Fréttatíminn - 04.11.2016, Síða 4
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Sjávarútvegur Samherji veiðir
fisk með verksmiðjutogurum í
Afríku. Engar upplýsingar eru
um veiðarnar í ársreikningi
Samherja. Guðni Th. Jóhannes-
son, sagnfræðingur og núver-
andi forseti, hefur bent á að
Afríkuveiðar Íslendinga séu
„tvískinnungur“ í ljósi sögu
Íslands og þorskastríðanna.
Þorsteinn Már Baldvinsson vill
lítið um útgerðina segja.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Útgerðarrisinn Samherji á hlut í
stóru útgerðarfélagi í Namibíu eftir
að sameiningu útgerðarfélags þess,
Esju Fishing Ltd. á Kýpur, við þrjú
önnur útgerðarfélög þar í landi í
fyrra. Frá þessu var greint í tilkynn-
ingu frá samkepppnisyfirvöldum í
lögbirtingablaðinu í Namibíu.
Fyrirtæki tengd Samherja reka
nú að minnsta kosti tvo togara sem
stunda fiskveiðar í Afríku. Skip-
in heita Heinaste og Saga og er hið
fyrrnefnda skráð í skattaskjólinu
St Kitts og Nevis í Vestur-Indíum og
hitt er skráð í Póllandi hjá útgerðinni
Atlantex. Skipin veiða í Namibíu og
í Máritaníu. Kýpverska fyrirtækið
Esja Fishing Ltd. sem á Heinaste hét
áður Miginato Holdings og er dóttur-
félag íslensks eignarhaldsfélags Sam-
herja, Polaris Seafood ehf.
Ekkert kemur hins vegar fram um
eignarhluti Samherja í útgerðum í
Afríku í ársreikningi félagsins fyrir
árið í fyrra sem samþykktur var af
stjórn akureyska útgerðarfélagsins
í lok ágúst síðastliðinn. Fara þarf í
ársreikning Polaris Seafood ehf. til
að sjá upplýsingar um eignarhald á
Esju Fishing Limited en ekki kemur
fram þar fram að fyrirtækið stundi
fiskveiðar í Afríku.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir að þó útgerðin
í Afríku sé ekki nefnd í ársreikningn-
um þá sé uppgjör hennar hluti af
uppgjöri Samherja. Hann segir að
Samherji tengist einungis rekstri á
þessum tveimur togurum í Afríku
og að ekki standi til að stækka út-
gerðina. „Við gefum bara upp þær
upplýsingar sem við teljum að við
þurfum að gefa upp. Þetta eru bara
félög sem starfa erlendis og ég held
að menn hljóti bara að fá að vera í
friði með þau. Ég ætla ekkert að fara
að ræða um Afríkumálin við þig.“
Hann vill ekki gefa upp hvernig Afr-
íkuveiðarnar ganga rekstrarlega.
Samherji átti sex skipa útgerð sem
veiddi aðallega hestamakríl í stór-
um stíl úti fyrir strönd Máritaníu,
Marokkó og Vestur-Sahara á árun-
um 2007 til 2013 og komu um 30
prósent af veltu Samherja þaðan.
Sú útgerð var gríðarlega ábatasöm
fyrir Samherja og var seld til rúss-
nesks útgerðarfélags árið 2013. Sam-
herji hagnaðist um nærri 8 millj-
arða króna á sölunni en fjárfesting
fyrirtækisins í útgerðinni hafði þá
borgað sig upp. Samherji keypti út-
gerðina fyrir um 12 milljarða króna
af fjölskyldunni sem átti Sjólaskip í
Hafnarfirði árið 2013 og notuðust
hluthafar Sjólaskipa við eignarhalds-
félög í skattaskjólum sem fjallað er
um í Panamaskjölunum þegar þeir
seldu Samherja útgerðina, eins og
Fréttatíminn greindi frá í síðustu
viku.
Afríkuveiðar Íslendinga, sem og
annarra Evrópulanda, hafa ver-
ið umdeildar á Íslandi og erlendis
síðastliðin ár þar sem stórar og fjár-
sterkar útgerðir, eins og Samherji,
veiða fisk í lögsögu fátækra ríkja þar
sem kunnátta og þekking á stórfelld-
um fiskveiðum er ekki eins góð og til
dæmis hjá íslenskum útgerðum. Um-
gjörðin utan um fiskveiðar í þessum
löndum, meðal annars Máritaníu,
er ekki lík því sem gerist til dæmis
á Íslandi og þarlend fyrirtæki hafa
ekki forsendur til að nýta þessa auð-
lind sína eins og margar evrópskar
útgerðir.
Meðal þeirra sem hafa fjallað
um fiskveiðar Íslendinga í Afríku
er Guðni Th. Jóhannesson sagn-
fræðingur, sem kjörinn var forseti
Íslands fyrr á árinu. Í viðtali við DV
árið 2012 sagði Guðni Th. að veiðarn-
ar væru „hámark tvískinnungsins“
vegna sögu Íslands sem strandrík-
is sem barðist yfir fiskveiðilögsögu
sinni í þorskastríðunum. „Í allri
okkar baráttu fyrir verndun fiski-
miðanna var rauði þráðurinn sá að
strandríkið skyldi hafa fullan rétt
á auðlindunum undan ströndum
þess.“
Leynir eignarhaldi
sínu á útgerð í Afríku
Í allri okkar baráttu fyrir
verndun fiskimiðanna
var rauði þráðurinn sá að
strandríkið skyldi hafa
fullan rétt á auðlindunum
undan ströndum þess.
Guðni Th. Jóhannesson
Samherji á hlutdeild í útgerð í Afríku í gegnum Kýpur en togarinn sem útgerðin á, Heinaste, er
skráður á flaggi í skattaskjóli í Vestur-Indíum. Hinn togarinn, Saga, hét áður Blue Wave og var í
eigu íslenskra lífeyrissjóða, meðal annarra, og veiddi hestamakríl í Afríku.
Engar upplýsingar
er að finna um
Afríkuútgerðina í
nýjum ársreikningi
Samherja. Þorsteinn
Már Baldvinsson er
forstjóri fyrirtæk-
isins.
Trúarbrögð - Orð Frans páfa
um konur vöktu heimsathygli.
Kaþólski biskupinn á Íslandi
fæst ekki til að segja hvort
hann sé sammála eða ósam-
mála því að konur fái ekki að
vera prestar í kaþólsku kirkj-
unni.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Kaþólski biskupinn yfir Íslandi,
David Tencer, neitar að ræða um
þá skoðun Frans páfa að konur geti
aldrei orðið prestar innan kaþólsku
kirkjunnar. „Ég vil ekki ræða þetta.
Nei, nei, nei. Ég vil ekki tala um
þetta. Hver vegna ætti ég að svara
svona?,“ segir David.
Frans páfi lét þessa skoðun í ljós,
aðspurður í viðtali við sænska rík-
issjónvarpið á þriðjudaginn, þegar
hann flaug frá Svíþjóð til Ítalíu eft-
ir að hafa heimsótt Svíþjóð. Um-
mæli páfa féllu í flugvélinni til Ítal-
íu og hóf hann tal sitt á því að segja
að sænskar konur væru „mjög
sterkar og duglegar“ og að hann
hefði heyrt að margir sænskir karl-
menn vildu finna sér konur erlend-
is. Í kjölfarið svaraði hann spurn-
ingunni þannig að Jóhannes Páll
páfi hafi svarað spurningunni um
kvenpresta með afgerandi hætti
árið 1994 og hans skoðun væri sú
sama.
Þessi ummæli páfans hafa vak-
ið mikla athygli í Svíþjóð og voru
meðal annars fyrsta frétt í kvöld-
fréttum sænska ríkissjónvarpsins
á þriðjudagskvöldið. Lúterski erki-
biskupinn í Svíþjóð, Antjé Jackelén,
sagði á miðvikudaginn að skoðun
páfans hefði ekkert með guðfræði
að gera heldur byggði hún á því að
hann hefði ekki haft mikið saman
að sælda við konur í lífi sínu og að
sýn hans á „mannkynið væri ekki
í jafnvægi“.
David Tencer fór til Svíþjóðar til
að vera við heimsókn páfans þar í
landi og segist hann hafa átt í sam-
skiptum við hann stuttlega. „Hann
vissi að ég væri biskup frá Íslandi.
Ég hitti hann og það var mjög fínt.
Hann brosti. Við erum úr sömu fjöl-
skyldunni, erum kaþólskir,“ segir
David sem fæst, þráspurður, ekki
til að tjá sig um skoðun páfans á
konum.
Biskupinn í Landakoti neitar að
ræða skoðun páfans á konum
David Tencer, biskup kaþólsku kirkj-
unnar á Íslandi, fór til Svíþjóðar til að
hitta Frans páfa sem kom sér í bobba
með tali sínu um konur. Tencer segir
þá Frans tilheyra sömu fjölskyldunni
og að gaman hafi verið að hitta hann.
Manndráp
ekki útilokað
Hæstiréttur hefur snúið við dómi
héraðsdóms um að ekki megi kryf-
ja líkið þar sem aðstandendum hafi
ekki verið gert viðvart. Lögregla tel-
ur ekki útilokað að manninum hafi
verið ráðinn bani og fellst dómur-
inn því á krufningu.
Talið er að líkamsleifarnar sem
fundust á ströndinni við Selatanga,
skammt austan við Grindavík, séu
af hinum 63 ára Joseph Le Goff,
sem lagði af stað frá Portúgal til
Azoreyja, þann 7. júlí, en siglingin
átti að taka viku. Síðast sást til hans
720 mílum austur af Nýfundna-
landi. Flutningaskip sigldi þá fram-
hjá skútunni en hún virtist mann-
laus. Vegna veðurs fór enginn um
borð. Landhelgisgæslan leitaði skút-
unnar þegar heyrðist í neyðarsendi,
en sá þá gult brak á ströndinni
skammt frá Grindavík. Þegar geng-
ið var á fjörur, fundust líkamsleifar
mannsins. | þká
Hæstiréttur
Dómsmál Hæstiréttur Íslands
staðfesti úrskurð Héraðsdóms
Reykjaness, þar sem kona var
svipt forræði yfir þremur börn-
um sínum. Konan, sem býr í
Kópavogi og er af erlendu bergi
brotin, fékk heilablóðfall árið
2011 og varð fyrir miklum fram-
heilaskaða. Hún er sökuð um að
hafa beitt son sinn líkamlegu
ofbeldi.
Fjölskylda bekkjarfélaga sonar
konunnar endaði á því að tala við
Barnaverndarnefnd Kópavogs og
óskaði að fyrra bragði eftir því að
verða stuðningsfjölskylda drengs-
ins. Það gerði fjölskyldan eftir að
drengurinn fór að venja komur sín-
ar til þeirra eftir skóla auk þess sem
hann var hjá þeim um mestan part
um helgar, þar sem hann flúði móð-
ur sína.
Fjölskyldan hjálpaði drengnum
við heimanám og sá um öll sam-
skipti við íþróttafélag sem drengur-
inn æfði fótbolta hjá en þau töluðu
ekki við foreldra drengsins fyrr en
eftir að þau leituðu til barnavernd-
ar.
Yngri systir drengsins fannst svo
á síðasta ári rétt hjá bensínstöð á
Nýbýlavegi. Stúlkan var þá þriggja
og hálfs árs gömul. Hún fór niður
þrjár hæðir í fjölbýlishúsi og gekk
allnokkra leið að bensínstöðinni.
Móðirin tilkynnti ekki um atvikið
til lögreglu, en sagði stúlkuna hafa
laumað sér út þegar hún var að
klæða sig. Konan stendur í skilnaði
en eiginmaður hennar sinnir börn-
unum nú.
Í dómi segir að konan hafi skerta
forsjárhæfni sökum framheilaskaða
og að hún sé algjörlega ófær um að
fara með forsjá barna sinna vegna
þessa. | vg
Selartangi. Mynd | Wikimedia
Drengurinn fann sér nýja
fjölskyldu eftir ofbeldi
majubud.is