Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 18
VIÐREISN | Ármúla 42, 108 Reykjavík | S: 415-3700 | www.vidreisn.is www.vidreisn.is
Viðreisn er eini flokkurinn sem ætlar að…
…lækka vexti með raunhæfum aðgerðum til framtíðar
…jafna launamun kynjanna með því að lögfesta jafnlaunavottun
…byggja upp innviði landsins með markaðsgjaldi á sjávarútveginn
Almannahagsmunir framar sérhagsmunum
Viðreisn er nýtt, frjálslynt stjórnmálaafl. Á Íslandi hefur vantað frjálslyndan, alþjóðasinnaðan flokk sem
setur jafnrétti í forgrunn. Við viljum víðtækari velferð, aukið viðskiptafrelsi og vestræna samvinnu.
Land tækifæra
Viðreisn vill byggja upp samfélag þar sem allir geta nýtt hæfileika sína til fulls. Við viljum að ungt fólk
sjái Ísland sem land tækifæra. Það kallar á umhverfi velferðar, blómlegs atvinnulífs og menningar.
Lífskjör á við Norðurlöndin
Viðreisn vill ráðast í nauðsynlegar kerfisbreytingar í þágu almennings, í sjávarútvegi, landbúnaði og
peningamálum. Markmiðið er lífskjör verði jöfn því sem best gerist á hinum Norðurlöndunum.
Velferð á traustum grunni
Viðreisn vill taka á rót vandamála en ekki glíma sífellt við afleiðingarnar. Við viljum langtímalausnir í
efnahagsmálum, sem tryggja okkur og afkomendum okkar betri lífskjör. Stöðugt efnahagsumhverfi er
grundvallarforsenda velferðar og framfara.
„Viðreisn þorir, getur og vill -
breyta í þágu allra í sam-
félaginu“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Oddviti, Suðvestur
„Með nýsköpun er hægt að
ráðast í róttækar kerfis-
breytingar. Ég er til en þú?“
Jón Steindór Valdimarsson
2. sæti, Suðvestur
„Það er komið að því að
forgangsraða í þágu
heilbrigðis“
Hanna Katrín Friðriksson
Oddviti, Reykjavík suður
„Hlýðum ákalli háskólanna,
þar er framtíðin“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
2. sæti, Reykjavík norður
„Viðreisn samanstendur af
öflugum hópi fólks sem vill gera
Ísland enn betra“
Hildur Betty Kristjánsdóttir
2. sæti, Norðaustur
„Framtíðarsýn sem byggir á
sanngirni og frjálslyndi, setur
raunhæf markmið um jákvæðar
breytingar“
Páll Rafnar Þorsteinsson
3. sæti, Reykjavík norður
„Ég vil að Ísland verði
eftirsóknarverður staður
að búa á“
Lee Ann Maginnis
2. sæti, Norðvestur
„Ég vil að samfélagið sé
réttlátt og að þar sé frjálslyndi
til framtíðar“
Gylfi Ólafsson
Oddviti, Norðvestur
„Frjáls viðskipti -
frjálst fólk“
Pawel Bartoszek
2. sæti, Reykjavík suður
„Jafnréttismál eru alvöru
mál, við samþykkjum ekki
kynbundinn launamun“
Sigríður María Egilsdóttir
5. sæti, Reykjavík suður
„Raunhæfar lausnir og
kjarkur til að framkvæmda“
Dóra Sif Tynes
3. sæti, Reykjavík suður
„Ég vil breytingar, vil búa í
skapandi samfélagi sem byggir
á jafnrétti og samkennd“
Birna Hafstein
4. sæti, Reykjavík norður
„Ég vil að Ísland verði opið,
frjálslynt og jafnréttissinnað
samfélag - land tækifæranna“
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir
3. sæti, Suðvestur
„Viðreisn er alvöru
hreyfiafl í íslensku
samfélagi“
Þorsteinn Víglundsson
Oddviti, Reykjavík norður
„Virkjum tækifærin í
landbúnaði“
Jóna Sólveig Elínardóttir
Oddviti, Suður
„Nú er tækifæri til
kerfisbreytinga.
Missum ekki af því“
Benedikt Jóhannesson
Oddviti, Norðaustur