Fréttatíminn - 15.10.2016, Síða 44
LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 20164 BÍLAR
Gæðabílar Mercedes-Benz bílar eru þekktir fyrir gæði og áreiðanleika. Mynd | Rut
Mercedes-Benz Askja notaðir bílar bjóða viðurkennda Mercedes-Benz bíla sem tryggir fría
þjónustu og viðhald í tvö ár.Mynd | Rut
Askja notaðir bílar,
ný og breytt sýningaraðstaða á Kletthálsi 2 Mynd | Rut
Gunnar Haraldsson sölustjóri Öskju, notaðra bíla Mynd | Rut
Notaðir Mercedes-Benz
með tveggja ára ábyrgð
Unnið í samstarfi við Öskju
Úrvalið af notuðum bílum er mikið hjá okkur. Við vorum að stækka og nú eru að staðaldri allt
að 150 bílar á staðnum en einnig
eru til sölu litlir sendibílar sem er
nýjung og viðbót við þá þjón-
ustu sem fyrir var,“ segir Gunnar
Haraldsson, sölustjóri notaðra
bíla hjá Öskju sem einblínir á sölu
Mercedes-Benz bifreiða.
Askja hefur að undanförnu
kynnt þjónustusamning fyr-
ir viðurkenndar Mercedes-
-Benz bifreiðar sem keyptar eru
hjá Öskju notuðum bílum. Með
samningnum býðst Mercedes-
-Benz kaupendum að fá viðhald
og þjónustu bifreiðarinnar sér að
kostnaðarlausu í tvö ár frá kaup-
degi. Samningurinn fyrir viður-
kenndar Mercedes-Benz bifreið-
ar kallast ProvenExclusivity. „Á
heimsvísu notar Mercedes-Benz
þetta kerfi sem reynst hefur vel
og fallið í kramið hjá neytendum.
Núna erum við að bjóða 2012 ár-
gerðir og yngri auk þjónustu og
viðhalds á tímabilinu sem er þá
alveg gjaldfrítt. Eftir tvö ár kem-
ur svo fólk og setur gamla bílinn
upp í nýrri týpu. Eina skilyrðið
sem við setjum er að fólk komi á
tilsettum tíma í þjónustuskoðun
svo viðhaldi sé sinnt rétt og sam-
kvæmt fyrirmælum frá þjónustu-
aðilum og fyrir vikið verður bíllinn
vel þjónustaður hjá sérþjálfuðum
tæknimönnum Mercides-Benz á
verkstæðinu. Það er betra fyrir
alla að fólk sinni þessu því þá
endist bíllinn mun lengur,“ segir
Gunnar og leggur áherslu á að
þetta viðhald sé bíleigandanum
að kostnaðarlausu. „Ef fólk kemur
á tveggja ára fresti, eins og því
stendur til boða, og skiptir um
bíl þá þarf það í raun aldrei að
hafa áhyggjur af viðhaldi bíls-
ins eða borga fyrir það.“ Vert er
að taka fram að Askja tekur allar
tegundir bíla upp í, ekki einungis
Mercedes-Benz bifreiðar. Allir bíl-
ar eru vandlega yfirfarnir af Öskju
áður en þeir fara í sölu.
Þrátt fyrir að Mercedes-Benz
flokkist vissulega sem lúxusmerki
leggur Gunnar áherslu á að nú sé
uppgangur sem skilar sér í betra
gengi. Í kjölfarið lækki vitanlega
verðið á nýjum bílum sem skilar
sér í lægra verði á notuðum bílum.
„Mercedes-Benz er einnig fram-
arlega þegar kemur að tækninýj-
ungum hvað verðar meng-
unarvarnir og vörugjöldin eru eftir
því, tollarnir lækka sem skilar sér
í lægra verði,“ segir Gunnar.