Fréttatíminn - 21.10.2016, Blaðsíða 42
Ég ætlaði bara að vera eitt ár hérna í útvarpinu en nú eru þau orðin rúm-lega 30. Þetta er orðið ágætt,“ segir Magnús R.
Einarsson, útvarps- og tónlistar-
maður.
Magnús er einn af þekktustu út-
varpsmönnum landsins og hefur
um langt skeið fylgt okkur með
þægilegum og upplýsandi þátt-
um sínum. Hann hefur síðustu ár
verið á Rás 1 og stjórnar nú Mann-
lega þættinum ásamt Guðrúnu
Gunnarsdóttur. Á næsta ári verð-
ur þó breyting á högum Magnús-
ar og hann hyggst hverfa úr dag-
vinnunni.
„Þetta verður um mitt næsta ár
en það er ekki alveg komin tíma-
setning þar á. Ég er nú ekki orðið
löggilt gamalmenni. Ég verð 64 ára
í nóvember. Næsta vor verð ég hins
vegar búinn að vinna á RÚV í 32 ár
og þar áður var ég kennari. Ég er
því kominn með lífeyrissjóð sem
ég get notað,“ segir hann.
Hvað tekur við þegar þú hættir?
„Mig langar að fara að gera eitt-
hvað annað. Ég hugsa að ég snúi
mér meira að músíkinni. Fari að
semja meira og spila meira.“
Magnús hefur uppi áform um að
hverfa af landi brott þegar þetta
nýja líf hans tekur
við, að minnsta
k o s t i u m
stundarsakir.
Ein af þeim
hugmyndum
sem hann og
kærastan,
Friðrika
Benónýsdótt-
ir, blaðamaður
og gagnrýnandi,
hafa viðrað er að
njóta lífsins í París
um hríð.
„Þetta er nú bara hugmynd enn
sem komið er. Þegar ég var yngri
var ég í námi á Englandi og Ítal-
íu og ferðaðist svo meðal annars
um Asíu. Ég var í tvö ár á flækingi
áður en ég kom heim og mig hefur
alltaf langað til að þvælast eitthvað
meira. Hugmyndin er að fara út og
vera í nokkra mánuði eða eitt ár á
flandri um Suður-Evrópu. Það er
að minnsta kosti draumurinn. Svo
sjáum við hvort menn efna kosn-
ingaloforðin og hvort ég fæ minn
lífeyri og eftirlaun,“ segir hann.
Magnús kveðst sáttur við tíma
sinn í útvarpinu ef hann horfir til
baka og útilokar ekki að fást eitt-
hvað við dagskrárgerð áfram þó
hann láti af daglegum störfum þar.
„Ég er alls ekki hættur að vinna.
Þetta er búinn að vera fínn tími en
það er bara komið að nýju fólki að
taka við. Ég er orðinn svo gamall
að mér finnst enginn gera hlutina
almennilega nema hann hafi hlust-
að á Pétur Pétursson og Jón Múla.
Nú er komið fólk sem man ekkert
eftir þessum köllum og þá er ald-
eilis tími að snúa sér að einhverju
öðru.“
Bieber brjálaður við aðdáendur sína
Íslandsvinurinn Justin Bieber
fékk nóg af látunum í aðdá-
endum sínum á tónleikum
í Birmingham á Englandi á
dögunum. Bieberinn var að
segja tónleikagestum sögu
á milli laga en það heyrðist
ekki orð af því sem hann sagði
vegna öskra gestanna. „Getið
þið slakað á í tvær sekúndur?
... Þessi öskur eru ógeðsleg,“
sagði hann og greinilegt var að
það sauð á Biebernum.
Fengu afsökunarbeiðni vegna rangra frétta
Tom Hanks og Rita Wilson, eiginkona
hans, hafa fengið afsökunarbeiðni
frá bandarískum götublöðum vegna
rangra frétta af hjónabandi þeirra.
Hjónaband þeirra Hanks og Wilson
þykir eitt hið traustasta í Hollywood
en það hefur staðið í 28 ár. Blöðin
tvö, National Enquirer and Star,
héldu því fram að Hanks hefði
haldið framhjá Wilson og þau ætluðu
að skilja að skiptum. „Í gegnum tíðina
höfum við hlegið að forsíðufréttum
þeirra en hjónabandið er hornsteinn
fjölskyldu okkar, það er okkur heilagt og við gátum ekki látið slíkan
þvætting viðgangast þegar við fögnum 29 ára brúðkaupsafmæli okkar í
apríl,“ sögðu þau hjónin.
Hoff ánægður með spúsuna
Hinn síungi David Hassel-
hoff er yfir sig ánægður með
tilvonandi eiginkonu sína, svo
ánægður að hann deildi bað-
fatamynd af henni á samfé-
lagsmiðlum á dögunum undir
yfirskriftinni: „Þetta er velska
stúlkan mín!“ Hasselhoff er 64
ára en unnusta hans, Hayley
Roberts, er 36 ára. Þau hafa
verið saman síðan 2013 og fyrr
á árinu lýsti Hasselhoff því
yfir að hann hefði beðið um
hönd Roberts í lautarferð við
ströndina á Malibu.
Brad Pitt hitti son sinn, hinn 15
ára gamla Maddox, á miðviku-
daginn í fyrsta skipti eftir að þeim
lenti saman í einkaflugvél í eigu
fjölskyldunnar í síðasta mánuði.
En atvikið í flugvélinni á að hafa
verið kornið sem fyllti mælinn
og orðið til þess að Angelina Jolie
sótti um skilnað frá manni sínum.
Sálfræðingur var viðstaddur þegar
þeir feðgarnir hittust á miðviku-
daginn. Til stóð að þeir hittust
töluvert fyrr en sálfræðingurinn
taldi betra að bíða aðeins.
Pitt mun hafa hitt hin börnin sín
fimm áður en hann hitti Maddox,
en það þykir stórt skref að þeir
hafi eytt tíma saman.
Pitt og Jolie hafa gert bráða-
birgðasamning í forræðisdeilu yfir
börnunum, og kveður samningur-
inn á um að börnin búi hjá henni
en hann hefur rétt til að heim-
sækja þau.
Lögreglan er enn að kanna hvað
átti sér stað í flugvélinni þegar
þeim feðgum lenti saman, það er
þó engin opinber rannsókn í gangi
á málinu.
Feðgar hittast með sálfræðingi
Brad Pitt hitti son sinn, Maddox, í fyrsta skipti eftir að þeim lenti saman.
Hættir í útvarpinu
eftir rúm 30 ár við
hljóðnemann
Ómþýð rödd Magnúsar R. Einarssonar hefur fylgt landsmönnum um
áratuga skeið á RÚV en innan tíðar verður breyting á. Hann hyggst
halda suður á bóginn með kærustunni og einbeita sér að tónlistinni.
Spennandi tímar framundan Magnús R. Einarsson útvarpsmaður hættir á RÚV eftir rúmlega þrjátíu ára feril þar. Hann hyggst njóta lífsins
sunnar í Evrópu og einbeita sér að tónlistariðkun í framtíðinni. Mynd | Hari
Feðgar Brad Pitt með sonum sínum tveim-
ur þegar allt lék í lyndi. Mynd | Getty
…fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
„Ég
er alls ekki
hættur að vinn
a.
Þetta er búinn
að
vera fínn tími
en það
er bara komið
að
nýju fólki að
taka við.“