Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 24
Stefnir-Samval á 20 ára afmæli!
Stefnir-Samval er einn elsti og fjölmennasti
fjárfestingarsjóður landsins, með yfir 4.000
viðskiptavini. Ef þú vilt byggja upp þinn sjóð
til lengri tíma getur verið góð hugmynd að
byrja með reglulegan sparnað, 5.000 krónur
á mánuði eða meira.
Það er fljótlegt og einfalt að ganga frá því
í netbanka Arion banka.
Í sparnaði getur
munað um hvert ár
ára20
Samval
1996 - 2016
Stefnir
Stefnir-Samval er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011. Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að
höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Fjárfesting í fjárfestingarsjóðum telst almennt vera áhættusamari fjárfesting en í verðbréfasjóðum. Meiri
áhætta er fólgin í rýmri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í verðbréfasjóði. Nánari upplýsingar um sjóðinn, þar á meðal nánari upplýsingar um áhættu við fjárfestingu
í hlutdeildarskírteinum hans, má finna í útboðslýsingu og lykilupplýsingum sjóðsins sem nálgast má á arionbanki.is/sjodir. Auglýsingin er aðeins í upplýsingaskyni og skal ekki litið á hana sem ráðgjöf um
að ráðast í eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Sjóðurinn er í rekstri Stefnis hf. sem er sjálfstætt starfandi
fjármálafyrirtæki. Stefnir hf. rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði skv. lögum nr.128/2011. Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er dótturfélag Arion banka.
ingin ganga ekki lengur upp, þó að
forréttindastéttirnar átti sig ekki á
því. Eitthvað verður að breytast.“
Yngra fólkið íhaldsamara
Anthony Pilavachi hefur mikla
reynslu úr óperuheiminum, hef-
ur leikstýrt yfir 80 óperuuppfærsl-
um víða um heim. Hann er fæddur
á Kýpur, er flóttamaður sem flúði
heimaland sitt í innrás Tyrkja árið
1974, þá tíu ára gamall. Fyrstu
reynslu af leikhúsi upplifði hann
þremur árum áður og var þá strax
harðákveðinn að vinna við leik-
hús í framtíðinni. Eftir innrásina
ólst Pilavachi upp í Frakklandi en
hann rekur ættir sínar í ýmsar átt-
ir, til Írlands (en hann er með írskt
vegabréf) og annar afa hans var
rússneskur, upplifði ólguna fyrir
byltinguna þar í landi.
Pilavachi er búsettur í Þýska-
landi þar sem óperuhefðin er
sprelllifandi. Óperuhúsin eru
fjöldamörg og á hverju ári getur
áhugafólk farið á milli borganna
til að sjá jafnvel mismunandi út-
gáfur af sömu verkunum. „Á þýska
málsvæðinu skipta óperuhúsin
tugum, sýningarnar þúsundum.
Það getur verið erfitt að átta sig
á þessu héðan frá Íslandi. Óper-
an er þannig stór þáttur í menn-
ingarlífinu í Þýskalandi og listform-
ið er hvergi stærra. Óperan talar til
breiðs hóps og hefur tekið stakka-
skiptum á undanförnum árum,
ekki síst vegna aukinna krafa um
betri leik söngvaranna og samspils-
ins við kvikmyndalistina, því að
fleiri og fleiri kvikmyndaupptökur
eru gerðar af óperuuppfærslum.
Áhuginn er virkur, listin er lifandi
og kannski virkar það furðulegt en
oft eru það yngri áhorfendur sem
eru íhaldsamari og vilja síður til-
raunamennsku í nálgun okkar leik-
stjóranna,“ segir Pilavachi.
Leikstjórinn segir það alltaf mik-
ilvægast að finna hverri sögu sinn
hentuga farveg og vera sannur tón-
skáldinu og tónlistinni. Sem leik-
stjóri beiti hann alltaf nýrri nálg-
un á þær óperur sem hann kemur
að á nýjan leik. „Það er nauðsyn-
legt að vera frumlegur í hugsun, en
samt þannig að „effektar“ og stæl-
ar taki ekki yfir. Það er auðvelt að
finna upp á slíku en þá missir mað-
ur áhuga áhorfendanna því að það
getur aldrei hreyft við þeim eins og
kjarninn í þeim miklu sögum sem
óperur heimsins snúast um. Þetta
er lifandi listform sem maður verð-
ur að vanda sig við eins og annað.
Þetta er eins og gott spaghetti sem
snýst allt um bragðgóðu sósuna.
Hana þarf maður að búa til að kost-
gæfni,“ segir Pilavachi brosandi.
Undirbúningur fyrir veisluna er
í fullum gangi, Evgení Onegin eft-
ir Tchaikovsky verður frumsýnd í
Hörpu 22. október.
24 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
sínum í Tónlistarháskólanum í
Moskvu. Unga stúlkan játaði hon-
um ást sína og tónskáldið giftist
henni að nokkrum skilyrðum upp-
fylltum. Tchaikovsky var nefnilega
samkynhneigður og samþykkti
þetta málamyndahjónaband sem
dæmt var til að valda þeim báð-
um óhamingju. Hjónabandið var
skammvinnt, eintóm leiktjöld fyr-
ir umheiminn sem engan veginn
samþykkti kynhneigð tónskálds-
ins. Sársaukinn sem þessu fylgdi
hafði án efa áhrif á tilfinningaríka
tónlistina í óperunni um Onegin
sem Tchaikovsky var að semja á
þessum árum.
Heimsmynd líður undir lok
Þegar kemur að því að færa sígild-
ar óperur á svið þá er allt leyfi-
legt í samtímanum. Þannig væri
auðveldlega hægt að færa söguna
um ástir og örlög rússnesku ung-
mennanna upp í Grafarvog eða út
í geim ef áhugi væri fyrir því.
Anthony Pilavachi bregður á það
ráð að hliðra sögunni í tíma og fær-
ir hana að tímanum rétt fyrir rúss-
nesku byltinguna 1917. Þannig seg-
ir hann að þau hugsjónafræ sem
leynist í texta Pushkins njóti sín
betur, en hann var á sínum tíma
andsnúinn keisaraveldinu og skaut
á yfirstéttir Rússlands að þær væru
skeytingarlausar gangvart aðstöðu
alþýðunnar.
„Þetta er áhyggjulaus heim-
ur sem er að líða undir lok og
hverfa. Persónurnar eru að reyna
að hverfa út úr eigin veruleika,
gleyma sér í veisluhöldum og
paradísin í sveitinni er tálsýn,
þetta er deyjandi samfélag. Svo
kom byltingin og á örfáum dögum
breyttist allt. Það eru alltaf póli-
tík og samtímaviðburðir í bak-
sviði í lífi okkar allra og við það að
flytja söguna nær byltingunni þá
lifnar hún við og verður dramat-
ískari, nánast eins og bíó. Til-
færslan styrkir söguna og undir-
strikar breytingarnar sem liggja í
loftinu, órétturinn og stéttskipt-
Leikstjórinn Anthony Pilavachi í
blómum skreyttri rússneskri sveit þar
sem óperan um Evegení Onegin hefst.
Hann segir óperulíf Þýskalands, þar
sem hann býr, í miklum blóma. „Yfir-
leitt eru yngri áhorfendur íhaldsam-
ari og vilja frekar sjá hefðbundnar
uppsetningar. Þeir eldri hafa meiri
samanburð á ólíkum uppfærslum á
þessum verkum og eru því opnari
fyrir frávikum og tilraunum,“ segir
Pilvachi.
Fjölþjóðlegur hópur
listamanna
Í uppfærslu íslensku óperunnar á
Evgení Onegin eru söngvararnir ís-
lenskir, rússneskir og færeyskir. Tit-
ilhlutverkið er í höndum rússnesks
baritónsöngvara, Andrey Zhilikhov-
sky en það er Þóra Einarsdóttir sem
syngur hlutverk Tatjönu sem fellur
fyrir Evgení. Lenskí, vinur Evgení
og síðar óvinur, er sunginn af Elmari
Gilbertssyni. Færeyingurinn Rúní
Brattaberg bregður sér í hlutverk
Germín fursta en í öðrum hlutverkum
eru íslensku söngvararnir Nathalía
Druzin Halldórsdóttir, Alina Dubik,
Hanna Dóra Sturludóttir og Hlöðver
Sigurðsson, auk þess sem kór ís-
lensku óperunnar syngur og leikur í
uppfærslunni.
Hljómsveitarstjóri er Benjamin
Levy sem einnig stjórnaði tónlistinni
í uppfærslu á Don Giovanni fyrr á ár-
inu. Leikmynd er í höndum Eva Signý
Berger, búninga hannar María Th.
Ólafsdóttir og Björn Bergsteinn Guð-
mundsson hannar ljós.
Hjartans mál rædd í sveitinni. Myndin er af æfingu hjá Íslensku óperunni. Hér
eru Þóra Þóra Einarsdóttir, Hanna Dóra Sturludóttir , Nathalía Druzin Halldórs-
dóttir og Alina Dubik í hlutverkum sínum.