öll tengt við, jafn-
vel í dag í heimi allra okkar skila-
boða í gegnum tölvur og síma,
þar sem tilhugalífið fer nú fram
að stórum hluta. Það er þetta
með rangar tímasetningar í lífinu,
sem Tchaikovsky leggur áherslu
á í sögunni, sem mun gera það
að verkum að þessi ópera mun
lifa. Hamingjuleitin er stórt þema
verksins sem allir geta tengt við,“
segir Pilavachi.
Lífið líkir eftir listinni
Bréfið skiptir öllu máli, ástarbréfið
sem Tatjana skrifar Onegin til að
tjá honum ást sína eftir stutt kynni.
Hann er draumaprinsinn hennar,
glæsilegur og veraldarvanur og
virðist vera beint úr skáldsögun-
um sem hún les í sveitinni.
Það var líka þetta bréf í sögu
Pushkins sem að kveikti í tón-
skáldinu um að endursegja þessa
sögu sem þá var fimmtíu ára
gömul. Eftir að hafa lesið söguna
byrjaði hann á „bréfa-senunni“
frægu og skrifaði síðan tónlistina
í kringum hana, upphaf og lok
óperunnar.
Einn daginn líkti lífið eftir
listinni. Tónskáldið fékk sjálfur
bréf, frá ungri stúlku, nemenda
Anthony Pilavachi er
fæddur á Kýpur, ólst
upp í Frakklandi, er
með írskan ríkis-
borgararétt og býr í
Þýskalandi. Frá barn-
æsku hefur leikhúsið
heillað hann og hann
hefur hlotið mikið lof
fyrir margar þeirra
80 óperuuppfærsla
sem hann hefur unnið
á síðustu árum. Þar á
meðal er verðlaunuð
uppfærsla á Nifl-
ungahring Wagners
sem hann setti upp
í Lübeck á árunum
2007-2010.
Mynd | Rut
Sagan af Evgení Onegin er dramatísk í meira lagi. Ástríðurnar tala til tilfinninga-
vera á öllum tímum en sem betur fer eru einvígi í flestum tilfellum aflögð. Hér
er að hefjast einvígi vinanna Evgení og Lenskí. Ástæðan fyrir illindunum var
hálfgerður misskilningur en málverkið er eftir rússneska raunsæismálarann
Ilya Repin.
Tónskáldið Pjotr Tchaikovsky giftist
nemenda sínum Antoninu Millukovu
1877. Hjónabandið var ekkert nema
framhlið gagnvart umheiminum, enda
Tchaikovsky samkynhneigður. Hjónin
bjuggu saman í tvo og hálfan mánuð
áður en tónskáldið yfirgaf Rússland til
að flýja óhamingju sína. Hann kláraði
að skrifa óperuna um Evgení Onegin
í Sviss og Ítalíu, en greinilegt var að
persónu Onegins mótaði Tchaikovsky
eftir sjálfum sér.