Fréttatíminn - 04.11.2016, Síða 10
að sligast undan álagi og flýja starf
eða lenda í langtímaveikindum
vegna álags. Þá eru laun þeirra
ekki í neinu samræmi við starfið.
Það þarf líka að huga að störfum
sýslumanna, en a.m.k. hér á höf-
uðborgarsvæðinu ræður starfsfólk
alls ekki við þann málafjölda sem
þangað berst.“
Helga Vala Helgadóttir, lögfræðing-
ur.
„Ég tel stjórnar-
skrármálið ennþá
vera mikilvæg-
asta mál fyrir Ís-
land þar sem það
grundvallar ýmis
önnur stór mál. Ég
tel að ákall um nýja stjórnarskrá
sé viðvarandi krafa og að ekki sé
hægt að una við það að niðurstöð-
ur þjóðaratkvæðagreiðslu 2012
verði hunsaðar mikið lengur. Vona
að ríkisstjórnin, sem koma skal,
beri gæfu til að huga að þessu
stóra máli, framtíðarinnar vegna.“
Katrín Oddsdóttir lögfræðingur.
„Þessu er auðsvar-
að. Það er náttúru-
lega stjórnarskrá-
in en hana þarf að
snyrta aðeins til
og svo bara kýla
í gegn. Allir sem
skrifa vita að það þarf að lesa að-
eins yfir og laga hlutina til. Sama
á við um stjórnarskrána. Annars
eru það auðvitað heilbrigðis- og
menntamál sem nýir stjórnarherr-
ar verða að taka til skoðunar og
standa sig í.“
Hörður Torfason söngvaskáld.
„Brýnustu fyrstu
verkefni nýrr-
ar ríkisstjórnar
verða að tryggja
frið á vinnu-
markaði. Aftur-
kalla ákvörðun
kjararáðs um laun æðstu embætt-
ismanna og stjórnmálamanna.
Finna heildarlausn í lífeyrismál-
um landsmanna sem tryggir frið á
vinnumarkaði. Verkefni til lengri
tíma er að byggja upp stórlaskaða
innviði samfélagsins, heilbrigð-
ismál, samgöngumál og mennta-
málin. Það þarf að taka á svartri
atvinnustarfsemi, kennitöluflakki
og setja á keðjuábyrgð í útboðs-
málum þar sem aðalverktaki beri
ábyrgð á sínum undirverktökum.
Þetta er liður í að skapa traust og
tryggja að fjármunum sé ekki skot-
ið undan eins og viðgengst í dag.“
Sigurður Bessason, formaður Efl-
ingar.
„Ég tel að brýnustu mál nýrrar
ríkisstjórnar séu að byggja upp
innviði samfélagsins: Mennta-,
heilbrigðis- og samgöngukerfi,
sem vægast sagt eru ömurlega
sett. Það verður
að taka umhverfis-
mál föstum tök-
um og framfylgja
Parísarsamkomu-
laginu refjalaust.
Það verður að
taka alvarlega uppbyggingu ferða-
mannaiðnaðarins alls. Og síðast
en ekki síst: Það verður að virða
vilja þjóðarinnar um mannúð og
ábyrgð í móttöku flóttamanna.“
Guðrún Pétursdóttir, dósent við
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands.
„Á Landspítala
gerum við ráð fyr-
ir að stjórnmála-
menn standi undir
væntingum og efli
heilbrigðiskerfið
strax á næstu fjár-
lögum. Þau þurfa að taka umtals-
verðum breytingum frá fjármála-
áætlun fráfarandi ríkisstjórnar ef
svo á að vera. Við þurfum verulega
innspýtingu fjármagns til reksturs
og innviðauppbyggingar þjóðar-
sjúkrahússins og stjórnmálamenn
geta gengið að því sem gefnu að
því fé er vel varið.“
Páll Matthíasson, forstjóri Landspít-
alans
„Það er brýnt að
nýtt þing leggi
upp í nýja tegund
af samtali milli
stjórnvalda, vinnu-
markaðar, þings
og þjóðar, en til
að það sé hægt verður að tryggja
jafnræði milli fólks. Hvað varðar
peningastefnu og krónuna, festu
og stöðugleika í þeim málum, þá
verður henni að tengjast trúverð-
ug nálgun á það sem við köllum
félagslegan stöðugleika. Að hér
séu settir í farveg sýnilegir áfangar
og markmið um að endurreisa vel-
ferðarkerfið.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
„Taka þarf upp
nýtt verklag á Al-
þingi þar sem öll
lagasmíð, stefn-
ur og ákvarðanir
verða að sam-
ræmast sjálfbærri
þróun. Forgangsatriði er að vinna
tímasetta áætlun um loftslagsmál-
in og stefna að kolefnishlutlausu
Íslandi um 2030. Sameina þarf
stjórn náttúruverndarmála undir
einn hatt og taka á stórauknu álagi
ferðamanna á náttúruperlur með
friðlýsingum og auknu fjármagni.
Þar ber hæst að stofna þjóðgarð
á miðhálendinu. Þá kalla ég eftir
þjóðarsamstöðu um að hætt verði
að beita auðnir sem ekki þola
beit.“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar.
samfélag þurfa einnig að vera í for-
grunni, til dæmis húsnæðismálin
og endurreisn fæðingarorlofsins.“
Elín Björg Jónsdóttir, formaður
BSRB
„Mikilvægasta
verkefni næstu
ríkisstjórnar er að
beita skattkerfinu
til að jafna kjör í
landinu. Úrskurð-
ur kjararáðs sýnir
hversu mikilvægt er að ná sátt um
skiptingu gæða landsins. Á meðan
lágmarkslaun ná ekki framfær-
sluviðmiðum hlýtur það að fara í
forgang."
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambands Íslands
„Mikilvægustu
verkefni næstu
ríkisstjórnar eru
að endurreisa
innviði kerfisins.
Heilbrigðiskerfið
er að niðurlotum
komið en ég vil líka nefna veru-
legar áhyggjur mínar af stöðu
lögreglu og ákæruvalds. Málin
hrúgast inn, lögregluþjónar eru
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
„Meginverk-
efni: Að vinna að
nýjum samfélags-
sáttmála, koma Ís-
landi í röð traustra
lýðræðislanda.
Vinnulag: Setja
frá upphafi tón sátta við þjóðina;
ekki heimta traust heldur ávinna
sér traust með orðum sínum og
fyirhetum en umfram allt með
verkum sínum; standa við gefin
fyrirheit. Skammtímaverkefni: Aft-
urkalla undanbragðalaust nýlegar
launahækkanir kjararáðs, frið um
lífeyrismál og á vinnumarkaði.
Lengri tíma verkefni: Sambæri-
leg lífskjör og í nágrannalöndum,
aðgengi allra að heilbrigðiskerfinu,
bætt húsnæðiskerfi, nýr samfé-
lagssáttmáli og ný stjórnarskrá,
sjálfbærni auðlinda, hagkvæmni
og arður til eigandans, þjóðarinn-
ar.“
Svanur Kristjánsson
félagsfræðiprófessor
„Það er mjög mik-
ilvægt að byrjað
verði að greiða
listamönnum laun
fyrir vinnuna sína.
Eins er mikilvægt
að styrkja sjóði
sem tengjast listum. Ég væri glöð
ef það kæmi hér stjórn sem setti
þessi mál í forgang og ég treysti
Katrínu Jakobsdóttur til þess.“
Jóna Hlíf Halldórsdóttir, myndlista-
maður og formaður SÍM
„Þess sem ég óska
mér heitar en að
ákveðin málefni
komist á dagskrá
er að stunduð
verði öðruvísi póli-
tík. Raunverulegt
lýðræði þar sem gegnum samræðu
og málamiðlanir nái það besta
úr hinu pólitíska litrófi fram að
ganga.“
Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri
„Það er mjög
mikilvægt að ný
ríkisstjórn nái
saman um að út-
gjöld til háskóla-
stigsins verði í
samræmi við það
sem tíðkast í löndum sem Ísland
vill bera sig saman við. Það er al-
gjör forsenda þess að Ísland þróist
áfram sem þekkingarþjóðfélag og
nái því stigi hagsældar sem við
viljum búa við. Fjársveltir háskólar
geta ekki sinnt kennslu, rannsókn-
um og nýsköpun á þann hátt sem
atvinnulífið og nútíminn kallar
eftir.“
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, að-
stoðarrektor vísinda við Háskóla
Íslands
„Það er mikilvæg-
ast að næsta ríkis-
stjórn endurreisi
traust almennings
á lýðræðinu með
því að klára ferli
að nýrri stjórn-
arskrá og standi við þau loforð
sem hafa verið gefin um þjóðarat-
kvæðagreiðslu varðandi áfram-
hald viðræðna við Evrópusam-
bandið.“
Andri Sigurðsson, hönnuður og
meðstofnandi Jæja-hópsins.
„Það er mjög brýnt
að ný ríkisstjórn
afgreiði lagasetn-
ingu í samræmi
við samkomulag
við BHM, BSRB og
KÍ um nýskipan
lífeyrismála á Íslandi.“
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formað-
ur BHM
„Það er mjög
mikilvægt að ný
ríkisstjórn horfi
til mannréttinda
fatlaðs fólks og sjái
til þess að allir hafi
jafnt aðgengi að
samfélaginu. Svo þarf tafarlaust
að hækka örorkulífeyri þannig
að hann verði til samræmis við
lægstu laun.“
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ
„Þeir flokkar sem
taka við stjórnar-
taumunum þurfa
að leggja mikla
áherslu á félags-
legan stöðugleika
þar sem áherslan
er á uppbyggingu heilbrigðiskerf-
isins og velferðarkerfisins með
það að leiðarljósi að auka jöfnuð
og sanngirni í samfélaginu. Mál-
efni fjölskyldna og fjölskylduvænt
Umboð ríkisstjórna á Íslandi er orðið æði veikt. Tvær ríkisstjórnir af síðustu þremur hafa flosnað upp í kjölfar mótmælaöldu.
Mynd | Hari
OrkupOkinn
Allt sem
þú þArft
HOll
Og góð
OrkA