Fréttatíminn - 04.11.2016, Qupperneq 24
15.999 kr.
TENERIFE f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - f e b rú a r 2 0 1 7
7.999 kr.
BRUSSEL f rá
T í m a b i l : j ú n í & s e p te m b e r - o k tó b e r 2 0 1 7
21.999 kr.
LOS ANGELES f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7
5.999 kr.
STOKKHÓLMUR f rá
T í m a b i l : j a n ú a r - a p r í l 2 0 1 7
9.999 kr.
FRANKFURT f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - m a rs 2 0 1 7
13.999 kr.
TORONTO f rá
T í m a b i l : n ó v e m b e r 2 0 1 6 - a p r í l 2 0 1 7
Þú getur
flogið!
*Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 4. nóvember 2016
í 14 ár. Hún þráspurði nunnurn-
ar hvenær hún mætti snúa aftur,
hversu lengi hún þyrfti að iðrast og
hvort hún myndi enda ævina á þess-
um stað því við hliðina á henni unnu
konur sem höfðu verið í þvottahús-
inu í meira en 50 ár.
Eftir 11 ára vist strauk hún en kaþ-
ólskur prestur náði henni á flótt-
anum. Í kjölfarið var hún send til
baka, hárið á henni rakað af, hún
látin biðjast afsökunar og höfð í
einangrunarvist í kjallaranum. Níu
mánuðum eftir að presturinn færði
hana aftur í þvottahúsið fæddi
Mary dóttur, Carmel. Mæðgurnar
voru aðskildar og Carmel gefin til
ættleiðingar. Í frumvarpi sem var
lagt fyrir írska þingið á síðasta ári
var lagt til að ættleiddir Írar, sem
margir hverjir voru gefnir nýjum
foreldrum í leyni á stofnunum kaþ-
ólsku kirkjunnar, fengju aðgang
að fæðingarvottorðum sínum. Al-
þjóðalög kveða á um rétt einstak-
linga til að leita uppruna síns en
Írum í þessari stöðu hefur enn
ekki verið gefinn kostur á að njóta
þessara réttinda. Hvað sem laga-
setningu líður getur upprunaleitin
engu að síður reynst erfið þar sem
upplýsingar á fæðingarvottorðun-
um reynast oft rangar og engin
skráð vitneskja er til um föðurinn.
Fjöldagröf á byggingarlóð
Síðasta Magdalene þvottahúsið á Ír-
landi var starfrækt í klaustri á Sean
MacDermott Street í Dublin í reglu
Sister of Our Lady of Charity. Þegar
mest var störfuðu þar 150 konur
og skömmu áður en þvottahúsinu
var lokað bjuggu þar 40 konur, sú
elsta 79 ára. Árið 1993 sáu nunnurn-
ar ekki fram á að ná endum saman
og brugðu þá á það ráð að selja
byggingarverktaka hluta af lóðinni
í grennd við klaustrið. Þegar verk-
takinn hóf framkvæmdir gróf hann
niður á bein í ómerktri gröf sem alls
reyndust vera af 155 fyrrum starfs-
stúlkum þvottahússins. Nunnurnar
sömdu við verktakann um að hafa
lágt um málið og fjarlægja líkams-
leifarnar sem ýmist voru brenndar
eða grafnar annars staðar. Atburð-
urinn komst þó að lokum í fjölmiðla.
Þjóðinni var stórlega misboðið og
krafan um að aflétta leyndinni sem
umlukti starfsaðferðir kirkjunnar
varð sífellt háværari.
Síðasta Magdalene þvottahúsið á Írlandi var starfrækt í klaustri á Sean MacDermott Street í Dublin. Þegar mest var störfuðu
þar 150 konur og skömmu áður en þvottahúsinu var lokað bjuggu þar 40 konur, sú elsta 79 ára. Árið 1993 sáu nunnurnar
ekki fram á að ná endum saman og brugðu þá á það ráð að selja byggingarverktaka hluta af lóðinni. Þegar verktakinn hóf
framkvæmdir gróf hann niður á bein í ómerktri gröf sem alls reyndust vera af 155 fyrrum starfsstúlkum þvottahússins.
Nunnurnar sömdu við verktakann um að hafa lágt um málið og fjarlægja líkamsleifarnar sem ýmist voru brenndar eða
grafnar annars staðar.
Fæstar þeirra vissu hvað þær höfðu
unnið til saka en yfirlýstur tilgangur
þvottahúsanna var endurhæfingar- og
betrunarvist fyrir „fallnar“ stúlkur
og konur sem voru álitnar lauslátar,
höfðu eignast barn utan hjónabands,
þóttu of fallegar, voru fórnarlömb
kynferðisofbeldis, glímdu við andleg
veikindi eða voru á einhvern hátt
byrði á fjölskyldu sinni.
Kvikmynd sætti
harðri gagnrýni
Kvikmyndin The Magdalene Sisters
eftir Peter Mullan kom út árið 2002.
Myndin var harðlega gagnrýnd af
Páfagarði á sínum tíma en hún segir
sögu fjögurra stúlkna í þvottahúsi á
7. áratug síðustu aldar. Þar voru þær
vistaðar fyrir misalvarlegar yfirsjónir.
Sönn saga Philomenu Lee var færð
á hvíta tjaldið í myndinni Philomena
árið 2013. Hún segir frá stúlku sem
eignast barn og er neydd til að gefa
það til ættleiðingar. Philomena Lee
er 83 ára baráttukona fyrir breyttri
ættleiðingarlöggjöf á Írlandi og hefur
meðal annars fundað með páfanum
til að gagnrýna verklag ættleiðinga
kaþólsku kirkjunnar.
Árið 1996 var þvottahúsinu lok-
að. Í kjölfarið hófu þær sem höfðu
lifað vistina af að deila sögu sinni og
krefjast viðurkenningar á því órétt-
læti og ofbeldi sem þær voru beittar.
Írska ríkisstjórnin viðurkenndi loks
árið 2001 að stúlkur í Magdalene
þvottahúsunum hefðu sætt mis-
beitingu. Stjórnvöld voru hins vegar
treg til að bjóða fórnarlömbunum
einhverskonar miskabætur þar sem
þau héldu því fram að þvottahúsin
hefðu verið einkarekin starfsemi og
eftirlit með aðbúnaði starfsfólksins
ekki í þeirra verkahring. Við nánari
eftirgrennslan kom hins vegar í ljós
að dómstólar í landinu höfðu sent
konur sem voru dæmdar fyrir smá-
glæpi til að taka út refsingu sína með
því að starfa í þvottahúsunum. Op-
inberar stofnanir skiptu við þvotta-
húsin án þess að fá fullvissu þess að
starfsmenn þeirra byggju við full-
nægjandi aðstæður og réttindi. Þar
að auki sáu lögregluyfirvöld um að
hafa uppi á þeim sem höfðu strok-
ið úr vistinni og skila þeim aftur til
nunnanna og áttu þar með þátt í að
tryggja þeim vinnuafl.
Afsökun og miskabætur
Eftir að hafa talað fyrir daufum eyr-
um yfirvalda á Írlandi vísuðu samtök
eftirlifenda Magdalene þvottahús-
anna málinu til nefndar Sameinuðu
þjóðanna gegn pyntingum með
vísan til þess að mannréttindi þeirra
hafi verið brotin og þær verið fórn-
arlömb vinnuþrælkunar í þvotta-
húsunum. Niðurstaða nefndarinn-
ar var sú að yfirvöld á Írlandi skyldu
rannsaka ásakanir á hendur kaþ-
ólsku kirkjunni. Svar stjórnvalda var
McAleese-rannsóknin en niðurstöð-
ur hennar voru kynntar í skýrslu
árið 2013. Viðtöl við eftirlifendur og
nokkurra mánaða rannsóknarvinna
þótti sanna að stúlkurnar höfðu
orðið fyrir reglulegu andlegu ofbeldi
þótt engar sannanir lægju fyrir um
að þær hefðu mátt sæta líkamlegum
refsingum. Enn fremur hafi engar
vísbendingar fundist þess efnis að
konur hefðu fætt börn á meðan þær
unnu í þvottahúsunum. Samtök eft-
irlifenda voru ósátt við niðurstöðu
skýrslunnar og sögðu hana á margan
hátt firra stjórnvöld ábyrgð og rétt-
læta aðgerðir kirkjunnar. Eftir að
niðurstöður McAleese-rannsóknar-
innar lágu fyrir beið forsætisráð-
herra landins, Enda Kenny, í hálfan
mánuð með að gefa út formlega af-
sökunarbeiðni. Í henni sagði hann
að starfshættir kaþólsku kirkjunnar
í þvottahúsunum, hælum og stofn-
unum sem hún starfrækti væri til-
efni til þjóðarsorgar í landinu. Hann
gaf jafnframt út afsökunarbeiðni til
þeirra sem þjáðust vegna þessa og
tilkynnti að komið yrði á fót miska-
bótasjóði.
Nunnureglurnar fjórar sem ráku
Magdalene þvottahúsin hafa allar
neitað að ganga að kröfum írskra
stjórnvalda og ályktana Sameinuðu
þjóðanna um að leggja sitt af mörk-
um í miskabætur fyrir eftirlifendur
Magdalene þvottahúsanna.