Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 34

Fréttatíminn - 15.10.2016, Qupperneq 34
Hrækti á nágrannann Söngstirnið Justin Bieber virðist vera eltur af fortíð sinni, en árið 2014 kærði ná- granni hans hann fyrir að hafa kastað eggjum í hús hins síðarnefnda. Sátt náðist í málinu en nú hefur nágrann- inn kært hann vegna annars atviks úr fortíðinni. Nágranninn bankaði upp á hjá Bieber til að ræða við hann um hraðakstur í götunni, en í stað þess að biðjast afsökunar hrækti hann framan í nágrannann sem vil meina að honum hafi brugðið svo að hann hafi verið í andlegu ójafnvægi í nokkurn tíma á eftir. Ná- granninn vill að lífvörður Bieber vitni í málinu og er hann tilbú- inn að fljúga lögfræðingum sínum þvert yfir Bandaríkin til að ná þeim vitnisburði. Óboðinn gestur tók upp myndband Skömmu eftir að lögreglan kom á vettvang þegar Kim Kardashian var rænd í París á dögunum, tók einhver, sem var staddur inni í íbúðinni, upp myndband af því sem þar fór fram. Á myndbandinu sést hvar Kim ligg- ur uppi í sófa, vafin inn í teppi og talar við einhvern í símann á meðan lögreglan að skoðar hvern krók og kima í íbúðinni. Þetta hefur slúðursíðan tmz. com eftir heimildamönnum. En myndbandið mun hafa verið birt á netinu í vikunni. Lög- menn Kim vinna nú með frönsku lögreglunni að því að leysa málið, bæði ránið sjálft og það hver tók upp myndbandið. Með samviskubit vegna sonarins Kántrísöngkonan Carrie Underwood hefur viður- kennt að hún sé með nagandi samviskubit yfir því að bjóða syni sínum upp á að búa í hljómsveitar- rútum og á hótelherbergjum, þegar hún er á tónleikaferðalagi. Hún telur þetta ekki heilbrigt umhverfi fyrir soninna Isaiah að alast upp í. Carrie hefur ráðlagt öðrum mæðrum að biðja um hjálp með börnin ef þær þurfa á því að halda, hún mætti sjálf gera meira af því. Þegar hún var ólétt af syninum hafði hún töluverðar áhyggjur af því hvernig það myndi samræmast tónlistarferlinum aðt ala upp barn, hvort hún myndi missa af verkefnum, en hún hefur reynt að halda áfram á sömu braut og áður eftir að hann kom í heiminn. Leikkonan Nicole Kidman hefur viðurkennt að henni hafi liðið illa þegar hún fékk Óskarsverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki árið 2002. Það hefði átt að vera ein stærsta stund lífs hennar, en þegar hún hlaut verðlaunin þá fannst henni það svo áþreifanlegt hvað hún var ein, hún var ekki í sam- bandi og hafði engan til að deila gleðinni með. Henni fannst hún hafa náð botni sínu persónulega lífi. „Ég hugsaði með mér að nú þyrfti ég að gera eitthvað í mínum málum og verða ástfangin á nýjan leik,“ sagði leikkona nýlega í við- tali, en hún og Tom Cruise höfðu skilið ári áður. Kidman var í stuttu sambandi með söngvaranum Lenny Kravitz áður en hún kynntist núverandi eiginmanni sínum, Keith Urban, árið 2006 og segir hún samband þeirra bara hafa orðið sterkara og betra með árunum. Var vansæl þegar hún fékk Óskarinn Nicole Kidman fannst hún hafa náð ákveðinni lægð einkalífinu því hún var ekki í sambandi. Hamingjusöm Kidman segir samband henn- ar og eigin- mannsins bara hafa vaxið og orðið sterkara með árunum. FACEBOOK.COM/KISSFMICELAND ÍSAFJÖRÐUR FM104,1 UM ALLAN HEIM KISSFM.IS AKUREYRI FM102,5 REYKJAVÍK FM104,5 Þetta er auðvitað skáldað en aðalpersónan var leikmaður í sigurliði Íslands á B-keppninni í Frakklandi árið 1989,“ segir Halldór Halldórsson, Dóri DNA, um sjónvarpsþætti sem hann er að skrifa í félagi við Hafstein Gunnar Sigurðsson, Jóhönnu Frið- riku Sæmundsdóttur og Jörund Ragnarsson. Þættirnir kallast Afturelding og sögusviðið er Mosfellsbær og handboltaheimurinn. „Þetta er dramasería með glettnu ívafi sem gerist í heimi kvennahandbolta. Hún fjallar um gamla þjóðhetju, Skarphéðinn, sem er að snúa heim eftir óblíð ár og óreglu. Gamlir fé- lagar hans úr íþróttahreyfingunni gefa honum séns og hann fær að þjálfa kvennalið Aftureldingar, sem hann telur auðvitað langt fyr- ir neðan sína virðingu. Þar hittir hann fyrir Brynju sem er gömul landsliðskempa á lokametrum ferilsins og unga stúlku sem heit- ir Hekla. Þetta er samt mannlegt drama, ekki íþróttaþættir.“ Dóri og Hafsteinn Gunnar, sem mun leikstýra þáttunum, hafa lengi unnið að undirbúningi Aft- ureldingar. Á þessu ári var hand- ritsgerðin tekin föstum tökum og þau Jóhanna og Jörundur bættust í hópinn. Nýlega fékkst grænt ljós á þáttaröðina frá RÚV og segir Dóri að næsta ár fari í fjármögnun en stefnt sé að tökum árið 2018. Alls verða þættirnir níu talsins. Zik Zak framleiðir. Ekki hefur verið gengið frá því hverjir muni leika í Aftureldingu en Dóri viðurkennir að handrits- höfundarnir hafi mann í huga fyrir aðalhlutverkið. „Við höfum rætt við mann, já.“ Dóri segir að mikil rann- sóknarvinna liggi að baki handrits- gerðinni. „Við höfum mikið verið að skoða gömlu íþróttahetjurn- ar og byrjum alla daga á því að horfa á viðtöl úr gömlum Hemma Gunn-þáttum. Svo höfum við rætt við handboltamenn og -konur og farið á kvennaleiki. Það varð að kafa djúpt í þetta enda er ætlun- in að draga upp mynd af þessum heimi kvennaíþrótta sem stýrt er af eldri karlmönnum. Það er nú stóra metafóran í þessu, þetta fjall- ar mikið um samskipti kynjanna. Þetta kann að hljóma grand en við erum samt að upphefja íslenskan hversdagsleika í öllum íþrótta- húsum landsins - þar sem tíminn virðist ekki líða. Svo fannst okkur smákóngahátturinn í íþróttahreyf- ingunni góð samlíking fyrir sam- félagið.“ Af hverju handbolti? „Handbolti er svo geggjuð íþrótt að því leyti að það eru ekki miklir peningar þarna. Það er bara ný- lega að einstaka leikmenn fóru að komast í álnir en ástríðan í sportinu er alveg einstök. Hand- boltamenn og -konur eru algjör hörkutól. Þetta er þjóðaríþróttin en eftir að fótboltaliðunum fór að ganga vel sést vel hvað handbolt- inn á erfitt uppdráttar.“ …fólk 2 | amk… LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2016 Handbolti er svo geggjuð íþrótt að því leyti að það eru ekki miklir pen- ingar þarna. Það er bara nýlega að einstaka leikmenn fóru að komast í álnir en ástríðan í sportinu er alveg einstök. Sækja innblástur í gamla þætti með Hemma Gunn Gömul kempa úr íslenska handboltalandsliðinu sem vann B-keppnina 1989 er aðalpersóna sjónvarpsþáttanna Afturelding sem nú eru í  undirbúningi. Kempan er sett í að þjálfa kvennaliðið í Mosó til að ná sér upp úr óreglu. Heilluð af handbolta Dóri DNA, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson og Jörundur Ragnarsson vinna nú að gerð sjónvarpsþáttanna Aftureldingar. Mynd | Hari Áttu að heita Harpix Þættirnir áttu upphaflega að heita Harpix, með vísan í klístrið sem handboltamenn nota. Jör- undur Ragnarsson stakk upp á nafninu Afturelding þegar hann og Hafsteinn Gunnar hittust á kvikmyndahátíð úti í löndum fyrir nokkru síðan.

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.