Fréttatíminn - 15.10.2016, Side 28
28 | FRÉTTATÍMINN | Laugardagur 15. október 2016
Tógópokar í Melabúð
„Efnið er allskonar og hver og einn poki því einstakur.“
„Pokarnir eru saumaður af
námsmeyjum og sveinum í Tógó,“
segir Guðný Einarsdóttir einn
meðlima félagsins Tau frá Tógó
sem selur vörur sem er saumaðar
á saumastofu heimilis fyrir mun-
aðarlaus börn í Tógó.
„Þar saumastofa sem er skóli
fyrir elstu börnin og leið til að afla
tekna fyrir heimilið. Taupokarnir
eru saumaðir af þeim en þau velja
efnin á mörkuðum.“ Pokarnir eru
hannaðir af tveimur íslenskum
hönnuðum Maríu Ólafsdóttur og
Tinnu Gunnarsdóttur en María
segir þær Tinnu hafa langað að
hanna praktískan poka.
„Við ákváðum því að nota leður-
handföng á honum svo hægt sé að
halda á honum með báðum hand-
föngum, setja á öxlina eða á báðar
axlir sem bakpoka. Þá getur mað-
ur hjólað með hann á bakinu.“
„Efnið er allskonar og hver og
einn poki því einstakur. Við tókum
áhættu með leðrið því við vissum
ekki hvort það fengist nóg af því
eða hvort það væri of dýrt. Þau
hafa hins vegar látið það rætast
sem mér finnst mjög fallegt. Þau
endurnýta leður af öðrum flíkum,
eru greinilega að klippa niður leð-
urflíkur því maður sér stundum í
sauma í leðrinu.“ |
Tógópokar fást í Melabúð og
kosta 2500 krónur.
Allur ágóði rennur til heimilis
barnanna. | bg
Hópurinn sem stendur
að verkefninu. Mynd
| Hari
Útlitið sem að safnið hef-ur verið með síðustu 10 árin hefur verið óbreytt. Það voru rosa-lega margir á íslandi
sem vissu ekki að öll þrjú húsin
heyra undir Listasafni Reykjavík-
ur. Eins og fyrir mig, ég bý erlend-
is og kem mjög oft hingað og þegar
við byrjuðum að vinna í þessu þá
vissi ég ekki að Ásmundarsafn
væri hluti af Listasafni Reykja-
víkur og varla að Kjarvalsstaðir
væru hluti af þessu. Það sem er
svo flókið við þetta er að húsin eru
gríðarlega ólík. Þetta var kveikjan
að þessu hjá safninu, að sameina
þessi þrjú hús.“
Þurftuð þið að fara í gengum
margar hugmyndir til að ná niður-
stöðunni eða var þessi hugmynd
bara skýr frá byrjun?
„Við erum sjö manns á stofunni
hérna í New York og það vinna all-
ir að verkefninu í byrjun. Við byrj-
um þannig að allar hugmyndir eru
góðar hugmyndir, það er allt leyft
í byrjun. Einnig unnum við verk-
efnið með hönnuðinum Ármanni
Agnarssyni sem hefur unnið lengi
með safninu. Við komum að þessu
í byrjun og núna förum við hægt
að kúpla okkur út og Ármann tek-
ur við og mun halda áfram með
verkefnið.“
Við fyrstu sýn fær maður á tilfinn-
inguna að þessu nýja útliti sé ætlað
að ná til yngri markhópa. Er það
rétt?
„Það er kannski rétt. Mér finnst
alltaf, eins og úti, það vera alls-
ráðandi að ímynd og hönnun
svona stórra safna sé svo alvarleg.
Þetta getur stundum verið eins og
ímynd fyrir banka. Þú kemur inn
á eitthvert safn og merkið er uppi
á vegg og það má aldrei gera neitt
við það og allt voðalega alvarlegt
alltaf. Það er kannski rétt að okkar
nálgun sé að reyna að gera þetta
aðeins léttara. Að ímyndin sé
ekki of alvarleg og fráhrindandi.
Hver og einn tekur eitthvað frá
útlitinu.“
Ný ímynd Listasafns
Reykjavíkur: Hönnunin
ekki of alvarleg
Ímyndin létt og ekki of alvarleg.
Hönnuðurinn Hjalti Karlsson hannaði með
hönnunarstofu sinni Karlsson og Wilker nýja
ímynd fyrir Listasafn Reykjavíkur. Nýja útlitið
var níu mánuði í bígerð en mikil ánægja er
með það.
Helga Dögg Ólafsdóttir
helgadogg@frettatiminn.is
„Við erum sjö manns á
stofunni hérna í New
York og það vinna allir
að verkefninu í byrjun.
Við byrjum þannig að
allar hugmyndir eru
góðar hugmyndir, það
er allt leyft í byrjun.“
Takk
Michelle!
Nýlega var upptöku lekið í fjöl-
miðlar þar sem Trump talar með
niðrandi hætti til kvenna auk þess
sem fjöldi kvenna hefur stigið
fram í vikunni og ásakað hann um
kynferðislega áreitni í sinn garð.
Í ræðu sinni segir Michelle að
stöðva þurfi þá orðræðu sem
Trump hefur viðhaft í kosninga-
baráttu sinni. Niðrandi ummæli
um konur eigi að heyra fortíðinni
til. Ekki megi loka eyrunum fyrir
slíkum athugasemdum. Konur hafi
alltof lengi þurft að berjast gegn
þess háttar ofbeldi, orðræðu og
virðingarleysi sem þær hafi orðið
fyrir daglega, að mati Michelle.
Michelle fær hrós fyrir að rjúfa
þögnina og taka afstöðu gegn því
að ummæli og hegðun sem fela í
sér lítilsvirðingu á konum sé bæði
eðlilegur hluti í kosningabaráttu
framjóðanda til forseta Bandaríkj-
anna. Slík ummæli séu aldrei boð-
leg hvorki fyrir forsetaframbjóð-
anda né aðra.
Takk Michelle!
Hrós vikunnar
fær Michelle
Obama forsetafrú
Bandaríkjanna
sem beinir orðum
sínum að öðrum
forsetaframbjóðanda
Bandaríkjanna,
Donald Trump, í
kosningarherferð
Hillary Clinton í New
Hampshire.
Niðrandi ummæli um konur eiga að heyra fortíðinni til.