Fréttatíminn - 04.11.2016, Page 12
12 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
„Að búa smátt einfaldar lífið og
þannig sleppur maður við að taka
lífstíðarlán í banka og borga af
steypuklumpi alla ævi,“ segir Saga
Sigríðardóttir, einn af meðlimum
HÁS, Hagsmunasamtaka áhugafólks
um smáheimili.
Félagsskapurinn er íslenski ang-
inn af samfélagsvakningu sem verð-
ur sífellt meira áberandi á Vestur-
löndum og kallast á ensku The
Tiny House Movement. Smáheim-
ilahreyfingin gengur fyrst og fremst
út á að minnka heimilið með því
markmiði að minnka skuldabyrði og
Gott að búa í 20 fermetrum
Nú stendur til að rífa eitt af fáum
smáhúsum sem eftir eru í Reykja-
víkurborg, Veghús við Veghúsastíg 1,
byggt árið 1899. Grunnflötur hússins
er 30 fermetrar en til viðbótar er
kjallari, ris og bíslag.
Af hverju smáhús?
= EINFALDARA LÍF
MINNI
SKULDIR
MINNI AFBORGANIR
MINNA
VESEN
MINNA DRASL
MINNI SÓUN
MINNI INNKAUP
MEIRI SJÁLFBÆRNI
MEIRA FRELSI
Á Íslandi vill fjöldi
fólks búa smátt og
jafnvel byggja sér
smáhús sjálft en
það er erfitt eins
og staðan er í dag.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
einfalda lífið. Sumir búa í litlu húsi á
hjólum eða í húsbíl til að geta ferðast
með heimilið á meðan aðrir kjósa að
koma sér fyrir á einum stað, annað
hvort í pinkulitlu einbýli með garði
eða í pinkulítilli íbúð í fjölbýli. Engin
lágmarks fermetrafjöldi er á bak við
smáheimili en algeng stærð á slíku
einbýli er um 30 fermetrar. Í kjarna
sínum snýst hugmyndin um að eiga
minna til að fá meira út úr lífinu.
Gæði fram yfir magn
Hreyfingin hefur fengið mikla
athygli í Bandaríkjunum þar sem
hún spratt upp á níunda áratugn-
um sem andsvar við neyslusamfé-
laginu. Árið 1987 kom margfalda
metsölubókin Tiny Houses, eftir Le-
ster Walker, út þar sem teikningar
og byggingaraðferðir voru settar
fram í bland við myndir af draum-
kenndum timburkofum í villtri nátt-
úru. Rúmum tíu árum síðar gaf svo
arkitektinn Sarah Susanka út met-
sölubókina Not so big eftir að hafa
lært af störfum sínum sem arkitekt
í Bandaríkjunum að fókusinn í húsa-
gerð Bandaríkjamanna væri miklu
frekar á magn en gæði.
Eftir að hafa gerjast í nokkra ára-
tugi fékk smáheimilahreyfingin byr
undir báða vængi í kjölfar efnahag-
skreppunnar. Allt í einu varð hug-
myndin um frelsi frá steinsteypunni
ekki bara hippaleg útópía heldur
nauðsynleg til að lifa skuldasúp-
una af. Internetið og lífsstílsblöð
hafa síðan verið full af fólki sem vill
njóta lífsins núna frekar en í mögu-
legri elli. Á internetinu er að finna
vinsælar sjónvarpsseríur á borð við
Tiny House Nation og Tiny House
Hunters þar sem fólk annaðhvort
leitar sér að smáhúsi eða sýnir
hvernig það er að lifa í slíku húsi.
Langflestir viðmælendur eiga það
sameiginlegt að vilja frelsi undan
fasteignaskuldum, vilja minnka við
sig óþarfa, vera sjálfbær og í meiri
tengslum við náttúruna.
Þurfum ekki svona mikið dót
Smáheimilahreyfingin er auðvitað
ekkert að finna upp hjólið því það
hefur alltaf verið til fólk sem býr
smátt. Það þarf ekki að fara lengra
en á Árbæjarsafnið til að sjá hversu
lítil hýbýli okkar Íslendinga voru
snemma á síðustu öld. Munurinn er
hinsvegar sá að íbúar torfbæjanna
og síðar pínulitlu timburhúsanna
voru ekki í andspyrnu við vestræna
neysluhyggju né höfðu þörf fyrir að
skera við sig óþarfa. Það var einfald-
lega enginn óþarfi til staðar og fólk
byggði smátt af vanefnum og venju
frekar en hugmyndafræði. Það má
segja að smáheimilahreyfingin hafi
komið hugmyndafræðinni um sjálf-
bæran lífsstíl í form. En af hverju
ætli hún hafi nýlega byrjað að
blómstra á Íslandi? „Ég upplifi þess-
ar hugmyndir eins og mótmæli gegn
því sem er að gerast í samfélaginu.
Fólk í heimilisleit hefur ekki mik-
ið val og sama hvernig húsnæðis-
möguleika þú skoðar, þá er allt dýrt.
Fólk er að leita eftir nýjum lausnum
og á sama tíma að átta sig á að við
þurfum ekki að eiga svona mikið af
dóti,“ segir Saga.
Saga Sigríðar-
dóttir innan-
húshönnuður
segir það vera
stórgott að búa
í 20 fermetr-
um. Minna
plássi fylgi
minna dót og
minni afborg-
anir. Lífið verði
einfaldara og
betra fyrir vik-
ið. Mynd | Rut
Verslunarmiðstöð verður fjölbýli
Í Bandaríkjunum er að finna mörg
dæmi þess að byggingum sem ekki
lengur nýtast í rekstur sé breytt í fjöl-
býli með pinkulitlum íbúðum. Elstu
verslunarmiðstöð Bandaríkjanna,
sem staðsett er í Providence á Rhode
Island, var í fyrra breytt í fjölbýli með
48 smáíbúðum.
páska
ferð
Dvalið í höfuðborginni Delhi sem er
sjóðheitur suðupottur menningaráhrifa
frá tímum búddadóms, hindúa, múslima
og Breta. Til Agra sem státar af þremur
stöðum á heimsminjaskrá UNESCO og er
Taj Mahal þeirra frægastur. Til að loka
hinum Gullna þríhyrningi er næst haldið
til Jaipur sem jafnan er kölluð „bleika
borgin“ vegna fjölda bygginga í þeim lit.
Í borginni Varanasi fáum við að kynnast
hinu kaótíska og iðandi mannlífi sem
víða einkennir Indland. Niður hið helga
fljót Ganges og fylgjumst með borginni
vakna. Það er ógleymanleg lífsreynsla
að sjá borgarbúa þvo sér í hinu helga
vatni. Stórkostleg litadýrð, fjölbreytt
mannlíf og fegurstu mannvirki jarðar.
Indland bíður þín.
ÞÉTT OG HNITMIÐUÐ FERÐ UM
GULLNA ÞRÍHYRNING INDLANDS
8.–19. APRÍL, 12 DAGAR
489.000 KR.*
farvel.is farveltravel farvel_travel farvel@farvel.is415 0770
*Verð per mann í tvíbýli. Nánari upplýsingar á vefsíðu Farvel.
eldar indlands
FARARSTJÓRN:
PÉTUR HRAFN ÁRNASON
Taj Mahal, Agra, Jaipur og Ganges-fljót