Fréttatíminn

Útgáva

Fréttatíminn - 15.10.2016, Síða 36

Fréttatíminn - 15.10.2016, Síða 36
Fór í mikla andlega vinnu í detoxmeðferð í Póllandi Camilla Rut glímdi við mikið fæðingarþunglyndi en detox hjá Jónínu Ben hjálpaði henni finna gleðina á ný. Hún þurfti að fullorðnast hratt vegna veikinda móður og byrjaði með tilvonandi eiginmanni sínum þegar hún var nýfermd. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég er í svo miklu sjokki yfir því hvað lagið bara sprakk út. Við erum að detta í tíuþúsund áhorf,“ segir bloggarinn og snapchat-drottningin Camilla Rut Arnardóttir sem birti á sunnu- daginn tónlistarmyndband á Youtube, þar sem hún og kærast- inn hennar, Rafn Hlíðkvist Björg- vinsson, flytja lagið Wicked games saman. Viðbrögðin hafa verið framar vonum. Þau voru dugleg að vinna saman að tónlist hér áður fyrr, en sex ár eru síðan þau tóku efni upp síðast. „Fjölskyldan mín er mjög tón- elsk og við höfum mikið verið í gospel. Við Rabbi kynntumst einmitt í gegnum gospelið. Svo fór- um við á „datenight“ um daginn og ákváðum að gera eitthvað ann- að en að fara út að borða. Þannig að við fórum og tókum upp lagið, sem kom ágætlega út. Svo heyrði ég í félögum mínum með að að- stoða við að mixa og gera mynd- band. Og þegar það var tilbúið þá hugsaði ég með mér að ég myndi sjá eftir því ef ég setti lagið ekki í loftið,“ segir Camilla um hvernig það kom til að parið fór út í þetta verkefni. En þau stefna að því að vinna meira saman að tónlist í framtíðinni. Nýfermd og hann 19 ára Camilla er fædd og uppalin í Krossinum og síðar Hvítasunnu- söfnuðnum, en það var einmitt þar sem leiðir hennar og unnust- ans lágu saman fyrir níu árum. Þá var Camilla nýfermd en hann 19 ára. „Ég varð strax skotin í honum, en ég var svolítið ung þannig hann var ekkert endilega að horfa á mig á þann hátt. Við urðum strax rosa- lega góðir vinir, en það var alltaf eitthvað meira undirliggjandi. Það sáu það allir, en við gáfum ekkert upp strax. Við fórum rosalega hægt í sakirnar. En ég er 22 ára í dag og við erum enn saman, kom- in með íbúð og barn og ætlum að gifta okkur í febrúar.“ Camilla segir fólk og hvá þegar það heyrir hvað hún er ung, en hún segist upplifa sig mun eldri en hún er. „Ég tengi ekki mikið við jafnaldra mína og flestir vinir mínir eru fimm til sjö árum eldri en ég. Ég finn það mjög vel þegar Líður vel í dag Camilla er oft spurð að því á snapchat hvernig hún fari að því að vera alltaf svona glöð, svarið við því er: með mikilli vinnu. Mynd | Hari gamlar skólasystur sem búa enn heima hjá foreldrum sínum, koma í heimsókn, hvað ég er á allt öðr- um stað en þær,“ segir Camilla, en hún þurfti að fullorðnast aðeins hraðar en jafnaldrar sínir af ýms- um ástæðum. „Mamma glímdi við mikil veikindi þegar ég var ung- lingur, svo eignaðist hún tvö börn, þegar ég var 16 og 18 ára, þannig ég varð eins önnur mamma þeirra. Ég neyddist til að taka stökk í þroska og taka á mig mikla ábyrgð. Maður gerir bara það sem þarf að gera,“ útskýrir hún. Afi Gunnar í Krossinum Þó Camilla sé enn trúuð þá er hún ekki virk í Hvítasunnusöfnuðinum í dag, eða öðrum söfnuði. „Ég er ekki skráð í neinn söfnuð. Ég flosn- aði bara upp úr þessu. En ég er alltaf með barnatrúna í hjartanu.“ Það má segja að Camilla hafi verið í innsta hring í Krossinum á sínum tíma, en Gunnar í Krossin- um er afi hennar. Hefur hún mátt þola töluvert áreiti vegna þess í gegnum tíðina. „Á tímabili mátti maður ekki segja neitt án þess að það færi í blöðin. Það var fylgst svo náið með okkur. Ég var með lokað facebook en það var ein- hver á mínum vinalista sem lak upplýsingum. Ég var 16 ára þegar DV hringdi reglulega í mig,“ segir Camilla sem segir þetta vissulega hafa verið óþægilegt, en hún hafi lært að leiða óþægindin hjá sér. „Ég hef orðið fyrir allskonar að- kasti út af fjölskyldunni minni en reynt að láta það ekki á mig fá. Ég er komin með ágætlega breitt bak allavega,“ segir hún og brosir. Camilla er í góðu sambandi við afa sinn og konu hans, Jónínu Ben, en hún hefur farið þrisvar í detox meðferðir sem Jónína býður upp á í Póllandi. Síðast í maí á þessu ári. Það var þá sem snapchat-ævintýr- ið hófst af alvöru. „Ég fer aðal- lega í þetta til að vinna í andlegu hliðinni, ekki til að missa einhver kíló. Ég var búin að vera að glíma við mikið fæðingarþunglyndi og fór í maí til að takast á við það. Ég var komin á mjög slæman stað. Ég ákvað að opna snapchat og leyfa fólki að fylgjast með. Það voru margir mjög áhugasamir og ég var komin með 2500 fylgjendur þegar ég fór heim,“ segir Camilla en hún er með um fimm til sexþúsund fylgjendur í dag. „Þegar fólk heyrir um detox þá spyr það mig hvort ég sé með slöngu upp í rassinum í tvær vikur. Ég var ekki að reyna að stuðla að vitundarvakningu en mig langaði að sýna fólki hvernig þetta væri.“ Fæðingarþunglyndi og detox Þegar Camilla var úti í með- ferðinni þá reyndi hún að temja sér góða siði og sjá björtu hliðarn- ar á lífinu. Hún vissi nefnilega að hún yrði að taka til í lífi sínu til að geta verið besta útgáfan af sjálfri sér. „Ég var á þunglyndislyfjum á tímabili. Ég átti son minn í apríl og var komin á þunglyndislyf í október, en ég hætti á þeim í febr- úar síðastliðnum. Ég ákvað að lyfin yrðu spark í rassinn á mér, ég vildi alls ekki verða háð þeim. Ég vissi að það voru þau sem létu mér líða betur en ég vildi að mér gæti liðið vel án þeirra líka. Þannig ég trapp- aði mig niður af þeim samkvæmt læknisráði.“ Að fara í meðferðina í Pól- landi var svo hluti af því ferli að finna gleðina í lífinu á nýjan leik. Camilla viðurkennir að það hafi reyndar verið mjög erfitt að fara frá syni sínum í tvær vikur, þegar hann var rétt eins árs, en hún segir þetta hafa verið betra fyrir þau bæði þegar upp var staðið. „Ég ákvað að þetta væri best fyrir okkur öll. Ég tók mér mjög lítið fæðingarorlof. Ég gat það bara ekki eins og staðan var, þannig ég var að vinna heima. Ég var meira að segja að svara tölvupóstum á milli hríða þegar ég var að eiga strák- inn. Að vera að vinna með nýfætt barn fór hins vegar illa í mig. Ég varð mjög kvíðin og vildi fá að vera í friði. Ég vildi bara vera ein með Gabríel syni mínum og hvæsti á fólkið í kringum mig. En ég sá að þetta gat ekki gengið til lengdar. Það var alltaf stress og álag á heim- ilinu og ég fékk aldrei tíma fyrir sjálfa mig.“ Sársaukafull andleg vinna Camilla vissi hvað hún var að fara út í þegar hún fór til Póllands í vor, enda búin að fara tvisvar áður. Hún gat því skipulagt sig vel og verið búin að hugsa hvað hún vildi fá út úr meðferðinni. „Ég tók ákvörðun um að fara í massífa and- lega vinnu, sem er ógeðslega erfitt. Það gerast magnaðir hlutir þegar maturinn er tekinn af manni. Maður verður svo berskjaldaður. Andleg vinna getur verið mjög sársaukafull í miðri meðferð ætlaði ég að kaupa mér miða heim til Ís- lands. En ég kom alveg endurnærð heim. Ég var tilbúin til að takast á við lífið og lifa því.“ Það er óhætt að segja að Camillu hafi tekist ágætlega að glæða líf sitt gleði og hamingju því fylgjendur hennar á snapchat furða sig oft á því hvað hún er alltaf glöð. „Ein algengasta spurningin sem ég fæ er: „Hvernig geturðu alltaf verið svona lífsglöð og jákvæð?“ En þá spyr ég bara: afhverju ekki? Ég hef verið á þeim stað að vakna og vilja ekki fara framúr rúminu. En á síð- ustu mánuðum hef ég tamið mér að vera sanngjörn við sjálfa mig og ég hef lært að elska sjálfa mig. Það er er nauðsynlegt að elska sjálfa sig til að geta elskað aðra. Ég var ekki að gefa syni mínum bestu út- gáfuna af sjálfri mér, eða Rabba, þvílík þrautsegja hjá honum að halda þetta út,“ segir Camilla og skellir uppúr. En vanlíðan henn- ar hafði að sjálfsögðu líka áhrif á hann þó hann stæði sem klettur við hlið hennar. Mikil vinna að líða vel „Fólk heldur nefnilega að ég sé bara svona, en þetta hefur verið bullandi vinna. Til þess að líða vel þá þarf ég að vakna við vekjara- klukkuna, ég þarf að borða hollt og hreyfa mig. Það er mjög erfitt stundum. En ég reyni bara að sýna fólki hvernig lífið raunverulega er. Og hvernig baráttan við að vera besta útgáfan af sjálfum sér geng- ur fyrir sig. Þetta er barátta sem er tilbúin að vera alltaf í. Ég vil að mér og fjölskyldunni minni líði vel og að heimilið mitt líti vel út og það er bara vinna.“ Ein algeng- asta spurn- ingin sem ég fæ er: „Hvernig geturðu alltaf verið svona lífsglöð og jákvæð?“ …viðtal 4 | amk… LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 2016 Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Katrín Bessadóttir, katrin@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.