Fréttatíminn - 04.11.2016, Side 14
Sum smáheimili eru á hjólum
Svefnloft með
queen size rúmi
Eldhús
og stofa
Baðherbergi
Baðkar í fullri
stærð
Klósett
Vatns-
tankur
14 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
Engin alvöru smáhús í boði
Saga er tuttugu og fimm ára inn-
anhúshönnuður og vinnur fullan
vinnudag en hefur ekki efni á að
kaupa sér heimili og vill ekki eyða
öllum laununum sínum í leigu á
stórri íbúð. Frá því að Saga kláraði
nám hefur hún leigt bílskúr tengda-
foreldranna með kærastanum og
líkar það vel. Þau fundu nýlega litla
íbúð í miðbænum og flytja þangað
á næstunni. Íbúðin er þó ekki mik-
ið stærri en bílskúrinn, þau fara úr
20 fermetrum í 30 fermetra, enda
hefur Saga ekki hug á því að stækka
mikið við sig. Hún segir smæðina
ekki hafa áhrif á sambýlið, enn
hafi enginn þurft að storma út í
göngutúr til að vera í einrúmi. „Það
er mjög gott að búa í 20 fermetrum,
bara ótrúlega kósí. Til að líða vel í
litlu rými er aðalatriðið að skipu-
leggja rýmið vel,“ segir Saga.
Hún segir þetta ekki endilega snú-
ast um að búa í rosalega litlu rými,
heldur nógu stóru. „Í dag hentar
okkur að búa í 20 til 30 fermetrum
en ef við værum með börn þyrft-
um við örugglega 50 fermetra. Það
skiptir miklu máli að þó rýmið sé
lítið þá sé það vel hannað því ef það
er vel hannað þá á ekkert að flækj-
ast fyrir þér. Það eru hús í sölu núna
sem sumir kalla „tiny-hús“, eða smá-
hús, en þau eru miklu frekar eins og
gistirými því þau eru ekki hönnuð
með það fyrir augum að fólk geti
búið þar til lengri tíma. Þú gæti
gist þar í tvær nætur en þú mynd-
ir missa vitið ef þú kæmir með bú-
slóðina með þér. Það er ýmislegt í
gangi á Íslandi og áhuginn er mikill
en eins og er enginn að bjóða upp á
alvöru smáhús.“
Deiliskipulög banna smáhús
Sandra Borg Bjarnadóttir stofn-
aði facebook hópinn Tiny Homes
á Íslandi fyrir tveimur árum. Hún
fékk brennandi áhuga á smáhús-
um eftir að hafa lært vistrækt og
dreymir um að eignast einn daginn
sitt eigið smáhús í útjaðri borgar-
innar, með garði þar sem hún get-
ur ræktað sitt eigið grænmeti. „Ég
er að verða þrítug en hef aldrei átt
eða leigt eigin íbúð því ég hef ekki
haft efni á því,“ segir Sandra sem
býr um þessar mundir ásamt maka
sínum og þriggja vikna gömlu barni
þeirra í kjallaranum í húsi tengda-
foreldranna. „Foreldrar mínir eiga
hús með risagarði og við vorum með
hugmyndir um að byggja lítið hús
og setja niður þar. Okkur langaði
að byggja húsið sjálf og vera þar í
einhvern tíma en flytja svo húsið á
okkar eigin lóð þegar hún fengist.
En það mátti ekki. Samkvæmt
byggingarreglugerðum er í lagi að
byggja 40 fermetra hús eða minna
á lóð en það þarf að vera innan
byggingarreits og vera hugsað sem
vinnustofa eða bílskúr en ekki sem
heimili. Og svo er orðið smáhýsi
ekki til í kerfinu, það er til garðhýsi
en það má ekki vera tengt við nein-
ar veitur og ekki vera hærra en 2,50
metrar.“
Vilja byggja upp smáhúsahverfi
Eftir að hafa allsstaðar rekist á veggi
í kerfinu skipulagði Sandra fund
fyrir áhugasama um smáhýsi á Sjó-
minjasafninu í vor. Færri komust
að en vildu og meðlimum hóps-
ins á facebook fjölgaði um nokkur
þúsund. Í kjölfarið stofnuðu Sand-
ra og fleiri úr hópnum HÁS, Hags-
munasamtök áhugafólks um smá-
Sandra Borg Bjarnadóttir er einn stofnenda HÁS, Hagsmunasamtaka áhugafólks
um smáheimili. Hún býr í kjallaranum hjá tengdaforeldrum sínum en dreymir
um að eignast pinkulítið einbýli með matjurtagarði. Mynd | Rut
heimili. „Markmiðið með félaginu
er að gera það mögulegt að byggja
sér smáhús á Íslandi en í dag er
það ekki hægt því núverandi reglur
um deiliskipulag bjóða ekki upp á
það. Það eiga að vera ákveðið stór
hús í hverju hverfi og það má ekki
skemma heildarmyndina. Svo eru
lóðir líka svo rosalega dýrar að það
er oftast ekkert vit í því að kaupa
lóð fyrir pínulítið hús. Þú þarft að
fara mjög langt í burtu til að finna
ódýrari lóðir. Í félaginu eru margir
sem hafa áhuga á því að búa til smá-
húsahverfi þar sem hægt væri að
kaupa litla lóð og byggja sjálfur. Við
erum að vinna í því að gera það að
möguleika og við erum búin að setja
upp vinnuhópa sem einbeita sér að
því að skoða reglugerðir og lóðir og
hvort það sé mögulegt að byggja
upp slíkt samfélag,“ segir Sandra.
Dreymir um smáhús með garði
Sandra segist sjálf hafa skoðað
allskyns hús, bæði til að byggja sjálf
og tilbúin hús, sum hver innflutt
einingahús. „Við ræddum við eitt
fyrirtæki sem býr til gistirými úti
á landi og hefðum getað keypt 50
fermetra timburhús af þeim sem
væri gert sem heimili á 5 milljón-
ir. Það eru ýmis fyrirtæki að selja
allskyns lausnir, mikið til eru það
innflutt einingahús, oft úr plasti.
Sjálf hef ég lítinn áhuga á því, bæði
vegna þess að þessi hús eru oftast
mun dýrari en einangruð timbur-
hús og vegna þess að mig langar ein-
faldlega meira í timburhús. Málið
með einingahúsin er líka að þau er
oftast byggð sem frístundahús en
ekki heimili. Ég vil alvöru heimili þó
það sé lítið, vel skipulagt með góð-
um hirslum, skíðagallarnir þurfa
að vera einhversstaðar á sumrin.
Mig langar að eiga mitt eigið land
og lítið hús þar sem ég get ræktað
mitt eigið grænmeti. Mig langar að
vera eins sjálfbær og hægt er og geta
verið með vinnustofu á lóðinni. Það
er draumurinn minn en hvort það
verður hægt á eftir að koma í ljós.“
Ekki bara sparnaður
Félagið HÁS er fyrst og fremst ákall
á fjölbreyttari húsnæðismöguleika.
Það dreymir ekki alla félagsmenn
um pinkulítið einbýli heldur vilja
sumir litlar íbúðir í fjölbýli eða
jafnvel deilihúsnæði. Saga er ein
þeirra. Hún lærði innanhúsarki-
tektúr í Mílanó og heillaðist þar af
hugmyndinni um deilihúsnæði,
Smáheimili geta verið allskonar en eiga
það sameiginlegt að vera smá og fólk
sem aðhyllist hugmyndafræðina vill
einfalda líf sitt.
húsnæðisfyrirkomulag sem farið er
að bera meira á erlendis. „Útskrift-
arverkefnið mitt voru stúdenta-
garðar sem gengu út á að deila öllu
sem þú þarft ekki dagsdaglega á að
halda. Deilihúsnæði er samt ekki
bara fyrir félagsverur því þú hefur
alltaf val um að vera bara í íbúð-
inni, þar er bæði lítið baðherbergi
og pínulítið eldhús, auk svefnher-
bergis. En þú getur líka notað sam-
eiginleg rými eins og stórt eldhús,
íþróttasal, sólpall og þvottahús.
Þetta byggir í raun á hugmyndinni
um að þú þurfir ekki að eiga allt.
Flestir eiga verkfæratösku sem þeir
nota kannski einu sinni á ári en á
deiliheimili væri aðgangur að verk-
færum sem allir ættu saman. Margir
halda að þetta sé mjög útópísk hug-
mynd en ég held að þetta snúist
aðallega um hugarfar. Í svona hús-
næði þurfa allir að stilla sig inn á
það að hlutir eru ekki í einkaeign
svo ef þú notar verkfærin þarftu að
skila þeim í sama ástandi á sama
stað og allir eru sáttir,“ segir Saga
en sjálfa dreymir hana um að búa
svona í framtíðinni. „Þetta snýst um
breyttan lífsstíl með minni neyslu.
Ég myndi helst vilja búa í vel hann-
aðri smáíbúð í þéttbýli og í samfé-
lagi við annað fólk sem líka vill búa
smátt. Þessar hugmyndir henta vel
fyrir fólk sem á ekki mikla peninga
en þetta snýst samt ekki bara um
ódýrar lausnir heldur um fjölbreytt-
ari lausnir. Við viljum ekki öll búa
eins því við erum ekki öll eins.“
„Í kjarna sínum snýst
hugmyndin um að eiga
minna til að fá meira út
úr lífinu.“
Smáheimilahreyfingin
40.000 kr.
í stað
123.000 kr.
í afborganir
Til að kaupa 35 m.kr. íbúð þarf fólk
að leggja 7 m.kr. í útborgun og greiða
123.430 kr. á mánuði af 28 m.kr.
láni, alls 52 m.kr. á 40 árum.
Ef fólk kaupir fremur smáheimili sem
kostar til dæmis 17 m.kr. getur það
annað hvort tekið lægra lán, 10 m.kr.
og greitt 39.774 kr. á mánuði, og
19,0 m.kr. á 40 árum.
Miðgildi launa var 535 þús. kr. á
mánuði í fyrra; líklega um 605 þús.
kr. í dag. Einstaklingur með slík laun
er með 414 þús. kr. útborgað. Í
dæmi eitt er hann með 291 þús. kr.
eftir afborganir, 376 þús. kr. í dæmi
tvö. Það hlýst því ansi mikill sparnað-
ur af því að búa smátt.
SÉRBLAÐ
UM ÚTIVIST
þann 11. nóvember
Endilega hafið samband
og tryggið ykkur pláss
gauti@frettatiminn.is 531 3310